Fréttir

true

Leggur til að sveitarfélög gefi afslátt af fasteignaskatti

Pétur Davíðsson, sem sæti á í hreppsnefnd Skorradalshrepps, hefur ritað Sigurði Inga Jóhannssyni sveitarstjórnarráðherra og Aldísi Hafsteinsdóttur formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga bréf. Þar leggur hann til, í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu og bágrar stöðu fyrirtækja, að sveitarfélög skoði að lækka fasteignaskatt á atvinnuhúsnæði. „Ég tel augljóst að það verður að gefa eftir hluta af fasteignaskatti…Lesa meira

true

Vill skrá knattspyrnusögu Akraness

Björn Þór Björnsson sagnfræðingur hefur hug á því að rita sögu knattspyrnunnar á Akranesi, í tilefni af aldarafmæli knattspyrnunnar þar í bæ árið 2022. Miðar hann við stofnun Kára, fyrsta knattspyrnufélags bæjarins, sem stofnað var 26. maí 1922 af ungum drengjum á aldrinum 11-14 ára. Allar götur síðan hefur knattspyrnan skipað stóran sess í lífi…Lesa meira

true

Gegningamenn voru einangraðir í kirkju staðarins

Á Facebook Hvanneyrarbúsins voru í gær rifjaðar upp aðstæður sem sköpuðuðst á Hvanneyri þegar spænska veikin herjaði á landsmenn fyrir ríflega einni öld. Minnt er á að nú eru uppi fordæmalausir tímar fyrir allflesta núlifandi Íslendinga. Þá segir: „Það er samt ekki svo að skæðir faraldrar hafi ekki gengið áður yfir og núna er oft…Lesa meira

true

Brekkubæjarskóli ber nú titilinn „eTwinning skóli“

Í gær var tilkynnt hvaða skólar í Evrópu hljóta viðurkenninguna „eTwinning skóli“ til næstu tveggja ára. Níu skólar hér á landi munu bera titilinn og er Brekkubæjarskóli á Akranesi þeirra á meðal. Hinir skólarnir átta eru Grunnskóli Bolungarvíkur, Hamraskóli, Heilsuleikskólinn Skógarás, Leikskólinn Furugrund, Leikskólinn Holt, Norðlingaskóli, Selásskóli og Setbergsskóli. eTwinning skólar eru nú ellefu talsins…Lesa meira

true

Jarðskjálfti á Reykjanesi

Nú laust eftir klukkan 10:30 varð jarðskjálfti, 4,2 á Richter, um þrjá kílómetra norðvestur af Gunnuhver á Reykjanesi. Skjálftinn fannst víða á Reykjanesi og nokkrir smærri eftirskjálftar hafa mælst. „Niðurstöður jarðskorpumælinga við Þorbjörn sýna að þensla sem veldur landrisi er hafin að nýju. Landrisið er nú hægara en það sem mældist í lok janúar en…Lesa meira

true

Mörg spennandi tækifæri fyrir Háskólann á Bifröst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík var ráðin í starf rektors Háskólans á Bifröst í ársbyrjun. Hún tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi en hefur verið iðin þetta misserið við að hitta starfsfólk og stjórnendur skólans og hagsmunaaðila og setja sig inn í starf rektorsins. Skessuhorn hitti Margréti að máli síðastliðinn fimmtudag og ræddi við hana um hana…Lesa meira

true

Hafi samband símleiðis telji fólk sig smitað

Almannavarnanefnd Vesturlands bendir á að þeir sem telja sig smitaða af COVID-19 kórónaveirunni skulu hafa samband símleiðis við heilsugæslu á svæðinu á dagvinnutíma, eða í gegnum netspjallið á www.heilsuvera.is. Einnig má hafa samband í síma 1700 þar sem heilbrigðisstarfsfólk situr fyrir svörum og gefur ráðleggingar. Mikilvægt er að fara að þessum ráðum, en fara ekki…Lesa meira

true

Enginn samgangur milli lögreglustöðva

Lögreglan á Vesturlandi hefur gripið til ýmissa ráðstafana vegna COVID-19 faraldursins. Enginn samgangur er á milli lögreglustöðvanna sex í umdæminu. Þar að auki hefur stöðinni á Akranesi verið skipt upp í tvö hólf og ekki er samngangur þar á milli. Yfirlögregluþjónn og aðstoðaryfirlögregluþjónn munu skiptast á að vinna heima, viku í senn, næstu vikurnar. Ásmundur…Lesa meira

true

Óskað er eftir fólki í bakvarðaveitina

„Í ljósi atburða síðustu daga og vikna er varðar heimsfaraldur Covid-19 er ljóst að útbreiðsla veirunnar gæti orðið til þess að valda erfiðleikum í veitingu þjónustu og skapað álag á vissum starfsstöðvum. Við slíkar aðstæður er brýnt að tryggja lögbundna þjónustu og aðstoð til viðkvæmustu hópanna. Því hefur verið ákveðið að fara af stað með…Lesa meira

true

Vetrarfærð víða

Vetrarfærð er á vegum víða um landið vegna snjókomu undanfarinna daga og margar leiðir þungfærar eða hreinlega ófærar. Ófært er um Svínadal, Vatnaleið, á sunnanverðu Snæfellsnesi, um Fróðárheiði og einnig er Útnesvegur ófær. Hált er á eða snjóþekja á norðanverðu Snæfellsnesi. Hálka eða hálkublettir eru á Bröttubrekku og í Borgarfirði og hálka á Vesturlandsvegi undir…Lesa meira