Fréttir

true

Strandveiðar verða með svipuðu sniði en nú má veiða á almennum frídögum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um strandveiðar árið 2020, en þær hefjast eins og kunnugt er í byrjun maí. Reglugerðin er efnislega samhljóða reglugerð um strandveiðar síðasta árs að öðru leyti en því að lagaheimild ráðherra til að banna strandveiðar á almennum frídögum er ekki nýtt í þessari reglugerð. Því verður…Lesa meira

true

Sjúkraþjálfun Akraness opnuð á næstu vikum

Sjúkraþjálfun Akraness verður opnuð á næstu vikum. Það eru þau Gunnar Smári Jónbjörnsson, Einar Harðarson, Anna Sólveig Smáradóttir og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir sem hafa sameinað krafta sína og munu opna Sjúkraþjálfun Akraness við Suðurgötu 126. „Við erum þar með efri hæðina og salinn á neðri hæð. Þetta eru yfir 300 fermetrar og það verður aðstaða…Lesa meira

true

Átta hundruð milljónum varið til að efla sumarnám

Stjórnvöld hafa ákveðið að veita 800 milljónum króna til framhalds- og háskóla svo unnt sé að bjóða námsmönnum upp á sumarnám á komandi sumri. Sporna á gegn atvinnuleysi meðal ungs fólks og efla menntun. Gert er ráð fyrir 500 milljónum króna í sumarnám á háskólastigi og 300 milljónum króna í sumarnám á framhaldsskólastigi. Á framhaldsskólastigi…Lesa meira

true

Matvælasjóður kemur í stað Framleiðnisjóðs og AVS

Til að efla nýsköpun og þróun í innlendri matvælaframleiðslu verður settur á fót svokallaður Matvælasjóður og verður 500 milljónum króna úr ríkissjóði varið til stofnunar hans á þessu ári. Stofnun sjóðsins er hluti af öðrum áfanga aðgerða ríkisstjórnarinnar til að bregðast við áhrifum COVID-19. Matvælasjóður mun hafa það hlutverk að styrkja þróun og nýsköpun við…Lesa meira

true

Umfangsmikil leit að tíu ára dreng

Um nónbil í dag voru björgunarsveitir á Vesturlandi og suðvesturhorni landsins kallaðar út til leitar að tíu ára dreng. Hann hafði orðið viðskila við foreldra sína við Hreðavatn í Norðurárdal. Þegar mest var voru um tvö hundruð manns við leit. Tæpum þremur tímum síðar fannst drengurinn heill á húfi við Grábrók eftir ábendingar frá fólki…Lesa meira

true

Engin ný smit á Vesturlandi

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi greindust engin ný smit Covid-19 í landshlutanum síðasta sólarhring. Alls hefur 41 greinst með veiruna frá upphafi á Vesturlandi og eru sex þeirra í einangrun; tveir í Stykkishólmi, tveir í Borgarnesi og tveir á Akranesi. 13 eru í sóttkví.Lesa meira

true

Spyrja hvernig sé að reka fyrirtæki í Borgarbyggð

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að gerð markaðsstefnumótunar í samstarfi við markaðsstofuna Manhattan. Verkefnið felst í að búa til heildstæða markaðsstefnumótun og aðgerðaáætlun fyrir Borgarbyggð sem spennandi stað til að búa á, starfa, reka fyrirtæki og heimsækja. „Þessi könnun er sérstaklega fyrir þá aðila sem að reka fyrirtæki í Borgarbyggð. Lögð er áhersla…Lesa meira

true

Guðmundur Franklín býður sig fram til forseta Íslands

Guðmundur Franklín Jónsson, viðskipta- og hagfræðingur, hefur gefið kost á sér til embættis forseta Íslands. Þar með er hann fyrstur til að lýsa yfir mótframboði gegn sitjandi forseta; Guðna Th Jóhannessyni, sem lýst hefur því yfir að hann gefi kost á sér til endurkjörs þegar kosið verður í júní. Framboð sitt tilkynnti Guðmundur Franklín með…Lesa meira

true

Um fimmtíu þúsund manns fá greiddar atvinnuleysisbætur

Vinnumálstofnun fær allt að 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til reksturs stofnunarinnar vegna aukinna verkefna í tengslum við COVID-19. Fjárveitingin verður nýtt til að ráða 35 einstaklinga til starfa, tímabundið til sex mánaða, en mikil þörf er fyrir aukinn mannafla hjá stofnuninni. Þá verður ýmis stoðþjónusta efld, svo sem tölvuþjónusta og upplýsingagjöf um ýmsa tölfræði, auk…Lesa meira

true

Ýmsar aðgerðir í þágu nýsköpunar í aðgerðarpakka tvö

Efling nýsköpunar, fjármögnun sprota- og nýsköpunarfyrirtækja í samvinnu við fjárfesta og aðgerðir fyrir ferðaþjónustu til framtíðar eru meðal áhersluatriða stjórnvalda í viðspyrnu vegna áhrifa COVID-19 heimsfaraldursins. Þessir liðir, auk almennra aðgerða munu nýtast ferðaþjónustunni, nýsköpunarfyrirtækjum og öðrum rekstraraðilum til framtíðar. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir að í viðspyrnunni nú sé sérstaklega…Lesa meira