Fréttir

true

Hafa opið til víxl á veitingastöðunum

Veitingahúsin Narfeyrarstofa og Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hafa tekið höndum saman og hafa opið á víxl aðra hverja viku. Þetta er gert í hagræðingarskini meðan lítið er af ferðafólki og þannig reynt að bregðast við því fordæmalausa ástandi sem nú ríkir. Fjöldi starfsfólks á veitingastöðunum er nú í lágmarki. Þessi ráðstöfun gerir það að verkum að…Lesa meira

true

Búnir að grafa vélageymslu í jökulinn

Borgfirskir verktakar hafa með hléum frá því síðasta haust unnið við að grafa nýjan íshelli í Langjökul sem ætluð er til geymslu fyrir tæki og tól sem fylgja útgerð jöklaskoðunarfyrirtækisins Into the Glacier. Verkið var unnið þannig að nýtt op var grafið inn í jökulinn skammt frá opinu sem ferðamenn fara um. Eftir að búið…Lesa meira

true

Eldri borgarar á útskurðarnámskeiði

Í vetur hefur staðið yfir útskurðar- og tálgunarnámskeið í handverksaðstöðu Félags eldri borgara í Snæfellsbæ. Í húsnæðinu er góð aðstaða sem alltaf er þó verið að endurbæta. Þar hafa sex konur verið að læra að skera út og tálga undir handleiðslu Jóns Guðmundssonar. Nýverið bættist svo einn karlmaður í nemendahópinn sem þá telur sjö. Jón…Lesa meira

true

Bræður byggja hlið við hlið

Tvö ný hús í gömlum stíl eru nú í byggingu í gamla bænum á Akranesi, nánar til tekið við Vesturgötu 49 og 51. „Við bræður erum að byggja þarna hlið við hlið,“ segir Björn Ólafur Guðmundsson í samtali við Skessuhorn. Hann ætlar að flytja inn í húsið að Vesturgötu 51 ásamt Guðnýju Rós Þorsteinsdóttur og…Lesa meira

true

Matur er til að nærast en ekki hafa á heilanum

Systurnar Ólöf Helga og Margrét Þóra (kölluð Gréta) Jónsdætur hafa alla tíð verið mjög nánar, enda bara eitt skólaár milli þeirra. Þær eiga sömu áhugamál, sömu vinkonur og fóru báðar í sama nám. Eftir að þær luku grunnnámi í líffræði við Háskóla Íslands fóru þær í framhaldsnám í næringarfræði, Gréta í mastersnám og Ólöf í…Lesa meira

true

Á leið til Bandaríkjanna í meðferð sem gæti bætt líf hennar til muna

Sólveig Sigurðardóttir á Akranesi, eða Sissa eins og flestir þekkja hana, fékk heilablóðfall í september 2006 sem umturnaði lífi hennar. Sissa lamaðist í vinstri hlið líkamans auk þess sem það blæddi yfir á sjónsviðið hjá henni svo hún getur ekkert séð vinstra megin við sig. Ef allt gengur eftir gæti líf Sissu enn á ný…Lesa meira

true

Styttur afgreiðslutími í útibúum Landsbankans

Landsbankinn hefur ákveðið að gera tímabundnar breytingar á afgreiðslutíma í hluta af útibúum bankans á landsbyggðinni. Breytingarnar tóku gildi í dag, 18. mars. Afgreiðslutími verður styttur í útibúum bankans á nokkrum stöðum, þar á meðal á Akranesi og í Snæfellsbæ, og verða þau opin frá kl. 10-15 í stað 9-16. Á Akranes gildi sami opnunartími…Lesa meira

true

Keppni hætt í körfunni

Ekki verður keppt meira í Íslandsmótinu í körfuknattleik á yfirstandandi keppnistímabili. Stjórn KKÍ samþykkti á fundi sínum í dag að hætta keppni í tveimur efstu deildum karla og kvenna vegna Covid-19 veirunnar. Áður hafði verið ákveðið að hætta keppni í neðri deildum og Íslandsmóti yngri flokka. Engir Íslandsmeistarar verða krýndir í meistaraflokkum karla og kvenna…Lesa meira

true

Slá í samkomubanni á létta strengi í Teams

Starfsmenn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) eru 53 talsins og starfa þeir á þrettán starfsstöðvum vítt og breitt um landið. Frá stofnun RML hafa starfsmenn notað fjarfundarbúnað mikið og unnið saman í gegnum Teams samskiptaforritið í verkefnum og geta þar tengst viðskiptavinum á fundum. Þessi reynsla kemur að góðum notum nú þegar bein samskipti fólks eru beinlínis…Lesa meira

true

Eurovisjón aflýst

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem átti að fara fram í maí í Rotterdam í Hollandi, hefur verið aflýst vegna COVID-19 faraldursins. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá að í tilkynningu frá EBU komi fram að vegna óvissuástandsins vegna útbreiðslu veirunnar og takmarkana ýmissa ríkisstjórna álfunnar á ferðafrelsi, neyðist aðstandendur keppninnar til þess að aflýsa henni. Þeir segja ákvörðunina…Lesa meira