
Starfsfólk Skessuhorns óskar lesendum sínum til sjávar og sveita gleðilegs sumars og þakkar veturinn. Megi allir hafa það sem best nú þegar sól hækkar á lofti.Lesa meira

Starfsfólk Skessuhorns óskar lesendum sínum til sjávar og sveita gleðilegs sumars og þakkar veturinn. Megi allir hafa það sem best nú þegar sól hækkar á lofti.Lesa meira

Guðmundur R. Lúðvíksson er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann fluttist að heiman ungur að árum en kveðst aldrei hafa getað slitið ræturnar. „Ég er búinn að vera nokkur ár í burtu, 52 ár, eitthvað svoleiðis,“ segir hann. „Ég hef aldrei getað slitið ræturnar. Hérna er alltaf heima, sama þó ég hafi búið út um…Lesa meira

Hætta skapaðist á árekstri Breiðarfjarðarferjunnar Baldurs og þangskipsins Grettis á siglingu þeirra um Breiðafjörð 16. ágúst í fyrra. Stjórnendur beggja skipanna hefðu báðir mátt sýna meiri aðgæslu og ræða saman í talstöð um fyrirætlanir sínar. Hefði það verið gert eru allar líkur á að engin árekstrarhætta hefði skapast. Þetta er niðurstaða sérfræðiálits sem sjóslysasvið Rannsóknarnefndar…Lesa meira

Lögreglan á Vesturlandi hefur orðið þess vör að umferð er farin að aukast miðað við það sem verið hefur undanfarnar vikur. Fylgifiskur þess er að hraðakstursmál eru töluvert fleiri en verið hefur upp á síðkastið. Einn ökumaður var tekin á 127 km hraða á klst. á Vesturlandsvegi á móts við Munaðarnes í Borgarfirði og þarf…Lesa meira

Fyrir nokkrum vikum hófust á samfélagsmiðlum áheitaleikir þar sem stuðningsmenn íþróttafélaga, sem mörg hver glíma við fjárhagserfiðleika um þessar mundir, hétu á félög sín. Fyrir hvert „like“ eða deilingu til dæmis á Facebook heita menn 25 krónum. Leggja þvínæst upphæðina úr eigin vasa inn á söfnunarreikning félagsins. Meðal þeirra stuðningsmanna sem farið hafa þessa leið…Lesa meira

Ekkert nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti núna fyrir hádegi. Heildarfjöldi greindra smita stendur því enn í 41 smiti. Einn hefur lokið einangrun síðan í gær sem þýðir að í dag eru aðeins átta manns í einangrun í landshlutanum. 24 eru í sóttkví, sem er…Lesa meira

Heilbrigðisráðherra hefur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis breytt gildandi reglum um sóttkví. Með nýjum reglum verður öllum sem koma til landsins skylt að fara í sóttkví í 14 daga frá komu. Samhliða verður tekið upp tímabundið landamæraeftirlit á innri landamærum. Reglurnar koma til framkvæmda föstudaginn 24. apríl og falla að óbreyttu úr gildi 15. maí.…Lesa meira

Vinnuflokkur frá Malbikunarstöðinni Höfða er í dag staddur á Akranesi við malbikun Esjubrautar. Framkvæmdir við seinni áfanga gatnagerðar á Esjubraut, frá gatnamótum Smiðjuvalla og Dalbrautar að hringtorginu við Þjóðbraut, hófst eftir hlé í síðustu viku. Framundan er svo lokafrágangur við götuna, svo sem við umferðareyjar, gangstéttar, skilti og fleira slíkt. Á meðan þeirri vinnu stendur…Lesa meira

Töluverðar framkvæmdir eru að hefjast við Akraneskirkju. Að undanförnu hefur verið málað innandyra og hefur tíminn nýst vel vegna takmarkana á samkomuhaldi. Stærsta einstaka framkvæmdin verður að skipta um klæðningu utan á kirkunni. „Klæðningin er farin að láta á sjá, einkum á norðurhliðinni, en húsaklæðningar hér á Akranesi hafa tilhneygingu til að fara illa vegna…Lesa meira

Líklega eru ekki mörg dæmi um að sami einstaklingur hafi tvisvar sinnum keypt sömu húseignina og í bæði skiptin séð eftir því. „Það er oft sagt að vítin séu til að varast þau. Það á kannski við um mig og þetta hús hér á Akranesi. En þetta fyrrum hótel og skemmtistaður hefur í tvígang orðið…Lesa meira