Fréttir

true

Banaslys í gær í Esjuhlíðum

Karlmaður lést í snjóflóði sem féll við Móskarðshnúka austanmegin í Esju um hádegisbil í gær. Tildrög slyssins voru þau að þrír menn voru á göngu í fjallinu þegar flóðið féll. Einn þeirra slapp undan flóðinu og gat gert viðvart, en tveir lentu í því. Annar þeirra grófst ekki undir snjó. Fjölmennt lið björgunarsveitarfólks og viðbragðsaðila…Lesa meira

true

Hafa tekið hitasjónauka í notkun

Lögreglan á Vesturlandi hefur tekið í notkun þrjá hitasjónauka. Að sögn Ásmundar Kr. Ásmundssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er um að ræða mjög fullkominn búnað af FLIR gerð sem er hannaður sérstaklega fyrir lögreglu. Hann segir einn sjónaukann verða staðsettan á Akranesi, annan í Borgarnesi og þann þriðja á Snæfellsnesi. „Búnaðinn má til dæmis nota til þess að…Lesa meira

true

Naumt tap í spennandi leik

Skallagrímskonur töpuðu naumlega íspennandi leik gegn KR á heimavelli, 72-77, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik, en gestirnir úr Vesturbæ Reykjavíkur voru heldur sterkari í þeim síðari og höfðu sigur eftir æsispennandi lokafjórðung. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn betur. Þær höfðu örfárra stiga forskot lengi framan…Lesa meira

true

Snæfellskonur stálu sigrinum

Snæfellskonur gerðu góða ferð suður með sjó í gærkvöldi, þegar þær lögðu lið Grindavíkur í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Grindvíkingar höfðu yfirhöndina nær allan leikinn en með mikilli baráttu tókst Snæfellskonum að halda sér inni í leiknum allan tímann. Undir lokin tókst þeim að komast yfir í aðeins annað sinn í leiknum og stela…Lesa meira

true

Bjóða út leikskólabyggingu í gegnum rammasamning Ríkiskaupa

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum 13. janúar síðastliðinn að láta bjóða út hönnun nýs leikskóla í Skógarhverfi í gegnum rammasamning Ríkiskaupa. Ráðið samþykkti jafnframt að litið yrði til verðs, reynslu og gæðakerfa hönnuða við mat á tilboðum. En af hverju var ákveðið að fara þessa leið, í gegnum rammasamning Ríkiskaupa? Ragnar B.…Lesa meira

true

Kynferðisbrotum fjölgaði hlutfallslega mest

Hegningarlagabrot voru 12.807 á landinu öllu á síðasta ári og fjölgaði lítillega frá 2018, eða um 6%, samkvæmt bráðabirgðatölum Ríkislögreglustjóra. Þeim fjölgaði hins vegar um 9% samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára á undan. Af hegningarlagabrotum fjölgaði kynferðisbrotum hlutfallslega mest á milli ára, eða um hvorki meira né minna en 22% og um 33% samanborið…Lesa meira

true

Leit hefst brátt aftur í Hnappadal

Lögreglan á Vesturlandi hefur unnið að rannsókn á hvarfi manns í Hnappadal 30. desember. Veðurskilyrði undanfarið hafa gert erfitt um vik að leita hans en að sögn lögreglu stendur til að hefja hana af fullum krafti að nýju innan tíðar. Lögreglan á Vesturlandi fær aðstoð frá tæknideild sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Búið er að kortleggja staði sem…Lesa meira

true

Fiskeldi nær tvöfaldaðist að umfangi

Framleiðslumet var sett hér á landi í fiskeldi á nýliðnu ári. Var slátrað um 34 þúsund tonnum á árinu samanborið við 19 þúsund tonn árið á undan. Jafngildir það hátt í 80% aukningu á landsvísu. Aukningin á sunnanverðum Vestfjörðum var um 90% milli ára en á Austfjörðum var aukningin 160%. Aukninguna má að langmestu leyti…Lesa meira

true

Flutti til Íslands frá Kaupmannahöfn og byggir upp ferðaþjónustu

Michael Back flutti frá Kaupmannahöfn til Íslands fyrir um einu og hálfu ári og settist þá að í Borgarnesi ásamt Heiðrúnu Helgu Bjarnadóttur og börnunum þeirra tveimur. Við heimkomu tóku þau hjónin við rekstri gistiheimilisins Kríu guesthouse af foreldrum Heiðrúnar. Michael, sem er bifvélavirki og verkfræðingur að mennt, fór auk þess að vinna á bifvélaverkstæðinu…Lesa meira

true

Kynna breytingar á úrgangsþjónustu í Borgarbyggð í kvöld

Stjórnendur Borgarbyggðar hafa undanfarið staðið fyrir fundaröð í sveitarfélaginu. Þar hafa fyrirhugaðar breytingar á úrgangsþjónustu í sveitarfélaginu verið kynntar íbúum. Þær felast í söfnun og eyðingu dýraleifa af lögbýlum, sem hefst 1. febrúar og söfnun lífræns úrgangs frá öllum heimilum í Borgarbyggð, sem fyrirhuguð er frá 1. apríl næstkomandi. Fundaröðin hófst með fundi í Lyngbrekku…Lesa meira