
Næturlokanir eru framundan í Hvalfjarðargöngum vegna viðhaldsvinnu næstu þrjár nætur, eða aðfaranætur þriðjudagsins 28. apríl, miðvikudagsins 29. apríl og fimmtudagsins 30. apríl. Sérstök athygli er vakin á því að næturlokarnir gilda frá kl. 23:00 til 06:30, sem er lengri tími í báðar áttir en oft áður. Á meðan lokunum stendur verður umferð vísað um Hvalfjörð.Lesa meira








