Fréttir

true

Fasteignaviðskipti í apríl

Á Vesturlandi var 48 samningum um húsnæði þinglýst í aprílmánuði. Þar af voru 26 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um eignir í sérbýli og sjö samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.024 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,2 milljónir króna. Af þessum 48 voru 35 samningar um eignir á Akranesi. Þar…Lesa meira

true

Tvöfalda frístundastyrk í Borgarbyggð

Fræðslunefnd Borgarbyggðar lagið til á fundi 16. apríl síðastliðinn að tvöfalda frístundastyrk í Borgarbyggð á árinu úr 20 þúsund krónum í 40 þúsund krónur á ári. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hafði þá sent bréf þess efnis að íþrótta- og ungmennafélög á landsvísu horfi fram á mikla erfiðleika í rekstri vegna Covid-19 veirunnar. Á fundi byggðarráðs…Lesa meira

true

Þjóðhátíðardagur Norðmanna er í dag

Þjóðhátíðardagur Norðmanna er í dag, 17. maí. Af því tilefni tók Guðjón S Brjánsson alþingismaður sig til og dró að húni fána frænda vorra í austri, utan við Ráðhús Akraness við Stillholt. Með honum í verkefninu voru ungir og efnilegir félagsmenn í Norræna félaginu, þeir Alexander Veigar og Guðjón Máni. Til hamingju með daginn Norðmenn!Lesa meira

true

Heimilt er að opna sundlaugar og baðstaði á morgun

Heilbrigðisráðherra féllst í síðustu viku á tillögu sóttvarnalæknis um að heimila opnun sundlauga og baðstaða mánudaginn 18. maí. Fjöldi sundgesta verður þó takmarkaður og rík áhersla lögð á hreinlæti og sóttvarnir. Fjöldi gesta verður miðaður við starfsleyfi viðkomandi laugar eða baðstaðar og er reglan sú að gestir mega aldrei vera fleiri en nemur helmingi hámarksfjölda…Lesa meira

true

Stuðningur vegna greiðslu launakostnaðar á uppsagnarfresti

Frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, sem kveður á um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, var samþykkt af ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna á föstudaginn. Frumvarpinu er ætla að koma til móts við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir verulegri fjárhagslegri röskun á atvinnurekstri vegna farsóttarinnar. Markmið stuðningsins er að draga úr líkum á fjöldagjaldþrotum…Lesa meira

true

Lágmarks millilandaflug tryggt í sumar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert nýjan samning við Icelandair sem ætlað er að tryggja lágmarks flug til Evrópu og Bandaríkjanna til og með 27. júní í sumar. Flogin verða tvö flug á viku á þrjá áfangastaði út samningstímann. Hægt er að framlengja samninginn fram í september ef þörf krefur. Áfram verður flogið til Boston, London…Lesa meira

true

Ellefu þúsund skráð sig af hlutabótaleiðinni

Þegar mest lét voru 38 þúsund manns í minnkuðu starfshlutfalli en nú eru þeir 27 þúsund talsins. Samtals hafa því um 11 þúsund manns afskráð sig af hlutabótaleiðinni svokölluðu. „Ég get ekki betur séð en að nokkuð margir séu komnir aftur til vinnu sinnar í maí eftir að slakað var á samkomubanni,“ sagði Unnur Sverrisdóttir,…Lesa meira

true

LED ljós koma í stað vegstika í Hvalfjarðargöngum

Vegagerðin áformar að skipta út vegstikum fyrir LED kantljós í Hvalfjarðargöngunum og setja upp nýtt myndbandsvöktunarkerfi. Gísli Eiríksson forstöðumaður jarðgangadeildar Vegagerðarinnar segir að hefðbundnar vegstikur séu nú í göngunum. Þær verða fljótt skítugar vegna mikillar rykmengunar og sjást ekki vel þegar ekið er með lágu ljósin. „Ákveðið hefur verið að setja LED ljós með 25m…Lesa meira

true

Tilkynningasíða opnuð fyrir öryggisatvik í rekstri

Gáttin, oryggisbrestur.island.is, var opnuð með formlegum hætti í gær. Vefgáttinni er ætlað að auðvelda tilkynningar fyrirtækja og stofnana um öryggisatvik í rekstri þeirra. Gáttin er samvinnuverkefni Persónuverndar, Póst- og fjarskiptastofnunar/CERT-IS og Lögreglunnar undir forystu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Í sameiginlegri fréttatilkynningu hlutaðeigandi kemur fram að í gáttinni sé á einum stað og með samræmdum hætti hægt…Lesa meira

true

Truflun á ljósleiðaratengingu í Hvalfjarðarsveit

Íbúar á Innnesi í Hvalfjarðarsveit mega gera ráð fyrir truflun á ljósleiðaratenginu frá klukkan 10 á mánudagsmorgun. Þá verður unnið að lagfæringum sem standa fram eftir degi en um er að ræða tengingu frá Völlum að Akranesi. Á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar eru íbúar og aðrir beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að skapast vegna þessa.Lesa meira