Fréttir

true

Akrafjallsvegi lokað í sólarhring á móts við Litlu Fellsöxl

Í kvöld, mánudaginn 9. mars klukkan 20:00, verður Akrafjallsvegi lokað vegna vinnu við endurnýjun aðveitulagnar frá Deildartunguhver að Akranesi. Taka þarf veginn í sundur til að koma lögninni undir þjóðveginn. Umferð verður á meðan beint suður fyrir Akrafjall, en áætlað er að þær taki sólarhring. Vinna mun hefjast í kvöld klukkan 20:00 og stendur fram…Lesa meira

true

Leiðir skildu í seinni hálfleik

Snæfell beið lægri hlut gegn Álftanesi þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik tóku gestirnir stjórnina í þeim síðari og sigruðu að lokum með 13 stigum, 77-90. Jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta og þau skiptust á að leiða.…Lesa meira

true

Tap eftir tvíframlengdan leik

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn Hamri eftir tvíframlengdan leik, 109-122, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Gestirnir frá Hveragerði höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks en Skallagrímsmenn fylgdu fast á hæla þeirra. Þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta leikhluta náðu Borgnesingar góðum kafla og…Lesa meira

true

Strangari skilyrði við afhendingu lyfja í apótekum

Á morgun, þriðjudaginn 10. mars, ganga í gildi breytingar sem varða afhendingu lyfja í apótekum. Eftir það verður einungis heimilt að afhenda lyf eiganda lyfjaávísunar, eða þeim sem hefur ótvírætt umboð hans til að fá þau afhent. Framvísa þarf persónuskilríkjum hvort sem um ræðir eiganda eða umboðsmann. Í tilkynningu Lyfjastofnunar kemur fram að krafa um…Lesa meira

true

Byrja að rukka viðskiptavini fyrir kaffið í þágu umhverfisins

„Á liðnum árum höfum við gefið Vinahópnum, viðskiptavinum með kort og lykla frá Olís, 100% afslátt af uppáhelltu kaffi á þjónustustöðvum Olís. Aukin umhverfisvitund kallar á breytingar,“ segir í tilkynningu frá Olís. „Mikið er um óþarfa notkun á kaffi á þjónustustöðvum Olís sem skapar sóun og óþarfa rusl. Í samfélagsumræðunni er hávær krafa um minni…Lesa meira

true

Skerða starfsemi vegna veirunnar

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur ákveðið, í ljósi Kórónaveirunnar, að loka og/eða skerða starfsemi tímabundið í starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir einstaklinga sem eru í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Félagsstarf aldraða að Borgarbraut 65a verður lokað um óákveðinn tíma. Matnum verður ekið út til þeirra sem hafa verið að nýta sér…Lesa meira

true

Lagðar til verulegar kvaðir á notkun flugelda

Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum var kynnt í síðustu viku. Í tillögum starfshópsins kemur m.a. fram að sú mengun sem oft verður um áramót af völdum skotelda hafi óæskileg áhrif á heilsu margra einstaklinga, sérstaklega þeirra sem eru með undirliggjandi heilsufarsvandamál. Starfshópurinn…Lesa meira

true

Arion banki er handhafi íslensku árangursverðlaunanna

Áran, íslensku árangursverðlaunin í markaðssetningu, var afhent í liðinni viku. Verðlaunin hlaut Arion banki fyrir herferðina Arion appið – þægilegri bankaþjónusta. Árangursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita þau. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir Arion appsins eru…Lesa meira

true

Valkyrjur í sjóbaði

Ljósmyndari var á ferð í Brákarey í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Þá var norðaustan kaldi og rúmlega tveggja stiga frost. Þegar kom niður á bryggjuna sá hann þessar þrjár hressu valkyrjur sem svömluðu í ísköldum sjónum, sér til heilsubótar. Sjóböð færast nú í vöxt víða um land og meðal annars hefur hópur fólks í Borgarnesi stundað…Lesa meira

true

Miklar reykskemmdir á bústað í Skorradal

Slökkvilið Borgarbyggðar var klukkan 5:30 í morgun kallað út að sumarbústað í Fitjahlíð í Skorradal. Húsið var orðið fullt af reyk og glóð var komin í vegg við kamínu þegar slökkviliðsmenn bar að garði. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gengu aðgerðir vel og var lokið á um þremur korterum. Einn maður var í húsinu…Lesa meira