Fréttir

true

Fjöldi smitaðra á landinu kominn í 180

Samkvæmt covid.is hafa nú 180 Íslendingar verið greindir með Covid19 kórónaveiruna. 24 bættust í hópinn í gær. Þrír liggja á sjúkrahúsi. Alls eru 1733 í sóttkví. Enginn hefur enn verið greindur með smit á Vesturlandi en 20 einstaklingum er gert að vera í sóttkví vegna þess að þeir hafa verið í nálægð við smitaða.Lesa meira

true

Samkaup opnar valdar verslanir fyrir eldra fólk og viðkvæma

Samkaup hefur ákveðið að opna tólf verslanir Nettó og fimmtán verslanir Kjörbúðarinnar eingöngu fyrir þá sem eldri eru, með undirliggjandi sjúkdóma eða viðkvæmir. Verslanirnar, sem eru um land allt, verða opnar frá klukkan 9-10 alla virka daga fyrir þessa tilteknu hópa, frá og með þriðjudeginum 17. mars og á meðan samgöngubann er í gildi. Þetta…Lesa meira

true

Knattspyrnuleikjum frestað

Öllum knattspyrnuleikjum á vegum Knattspyrnusambands Íslands hefur verið frestað í ljósi samkomubanns sem lýst var yfir á föstudag. Stjórn KSÍ ákvað því að fresta öllum leikjum á vegum sambandsins, landsliðsæfingum og tengdum viðburðum á meðan samkomubann er í gildi. Stjórnin hvatti aðildarfélög sín til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu…Lesa meira

true

Keppni hætt í mörgum deildum og flokkum

Íslandsmótinu í körfuknattleik er lokið í 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla, unglingaflokki karla, stúlknaflokki, drengjaflokki, 10., 9., 8., og 7. flokkum drengja og stúlkna sem og í minnibolta 9, 10 og 11 ára drengja og stúlkna. Enginn deildar- eða Íslandsmeistari verður krýndur í þessum deildum og flokkum. Mótanefnd og stjórn Körfuknattleikssambands Íslands…Lesa meira

true

Lestrarklefinn ætlar að frumbirta texta

Lestrarklefinn auglýsti á dögunum eftir textum til að frumbirta á vefsíðu sinni. Hugmyndin er að birta texta eftir nýja, gamla, reynda eða óreynda höfunda í þeim tilgangi að koma nýjum höfundum á framfæri. „Þetta er einstakt tækifæri fyrir marga til að stíga út fyrir þægindarammann og þekktari höfunda að viðra nýja texta,“ segir í auglýsingunni.…Lesa meira

true

Landsréttur staðfestir dóm um Reykjadalsá

Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness frá 23. janúar síðastliðnum. Í héraðsdómi var vísað frá dómi máli sem Stangaveiðifélag Keflavíkur höfðaði gegn Fiskistofu og Fiskræktar- og veiðifélagi Reykjadalsár í Borgarfirði. Fyrir héraðsdómi krafðist félagið að felld yrði úr gildi stjórnvaldsákvörðun Fiskistofu frá 15. janúar 2019 þar sem felldur var úr gildi samningur sem meirihluti stjórnar…Lesa meira

true

Samþykkja að selja félagsheimilið Valfell

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var tekin fyrir sala á félagsheimilinu Valfelli í Borgarhreppi. Byggðarráð hafði áður lagt til að félagsheimilið yrði selt en einnig að eigendum lögbýlisins Brennistaða verði veitt tækifæri til að nýta forkaupsrétt á eigninni og lagði þá ákvörðun fyrir sveitarstjórn til staðfestingar. Sveitarstjórn staðfesti fyrri afgreiðslu byggðarráðs með átta atkvæðum.…Lesa meira

true

Viðvörun vegna hríðarveðurs

Í dag gengur í suðvestan 13-20 m/s og dregur ört úr frosti. Heldur hægari vindur sunnan- og austantil á landinu. Gul viðvörun er víða í gildi en á Vestfjörðum er hún appelsínugul. Veðurfræðingar benda á að það muni ganga í suðaustan- og austan hvassviðri eða storm í nótt með snjókomu, slyddu eða rigningu. Veðrið hér…Lesa meira

true

Skimun ÍE bendir til að veiran sé ekki útbreidd

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði í morgun í Ríkissjónvarpinu að fyrstu niðurstöður skimunar hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) bendi til þess að um eitt prósent þeirra sem komu í skimun í gær sé smitað af COVID-19. Þórólfur tók það fram að rýna þurfi betur í þessar niðurstöður, en vísbending sé um að veiran sé ekki orðin útbreidd…Lesa meira

true

Átján í sóttkví á Vesturlandi en enginn smitaður

Í gær voru 17 ný tilfelli smitaðra af Covid-19 veirunni greind hér á landi og hefur því 161 veikst. Tekin hafa verið sýni úr 1868 einstaklingum. Hér á Vesturlandi eru átján manns í sóttkví vegna veirunnar en enginn hefur greinst með hana. Þetta og fjölmargt fleira um þróun og útbreiðslu veirunnar má lesa á upplýsingavefnum…Lesa meira