Fréttir

true

Grásleppuveiðar stöðvaðar vegna mikils afla fyrir norðan

Heimilt verður að veiða í allt að fimmtán daga á Breiðafirði eftir 20. maí Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um stöðvun veiða á grásleppu á þessu fiskveiðiári. Ástæðan er sú að fyrirséð er að veiðarnar muni fljótlega nálgast ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um að heildarafli á þessu fiskveiðiári verði ekki meiri en 4.646…Lesa meira

true

Ingibjörg Birna tekur að nýju við starfi sveitarstjóra

Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í gær var ákveðið að ráða Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur í starf sveitarstjóra. Meirihluti sveitarstjórnar samþykkti eins og kunnugt er að segja Tryggva Harðarsyni sveitarstjóra upp störfum um miðjan apríl og hætti hann samdægurs. Hefur Árný Huld Haraldsdóttir oddviti gegnt starfi sveitarstjóra í þessu millibilsástandi. Ingibjörg Birna er flestum hnútum kunnug hjá…Lesa meira

true

Tveir skólar á Vesturlandi fá úthlutun úr Sprotasjóði

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2020-2021. Sprotasjóður hefur það hlustverk að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi leik,- grunn- og framhaldsskóla í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Samtals bárust 46 umsóknir og að þessu sinni hljóta 26 verkefni styrki og er heildarupphæð þeirra rúmlega 56 milljónir króna. Að þessu…Lesa meira

true

Baráttukveðjur í tilefni 1. maí

Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu hafa Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB og KÍ brugðist með að skipuleggja útsendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpunni í Reykjavík í kvöld og sjónvarpað í Ríkissjónvarpinu kl. 19:40.…Lesa meira

true

Safnkostur Kvikmyndasafns Íslands gerður aðgengilegur

Kvikmyndasafn Íslands hefur opnað nýjan vef undir yfirskriftinni Ísland á filmu. „Tilgangur vefjarins er að opna almenningi sýn inn í fágætan safnkost Kvikmyndasafns Íslands. Þarna er að finna mikinn fróðleik um verklag í landbúnaði og sjávarhætti auk ómetanlegra myndskeiða frá einhverjum merkustu atburðum Íslandssögunnar. Á vefnum www.islandafilmu.is er hægt að skoða myndefni úr fórum Kvikmyndasafns…Lesa meira

true

Óvissa um hátíðarhöld á Akranesi í sumar

Sem kunnugt er hefur sóttvarnalæknir sent heilbrigðisráðherra minnisblað þess efnis að 4. maí verði slakað á samkomubanninu úr 20 í 50 manns. Þar var jafnframt lagt til að frekari takmörkunum samkomubanns verði aflétt í skrefum á þriggja til fjögurra vikna fresti næstu mánuði á eftir. Sóttvarnalæknir hefur síðan gefið út að næsta skref yrði að…Lesa meira

true

Guðmundur hættur sem forstjóri Brims

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Brims hf., af persónulegum ástæðum. Samþykkti stjórn félagsins það á reglulegum stjórnarfundi sem fram fór í dag. Kristján Þ. Davíðsson stjórnarformaður Brims tók þar með tímabundið við verkefnum og skyldum forstjóra og mun gera það þangað til að nýr forstjóri hefur verið…Lesa meira

true

Hraðakstur hefur aukist að undanförnu

Umferðarmál hafa verið áberandi í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi undanfarna viku. Sér í lagi hefur hraðamálum fjölgað frá því sem verið hefur undanfarið og hafa ýmsar tölur sést við hraðamælingar síðustu dagana. Sá sem hraðast ók var mældur á 153 km hraða á klst. á Vesturlandsvegi á móts við Gröf. Ökumaður játaði sök. Hann þarf…Lesa meira

true

Spegilmynd af loga orsakaði íkveikju

Síðdegis síðastliðinn sunnudag var hringt í Neyðarlínu og tilkynnt um eld í gardínum í íbúðarhúsi á Akranesi. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn var búið að slökkva eldinn. Óhætt er að segja að eldsupptökin hafi verið óvenjuleg. Að sögn lögreglu virðist sem sterk sól hafi skinið á spegil, hann endurvarpað geislunum á gardínu og þannig hafi…Lesa meira