Fréttir

true

ÍE skimar fyrir Covid-19 í Borgarnesi í næstu viku

Starfsfólk Íslenskrar erfðagreiningar hefur sem kunnugt er farið um landið og tekið strokpróf á völdum stöðum vegna Covid-19 faraldursins til að greina með sem nákvæmustum hætti útbreiðslu veirunnar. Framundan eru sýnatökur á Patreksfirði, höfuðborgarsvæðinu og í Borgarnesi. Nú býður fyrirtækið skjólstæðingum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Borgarnesi upp á skimun fyrir Covid-19 dagana 27., 28., 29. og…Lesa meira

true

Keira Robinson spilar og þjálfar áfram með Skallagrími

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við hina mögnuðu Keiru Robinson um að spila áfram með liðinu í Domino’s deildinni á næsta tímabili. Frá þessu var greint á Facebook síðu félagsins í morgun. Keira, sem er 25 ára gömul og frá Bandaríkjunum, átti frábært tímabil með Skallagrími í vetur. Hún lék aðalhlutverkið í vörn og sókn og…Lesa meira

true

Gluggaljósmyndasýning á bókasafni

Ljósmyndasafn Akraness býður bæjarbúum að mæta á ljósmyndasýning í glugga Bókasafns Akraness við Dalbraut. Settar verða upp tvær skemmtilegar myndir af Akranesi í viku hverri. Þær fyrstu fóru upp í gær og munu hanga í glugganum í viku, en þá koma nýjar myndir upp. Í vinstra horni hvers ramma er „QR code“ sem hægt er…Lesa meira

true

Kynningarátak til hvatningar um að velja íslenskt

Atvinnuvegaráðherrarnir Kristján Þór Júlíusson og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir hafa undirritað samning um sameiginlegt kynningarátak stjórnvalda og atvinnulífs um að verja störf og auka verðmætasköpun undir heitinu; Íslenskt – gjörið svo vel. Ríkið mun leggja 100 milljónir króna til verkefnisins sem verður nýtt í fjármögnun á hönnun, framleiðslu og birtingu kynningarefnis. Markmið samningsins er að…Lesa meira

true

Leggja til frystingu launa þingmanna

Þingflokkur Pírata hefur ásamt þingflokkum Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Andrési Inga Jónssyni, lagt fram frumvarp um að fella niður launahækkun þingmanna og ráðherra frá 1. janúar 2020 og leiðrétta laun þeirra þannig að öll afturvirk réttindi frá þeim tíma falli niður. Með frumvarpinu er einnig lagt til að laun þingmanna og ráðherra verði fryst fram…Lesa meira

true

Áform um tvö fjölbýlishús við Garðabraut

Akraneskaupstaður samþykkti snemma í aprílmánuði að auglýsa tillögu að deiliskipulagi við Garðabraut 1 þar í bæ. Þar stendur félagsheimili sem KFUM og K lét byggja á sínum tíma. Félagið seldi eignina 2017 en eftir gjaldþrot kaupanda og greiðsluþot var sölunni rift og eignin aftur komin í hendur félagsins. Lóðin sem húsið stendur á hefur alla…Lesa meira

true

Plokkað á morgun um allt Akranes

Líkt og undanfarin ár ætlar Íþróttabandalag Akraness í samvinnu við Akraneskaupstað að taka þátt og hreinsa rusl í bænum og við strandlengjuna á morgun, laugardaginn 25. apríl. Þátttakan er ekki bundin við iðkendur heldur geta foreldrar og systkini tekið til hendinni og unnið sameiginlegt samfélagsverkefni og stutt um leið við sitt félag. Prýðileg veðurspá er…Lesa meira

true

Vélhjólaslys við Akranes

Maður féll af hjóli og slasaðist í mótocrossbrautinni í Garðaflóa við Akranes í gærkvöldi. Björgunarfélag Akraness var kallað út til aðstoðar við að flytja hinn slasaða í sjúkrabíl. Þaðan var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar. Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi liggja ekki fyrir upplýsingar um líðan mannsins.Lesa meira

true

Landssýning kynbótahrossa á Hellu í lok júní

Félag hrossabænda hefur ákveðið að blása til landssýningar á kynbótahrossum laugardaginn 27. júní á Rangárbökkum við Hellu. Þar verða tíu efstu hross landsins, eftir dóma vorsins, ítarlega kynnt og verðlaunuð, í öllum flokkum hryssa og stóðhesta. Einnig verða afkvæmasýningar en þeir stóðhestar sem eiga rétt á fyrstu- og heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi geta komið fram á…Lesa meira

true

Engar hvalveiðar í sumar

Hvalveiðar verða ekki stundaðar í sumar samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í dag. Þar er haft eftir Kristjáni Loftssyni forstjóra Hvals hf. að helsta ástæða þeirrar ákvörðunar byggi á því að erfitt sé að keppa við niðurgreiddar hvalveiðar Japana, þar sem markaður fyrir hvalaafurðir er. Þarlend stjórnvöld hafa sagt sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu og stunda niðurgreiddar…Lesa meira