Fréttir

true

Einmenningsmeistarar í Borgarfirði

Þrátt fyrir veirufaraldra og aðra óáran sem hrjáir samfélagið er fátt sem býtur á borgfirska briddsspilara. Þeir mættu því sem fyrr í Logaland í gærkvöldi og háðu drengilega keppni, að þessu sinni um heiðursnafnbótina einmenningsmeistari í bridds. Keppnin var æsispennandi frá upphafi til enda og einungis eitt stig sem skyldi þegar upp var staðið á…Lesa meira

true

Ræddi samgöngumál á Akranesi

Þingmennirnir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Líneik Anna Sævarsdóttir héldu opinn fund hjá Framsóknarfélagi Akraness í gær. Samkvæmt fregnum af fundinum bar margt á góma. Ræddi ráðherra um efnahagsmálin, raforkuverð og verðstefnu Landsvirkjunar gagnvart stóriðjunni, áherslumál Framsókarmanna í ríkisstjórn og að sjálfsögðu voru samgöngumál fyrirferðarmikil. Varðandi framkvæmdir á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi kvaðst…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur lokaður til klukkan 20

Akrafjallsvegur á móts við Litlu Fellsöxl hefur verið lokaður frá því í gærkvöldi. Þar er nú unnið við að koma nýrri stofnæð hitaveitu undir veginn. Áætlað er að framkvæmdum ljúki klukkan 20 í kvöld. Þar til er vegfarendum bent á að aka suður fyrir Akrafjall.Lesa meira

true

Ritsmiðjur framundan í Safnahúsi

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars og svo aftur miðvikudaginn 25. mars stendur bókasafn Safnahússins í Borgarnesi fyrir tvenns konar ritsmiðjum í umsjón Sunnu Dísar Másdóttur. Hún er sjálfstætt starfandi bókmenntagagnrýnandi, ritlistarleiðbeinandi og skáld. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 og aðgangur er ókeypis. Skráning í smiðjurnar er fyrirfram, hjá Sævari héraðsbókaverði í síma 433-7200 eða á: bokasafn@safnahus.is.…Lesa meira

true

„Íslensk lopapeysa“ er verndað afurðarheiti

Matvælastofnun hefur samþykkt að heitið Íslensk lopapeysa – Icelandic Lopapeysa verði skráð sem verndað afurðarheiti með vísan til uppruna. Handprjónasamband Íslands sótti um vernd fyrir afurðarheitið.  Þetta er annað afurðarheitið sem hlýtur vernd hérlendis frá því að lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Áður hlaut heitið „Íslenskt lambakjöt“ skráða vernd.Lesa meira

true

Samfés frestar stærsta unglingaviðburði á Íslandi.

Stjórn Samfés, samtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, hefur tekið þá ákvörðun að fresta SamFestingnum 2020 vegna COVID-19. SamFestingurinn sem fara átti fram 20.-21. mars í Laugardalshöll er stærsti unglingaviðburður Íslands þar sem allt að 4.600 ungmenni af öllu landinu koma saman. Undirbúningur fyrir viðburðinn hefur staðið yfir í fleiri mánuði og tilhlökkunin mikil. Frestun…Lesa meira

true

Fákar teknir til kostanna á spegilsléttum ísnum

Áralöng hefð er fyrir því að keppa í ístölti á Vatnshamarsvatni í Andakíl. Að frumkvæði Sveinbjörns Eyjólfssonar í Hvannatúni var blásið til slíks móts í gær. Var það haldið með stuðningi Matfugls. Mótið var vel sótt, ísinn góður og veðrið sömuleiðis. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; flokki 17 ára og yngri, Skvísuflokki og…Lesa meira

true

Ráðstefnu um sameiningu sveitarfélaga frestað

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta ráðstefnu um sameiningu sveitarfélaga sem stóð til að halda á vegum SSV að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit fimmtudaginn 12. mars nk. Það er gert vegna COVID-19 veirunnar. „Því miður er þetta niðurstaðan en vonir standa til að hægt verði að halda ráðstefnuna seinni partinn í maí en það mun…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til uppbyggingar ferðamannastaða og í umhverfismál

Í dag kynntu Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðamála úthlutun peninga úr ríkissjóði til uppbyggingar innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020. Samtals er nú úthlutað rúmum 1,5 milljarði króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram því verkefni að byggja…Lesa meira

true

F.a.B. frestar samverustundum í Brún

„Stjórn Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum hefur ákveðið að samveru í Brún verði frestað um óákveðinn tíma. Fundir sem haldnir eru á miðvikudögum falla niður meðan óvissa í heilbrigðismálum er viðvarandi,“ segir í tilkynningu.Lesa meira