Fréttir

true

Yfirvöld óska eftir heilbrigðisstarfsfólki á útkallslista

„Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks úr hópi lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í svokallaða bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.…Lesa meira

true

Búnaður og fiskvinnsluvélar Ísfisks til sölu

Ingi Tryggvason lögmaður er skiptastjóri í þrotabúi Ísfisks ehf. sem síðustu tvö árin var með starfsemi á Akranesi. Fyrirtækið var eins og kunnugt er úrskurðað gjaldþrota í byrjun ársins. Í auglýsingu í Skessuhorni í dag býður skiptastjóri til sölu fiskvinnsluvélar og búnað úr þrotabúinu. Þar má nefna flökunarvélar, flokkara, slægingarvélar, hausara, saltsprautuvél, vogir, færibönd, þvottakör,…Lesa meira

true

Settust að í Skorradal og rækta íslenska fjárhundinn

Blaðamaður Skessuhorns fékk mjög vinalegar móttökur þegar hann kom í heimsókn í Birkimóa í Skorradal fyrir fáeinum dögum. Það voru fjórir kátir íslenskir fjárhundar sem tóku á móti gesti ásamt eigendum sínum, Ágústi Elí Ágústssyni og Hrefnu Sigfúsdóttur. Þegar hundarnir voru allir búnir að heilsa settumst við niður í eldhúsi þeirra hjóna og hundarnir lögðust…Lesa meira

true

Hefja rafmagnsframleiðslu í Reykholti

Í þessari viku er á von á vélbúnaði í Reykholt sem mun fá það hlutverk að framleiða raforku úr yfirhitanum á hveravatninu sem þar spýtist upp úr nýlegri borholu. Það er Varmaorka ehf. sem hefur undirbúið þetta verkefni, en framkvæmdaraðilinn verður Reykholtsorka ehf. sem nú hefur gert samning við Hitaveitu Reykholtsstaðar ehf. Varmaorka hefur reynslu…Lesa meira

true

Stærsti róður frá upphafi á Steinunni SH

Áhöfnin á Steinunni SH frá Ólafsvík gerði sannkallaðan risaróður í dragnót í Breiðafirði á mánudaginn. Afli bátsins reyndist 84,2 tonn. Að sögn Brynjars Kristmundssonar skipstjóra fékkst þessi afli í aðeins þremur köstum. Fyrsta kastið var um sjö tonn og í öðru voru 30 tonn. Það þriðja var svo enn stærra þegar yfir 40 tonn komu…Lesa meira

true

Stýrivextir lækka um hálft prósentustig

Vextir Seðlabanka Íslands hafa verið lækkaðir um 0,5 prósentustig. Megnivextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum sem jafnan eru kallaðir stýrivextir, verða því 2,25%. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur einnig ákveðið að lækka meðaltalsbindiskyldu innlánsstofnana úr 1% niður í 0%. Föst bindiskylda verður áfram 1%. Lækkun meðaltalsbindiskyldunnar og breytt meðferð þeirrar föstu er ætlað að…Lesa meira

true

Styttist í framkvæmdaleyfi vegna Vestfjarðavegar

„Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni, segist telja að gengið verði frá samkomulagi við Reykhólahrepp næstu daga um Þ-H leiðina,“ segir hann í samtali við fréttavefinn bb.is. „Sveitarstjórn Reykhólahrepps setti 29 skilyrði fyrir framkvæmdinni og er verið að fara yfir þau. Magnús Valur segist ekki sjá nein vandkvæði í því að uppfylla skilyrðin. Að því…Lesa meira

true

Viðbragðsáætlun Grundarfjarðarbæjar vegna veirunnar

Stofnanir Grundarfjarðarbæjar fylgja leiðbeiningum stjórnvalda og hafa gripið til undirbúningsráðstafana í samræmi við þær vegna Covid-19 veirunnar. „Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að auka vitund starfsfólks á leiðum til að forðast smit og fækka smitleiðum, auk þess að gera ráðstafanir fram í tímann um viðbrögð ef skerða þarf þjónustu,“ segir í frétt á vef…Lesa meira

true

Skipuð ráðgjafi Skota í lofslagsmálum

Brynhildur Davíðsdóttir frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð starfar sem prófessor í umhverfis- og auglindafræði við Háskóla Íslands. Hún er auk þess formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Brynhildur tók í síðustu viku við nýju og ólíku hlutverki þegar hún var formlega skipuð í ráðgjafaráð skosku heimastjórnarinnar í efnahagsmálum. Ráðið er skipað fólki með mikla reynslu og þekkingu í…Lesa meira

true

Kynntu aðgerðir í efnahagsmálum vegna COVID-19

Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu aðgerðir í efnahagsmálum til að mæta áhrifum af COVID-19 á blaðamannafundi sem hófst núna skömmu fyrir hádegi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði aðgerðirnar hugsaðar til að mæta fyrirséðu ástandi í efnahagslífinu, bæði vegna almennrar kólnunar og kórónaveirunnar. Hún sagði að þrátt fyrir að staða þjóðarbúsins væri góð þyrfti að endurskoða áform. Engu að…Lesa meira