Fréttir

true

Arfleiddi Landbúnaðarháskólann að 200 milljónum króna

Við lok síðasta árs féll frá á 93. aldursári Magnús Óskarsson fyrrum kennari og tilraunastjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands. Magnús helgaði skólanum allan sinn starfsaldur og bar hag hans einatt fyrir brjósti. Nýverið kom í ljós að Magnús arfleiddi Landbúnaðarháskólann að öllum sínum eignum, en áætlað er að þær nemi um 200 milljónum króna. Frá þessu…Lesa meira

true

Atli áfram með Skallagrím

Haffi Gunn verður aðstoðarþjálfari Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur endurráðið Atla Aðalsteinsson sem þjálfara meistaraflokks karla. Atli byrjaði síðasta keppnistímabil sem aðstoðarþjálfari en tók við stjórn liðsins eftir að Manuel Rodriguez var látinn taka pokann sinn. Samningur Atla gildir til þriggja ára. Þá hefur sömuleiðis verið gengið frá samningum við Hafþór Inga Gunnarsson og mun hann gegna…Lesa meira

true

Skólahald kemst að mestu í eðlilegt horf eftir 4. maí

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi, unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta…Lesa meira

true

Markmiðið að stytta sauðburðinn fór út um þúfur

Á bænum Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal er blönduð starfsemi, ferðaþjónusta með gistingu í litlum gestahúsum, hestamiðstöð auk þess sem þar eru ríflega 600 kinda fjárbú. Þar sem svo mikil starfsemi er þarf að huga vel að öllu skipulagi svo starfið gangi smurt. „Við reynum að ramma vel inn tímasetningar og stílum inn á að hafa sauðburð…Lesa meira

true

Akandi eltihrellir

Á föstudagskvöld hafði ökumaður samband við lögreglu og kvaðst vera hræddur um að verið væri að elta sig, sagði sama bílinn hafa fylgt sér úr Mosfellsbæ og upp á Akranes. Lögregla kannaði málið, hafði upp á umræddum manni sem viðurkenndi að hann hefði vissulega elt bílinn og gaf þær skýringar að hann teldi að hinn…Lesa meira

true

Miðað við að boltinn byrji í júní

Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að hefja undirbúning á því að keppni í Íslandsmótinu í knattspyrnu geti hafist í júní. Er ákvörðunin tekin með þeim fyrirvara að staðan í þjóðfélaginu verði orðin þannig að almannavarnir heimili leikjum að fara fram. Öll mót verða því tekin úr birtingu á vef KSÍ og birt að nýju þegar búið…Lesa meira

true

Ákvörðun um umhverfismat felld úr gildi vegna formgalla

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Ógildingin er vegna formgalla, þar sem Skipulagsstofnun vísaði að mati ÚÚA í ranga lagagrein. Ákvörðunin breytir því hins vegar ekki að Vegagerðin mun ljúka umhverfismatinu, en vinna við það er á lokametrunum. Úrskurðurinn féll…Lesa meira

true

Mest ánægja hér á landi með viðbrögð stjórnvalda

96% aðspurðra á Íslandi telja að stjórnvöld standi sig vel í viðureigninni við kórónuveiruna. Íslendingar eru ánægðastir allra þjóða með frammistöðu sinna stjórnvalda vegna COVID-19 samkvæmt alþjóðlegri könnun Gallups. Könnunin var gerð víðs vegar um heiminn í þessum mánuði en Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem tekur þátt. Næstir á eftir Íslendingum þegar kemur að áliti…Lesa meira

true

Eitt nýtt smit

Eitt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring og hefur samtals 41 smit greinst í landshlutanum, skv. nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Smitið sem um ræðir greindist í Stykkishólmi, þar sem nú eru fimm smitaðir. Flest smit hafa greinst út frá heilsugæslustöðinni í Borgarnesi, eða 22, tólf á Akranesi, eitt í Grundarfirði og…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma á morgun á Laugargerðislínu

Á morgun, miðvikudag, verður rafmagnslaust á Laugagerðislínu á Snæfellsnesi frá Skógarnesi að Fíflholtum á Mýrum, að því er fram kemur á vef Rarik á Vesturlandi. Gera má ráð fyrir rafmagnsleysinu frá klukkan 10-16 en nánari upplýsingar veitir Rarik á Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira