Fréttir

true

Heilsurækt í heimasóttkví

Yfirstandandi samkomubann og COVID-19 veiran hefur haft töluverð áhrif á samfélagið allt. Margir landsmenn hafa þurft að sitja heima í sóttkví og mun þeim eflaust fjölga. Slík einangrun getur verið erfið fyrir andlega heilsu og er því mikilvægt að fólk hlúi vel að sér meðan þetta varir. Hreyfing getur gert kraftaverk fyrir andlega heilsu og…Lesa meira

true

Snjóflóð þveraði veginn við Búlandshöfða

Snjóflóð féll í Búlandshöfða á Snæfellsnesi í fyrrinótt. Ekki var um stórt flóð að ræða en samt það stórt að það náði yfir þjóðveginn. Aðeins fjórhjóladrifnir bílar komust fram hjá því. Er þetta annað snjóflóðið sem fellur í vetur en það fyrra var töluvert minna. Óalgengt er að það falli snjóflóð í Búlandshöfðanum og það…Lesa meira

true

Spurði ráðherra um öryggisþætti í jarðgöngum

Jarðgöng, öryggismál og umferðarþjónusta var efni fyrirspurnar sem Guðjón S. Brjánsson þingmaður Samfylkingarinnar í NV kjördæmi lagði fram á dögunum fyrir Sigurð Inga Jóhansson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Guðjón spurði hvernig veigamestu þættir öryggismála í jarðgöngum hér á landi væru skilgreindir, hvort öryggismál, öryggiseftirlit og umferðarþjónusta í jarðgöngum væri samræmd og hvernig aðstæður væru með tilliti…Lesa meira

true

Skagfirðingar landa í Grundarfirði

Skipin Drangey SK 2 og Málmey SK 1 voru bæði í Grundarfjarðarhöfn í gær. Skipin voru að landa hátt í fjögurhundruð tonnum af afla þar sem megin uppistaðan var þorskur. Drangey SK 2 landaði einnig í Grundarfirði miðvikudaginn 11. mars en þá var landað úr skipinu 193 tonnum af afla. Það hefur því töluvert aflamagn…Lesa meira

true

Ótrúlega öðruvísi dagar þegar útgöngubann er í gildi

Íslenskir ferðamenn á Spáni fá ekki að njóta náttúrunnar og útiveru eins og til stóð eftir að þarlend yfirvöld settu útgöngubann um helgina. Nú bíða því flestir ferðalangar eftir að komast í fyrsta flug heim. „Þetta eru ótrúlega öðruvísi dagar sem við erum að upplifa núna og í raun bara beðið eftir að skoða heimferð…Lesa meira

true

Samþykktu frumvarp um greiðslufrest opinberra gjalda

Alþingi hefur samþykkt frumvarp ríkisstjórnarinnar um tvískiptingu á gjalddaga staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds. Breytingin felur í sér að í stað þess að greiða eigi alla kröfuna í dag, mánudaginn 16. mars, verður greiðsla hennar tvískipt. Fyrri helmingur greiðslunnar er með gjalddaga 1. mars og eindaga mánudaginn 16. mars 2020. Seinni helmingur er með gjalddaga…Lesa meira

true

Skipulag grunnskólastarfsins gjörbreytt og tekur mið af aðstæðum

Starfsfólk allra grunnskóla í landinu stóð í morgun fyrir þeirri áskorun að skipuleggja skólastarf næstu vikna út frá ákveðinni forskrift, út frá gjörbreyttum veruleika í kjölfar þess að yfirvöld ákváðu á föstudaginn að leik- og grunnskólar starfi áfram þrátt fyrir Covid-19 faraldurinn. Helsta áskorun skólafólks felst í að einangra nemendur og starfsfólk í smærri hópa,…Lesa meira

true

Færa kennslu unglingastigs í íþróttahús bæjarins

Vegna Kórónaveirunnar stefnir Grunnskólinn í Grundarfirði á að halda úti fullum skóladegi fyrir alla nemendur, alla daga, ef annað kemur ekki upp. Í fréttapistli sem Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri sendi frá sér í gær kemur m.a. fram að unglingastigi verður kennt í íþróttahúsinu, sem alfarið verður tekið undir skólastarfið. Með því fæst ekki aðeins aukið rými…Lesa meira

true

Skipuleggja menningarstarf á tímum samkomubanns

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur kallað saman samráðshóp lykilaðila í menningarmálum um land allt til þess að vinna að því mikilvæga verkefni að halda uppi starfsemi listastofnana og safna við þær aðstæður sem skapast hafa í íslensku samfélagi. „Það liggur fyrir að samkomubannið mun hafa víðtæk áhrif og ekki síst á menningarlífið. Menning er mikilvægur þáttur…Lesa meira

true

Bjuggu nemendur strax á föstudaginn undir breytt fyrirkomulag

Stjórnendur í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi brugðust snöggt við á föstudaginn þegar stjórnvöld voru búin að gefa það út að samkomubann yrði sett frá og með mánudegi og að framhaldsskólum væri ekki leyft að starfa með hefðbundnu sniði þannig að nemendur mættu í skóla sína. Nemendur voru kallaðir á sal og útskýrt það fyrirkomulag sem…Lesa meira