Fréttir

true

Klettur og Durtur afburða hrútar

Frá því er greint á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, rml.is, að á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var síðastliðinn föstudag veittu sæðingastöðvarnar farandgripi sína. Þetta árið var það Hestbúið sem hlaut viðurkenningu fyrir Durt 16-994 frá Hesti sem var útnefndur besti lambafaðirinn og byggir það mat á niðurstöðum haustsins 2019. Þá hlutu þau Sigfús og Lilja bændur…Lesa meira

true

Fréttir frá Klifurfélagi ÍA

Um helgina fór fram Bikarmeistarmót Íslands í klifri. Þar kepptu klifrarar í C-flokki. Eftir erfiða undankeppni fóru sex stigahæstu keppendur áfram í úrslit og þar voru Skagamenn með fjórar stúlkur og tvo drengi. Eftir harða úrlistakeppni stal Skagamærin Þórkatla Þyrí Sturludóttir sigrinum með frábærri frammistöðu í síðustu leið mótsins. Tinna Rós Halldórsdóttir, Klifurfélag ÍA, hafnaði…Lesa meira

true

Prestar vígðir til starfa

Í gær var við messu í Dómkirkjunni í Reykjavík vígðir tveir prestar til starfa hjá Þjóðkirkjunni og tveir djáknar. Þeirra á meðal hlaut vígslu séra Þóra Björg Sigurðardóttir verðandi prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli. Það var séra Agnes M. Sigurðardóttir biskup yfir Íslandi sem framkvæmdi vígsluna og sr. Elínborg Sturludóttir þjónaði fyrir altari. Þóra Björg…Lesa meira

true

Mikill viðbúnaður vegna Covid-19 veirunnar

Það var þétt setinn bekkurinn í stjórnstöð Almannavarna í býtið í morgun. Þar voru lagðar línurnar fyrir verkefnin sem framundan eru vegna COVID-19 veirunnar. Nú hefur verið staðfest smit hjá þremur einstaklingum sem allir voru að koma frá útlöndum; Ítalíu og Þýskalandi.  300 manns eru auk þess í sóttkví. Þessi hópur á myndinni leggur nú…Lesa meira

true

Lilja Björg hætt í starfi sveitarstjóra

Lilja Björg Ágústsdóttir lét af starfi setts sveitarstjóra í Borgarbyggð í lok síðustu viku eins og ráð hafði verið fyrir gert. Þórdís Sif Sigurðardóttir sem ráðin hefur verið í starf sveitarstjóra mun koma til starfa á næstu vikum. Að sögn Lilju Bjargar mun Eiríkur Ólafsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og staðgenginn sveitarstjóra, brúa bilið og…Lesa meira

true

Gestirnir öflugri í seinni hálfleik

Snæfellingar máttu sætta sig við tap á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Staðan var jöfn í hálfleik en í seinni hálfleik réðu gestirnir ferðinni og sigruðu að lokum örugglega, 71-89. Hattarmenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með níu stigum eftir fyrsta leikhluta, 18-27.…Lesa meira

true

Gísli hætti sem hafnarstjóri í lok sumars

Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna hefur tilkynnt stjórn fyrirtæksins að hann muni hætta störfum í lok ágúst á þessu ári. Gísli verður 65 ára í sumar og metur sem svo að nú sé heppilegur tími til að stíga til hliðar úr daglegu ati. Gísli mun við starfslok hafa gegnt starfi hafnarstjóra í fimmtán ár. Þar áður…Lesa meira

true

Lyftu sér upp í þriðja sæti

Skallagrímskonur lyftu sér upp í þriðja sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sterkum útisigri á Haukum í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu undirtökin stærstan hluta leiksins og sigruð að endingu með sjö stigum, 69-76. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og mjótt á mununum. Skallagrímskonur voru þó heldur ákveðnari og höfðu fjögurra stiga forskot eftir…Lesa meira

true

Stöndum þétt saman er yfirskrift búnaðarþings sem hefst í dag

Búnaðarþing 2020 verður sett í Bændahöllinni í dag en því lýkur svo á morgun. Þingið verður sett við hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 12.00 og verða Landbúnaðarverðlaun veitt og ráðherra og formaður BÍ halda ávörp. Yfirskrift þingsins í ár er „Stöndum þétt saman“. Þar er vísað í endurskipulagningu félagskerfis landbúnaðarins sem stendur fyrir…Lesa meira

true

Mottumarssokkarnir komnir í sölu

Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. „Mottumars er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár leggjum við áherslu á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk…Lesa meira