Fréttir

true

Skeljungur kaupir Bauluna og opnar Orkustöð

Fram kemur í tilkynningu frá Skeljungi í dag að fyrirtækið hafi keypt rekstur Baulunnar í Stafholtstungum. Í kaupunum fylgja allar fasteignir og lóðarréttindi ásamt verslunar- og veitingarekstrinum sjálfum. Fyrirhugað er að bensínstöð Orkunnar verði opnuð á svæðinu á komandi mánuðum og þá hyggst Skeljungur efla rekstur veitingasölunnar. Samhliða því að Orkan verður söluaðili munu merki…Lesa meira

true

Engar heimsóknir leyfðar og dregið úr ferðalögum

Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði fer að dæmi annarra fiskvinnslufyrirtækja hér á landi og hefur nú beint þeim tilmælum til starfsmanna að engar heimsóknir eru leyfðar í starfsstöð fyrirtækisins um óákveðinn tíma vegna óvissuástands sem ríkir vegna Covid-19 veirunnar. Að auki er starfsfólk hvatt til að draga úr ferðalögum eins og frekast er unnt og…Lesa meira

true

Ritsmiðjur framundan í Safnahúsi

Miðvikudagana 11. og 25. mars næstkomandi stendur bókasafn Safnahússins í Borgarnesi fyrir tvenns konar ritsmiðjum í umsjón Sunnu Dísar Másdóttur. Hún er sjálfstætt starfandi bókmenntagagnrýnandi, ritlistarleiðbeinandi og skáld. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 og aðgangur er ókeypis. Ritsmiðjan miðvikudaginn 11. mars verður klukkan 19:20-22:30 og nefnist „Að skrifa lífið.“  Þar er um að ræða fræðandi smiðja…Lesa meira

true

Fresta verkfalli vegna veirunnar

Boðuðum verkfallsaðgerðum félagsmanna Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur verið frestað á meðan hættustig almannavarna vegna kóronaveiru (COVID-19) er í gildi. „LSS treystir á að samningsaðilar nýti sér ekki þessa frestun til að tefja samninga og haldi áfram viðræðum með sama krafti eins og að verkföllum hafi ekki verið frestað. Frestun verkfalla gildir þar til…Lesa meira

true

Fyrirtækjakynningu frestað

Fyrirtækjakynningu á vegum Rótarýklúbbs Borgarness, sem fara átti fram í Hjálmakletti laugardaginn 14. mars næstkomandi, hefur verið frestað fram á haust. Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi Rótarýklúbbs Borgarness á miðvikudagskvöld. „Ákveðið var að grípa til þessara varúðarráðstafana vegna þeirra aðstæðna sem eru í samfélaginu vegna kórónaveirunnar,“ segir í tilkynningu frá Rótarýklúbbi Borgarness. Til…Lesa meira

true

Hinsegin málefni voru tekin fyrir á Júlíönu

Margir lögðu leið sína í Hólminn um liðna helgi þegar Júlíana hátíð sögu og bóka var haldin þar, en allar viðburðir hátíðarinnar voru vel sóttir, bæði af heimamönnum og öðrum bókaunnendum. Hátíðin var sett á fimmtudagskvöldinu á Vatnasafninu með því að Sólveig Júlíana Ásgeirsdóttir las úr bók sinni Bláský. Nemendur frá Tónlistarskólanum í Stykkishólmi spiluðu…Lesa meira

true

Heimamenn sterkari á lokasprettinum

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða eftir fjörugan leik gegn Vestra. Leikið var á Ísafirði á þriðjudagskvöld. Um var að ræða frestaðan leik, sem upphaflega átti að spila 20. desember en var slegið á frest vegna veðurs. Jafnt var á með liðunum framan af fyrsta leikhluta og heimamenn voru þremur stigum yfir þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður,…Lesa meira

true

Dramatískur Vesturlandsslagur

Skallagrímur vann nauman sigur á Snæfelli í dramatískum Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir spennandi lokamínútur voru heimakonur stigi yfir þegar lokaflautan gall, 70-69 og fóru því með sigur af hólmi. Snæfell réði ferðinni í upphafi leiks og skoraði ellefu stig gegn tveimur fyrstu sex mínúturnar. Þá tóku Skallagrímskonur við sér…Lesa meira

true

Lífsbjörg fékk nýjan buggybíl

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ keypti á dögunum buggybíl sem mun nýtast sveitinni í störfum sínum. Buggy bifreiðar eru hannaðar til þess að komast á staði þar sem flestir bílar komast ekki. Um er að ræða kraftmikill og glæsilegan bíl sem nýtast mun í útköllum við erfiðar aðstæður. Hefur bíllinn verið á beltum í vetur og…Lesa meira

true

Opnar sýningu á 52 spjaldofnum bókamerkjum

Á morgun, föstudag klukkan 15, verður opnuð nýstárleg sýning á Bókasafni Akraness við Dalbraut. Þar mun listamaðurinn Philippe Ricart sýna 52 spjaldofin bókamerki. Allir eru velkomnir við opnun sýningarinnar, heitt kaffi á könnunni. Sýningin er opin virka daga klukkan 10:00-18:00 og á laugardögum kl. 11:00 – 14:00. Síðasti sýningardagur verður 28. mars. Philippe setti sér…Lesa meira