Fréttir

true

Borgarnes skutlan er ný sendibílaþjónusta í Borgarnesi

Borgarnes skutlan er nýtt þjónustufyrirtæki í Borgarnesi. Um er að ræða sendibílaþjónustu, en starfsemi hennar hófst í desember síðastliðinum. Það er Eggert Emil Ólafsson sem stendur að fyrirtækinu. „Ég var búinn að ganga með það lengi í maganum að fara út í þessa starfsemi. Í desember ákvað ég að láta vaða og fer núna daglegar…Lesa meira

true

Íslandspóstur boðar hækkun gjaldskrár og minni þjónustu

Íslandspóstur (ÍP) hefur boðað margvíslegar breytingar á þjónustu stofnunarinnar frá og með 1. maí næstkomandi. Meðal annars hefur útgefendum bæjar- og héraðsfréttablaða verið tilkynnt um að vöruflokkurinn „Blöð og tímarit“ verður lagður niður frá 1. maí og því munu skilmálar í þeim viðskiptum versna samhliða því að dregið er stórlega úr afsláttum vegna magnsendinga. Verð…Lesa meira

true

Gonzi snýr aftur til Ólafsvíkur

Spænski knattspyrnumaðurinn Gonzalo Zamorano samdi á dögunum við lið Víking Ólafsvíkur á nýjan leik. Hann samti við lið Ólafsvíkinga til tveggja ára, eftir að hafa leikið eitt keppnistímabil með liði ÍA í Pepsi Max deildinni síðasta sumar. „Gonzalo þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum félagsins en hann lék með liðinu árið 2018. Þá skoraði hann…Lesa meira

true

Halda fund um kvótamál á Gamla kaupfélaginu

Ögmundur Jónasson skrifar grein í síðasta Skessuhorn. Þar segir hann m.a.: „Hafin er fundaherferð um landið undir fyrirsögninni „Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim.“ Hugsunin þarna að baki er sú að kvótakerfið í þeirri mynd sem við þekkjum það hafi brotið samfélagið og sé verkefnið að gera það heilt á ný. Kvótann heim…Lesa meira

true

Samið um mánaðarlegar verðkannanir á landbúnaðarvörum

Alþýðusamband Íslands mun á næstunni gera verðkönnun á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum og skila niðurstöðum sínum til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Þjónustusamningur þessa efnis hefur verið undirritaður  milli ASÍ og ráðuneytisins. Verðkönnunin er gerð í tengslum við breytingar á lagaumhverfi um úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðarvörur sem gerðar voru í desember síðastliðnum. Samkvæmt þeim var ávinningur sem…Lesa meira

true

Að lágmarki tólf hugmyndir að Betri Snæfellsbæ framkvæmdar á árinu

Íbúalýðræðisvefurinn Betri Snæfellsbær var opnaður í september í fyrra og voru íbúar hvattir til að senda þar í gegn tillögur að framkvæmdum og viðhaldsverkefnum í sveitarfélaginu. Alls bárust 45 fjölbreyttar hugmyndir sem tæknideild sveitarfélagsins fór yfir og óskaði eftir að fá fjármuni til að framkvæma einhverjar hugmyndirnar. Á fundi bæjarstjórnar 5. desember var samþykkt að…Lesa meira

true

Fundað um framtíð grásleppuveiða í Hólminum í kvöld

Snæfell, félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, hefur boðað til fundar um grásleppumál. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu í Stykkishólmi síðdegis í dag, fimmtudagin 30. janúar kl. 17:00. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun sækja fundinn, ávarpa gesti og svara spurningum. Á fundinum verður farið yfir drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020. Sú reglugerð inniheldur m.a.…Lesa meira

true

Samið um viðhald á þaki skóla og sundlaugar

Tilboð í þakviðgerðir Brekkubæjarskóla og Bjarnalaugar á Akranesi voru opnuð á fundi skipulags- og umhverfisráðs á mánudag. Átti GS Import ehf. lægsta boð í bæði verkin. Fyrirtækið bauð rétt tæpar 5,6 milljónir í viðgerð á þaki Bjarnalaugar en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 6.582 þús. kr. GS Import bauð tæpar 15,6 milljónir í viðgerð á þaki…Lesa meira

true

Matarklasi Snæfellsness stofnaður

Matarklasi Snæfellsness var stofnaður síðastliðinn föstudag á stofnfundi í Bæringsstofu í Stykkishólmi. Matarklasanum er ætlað að vera vettvangur samstarfs í kringum þau markmið að gera Snæfellsnes að áfangastað fyrir sælkera en á sama tíma að auka aðgengi íbúanna að snæfellsku hráefni. Hann er hugsaður sem vettvangur fyrir hagsmunaaðila til að hittast, deila þekkingu sinni og…Lesa meira

true

„Maður verður að tækla þetta á þrautseigju og staðfestu“

Aðalgeir Vignisson er kvikmyndagerðarmaður, búsettur í Grundarfirði þar sem hann er uppalinn. Hann er sjálfstætt starfandi og tekur mest upp á höfuðborgarsvæðinu en vinnur mestalla eftirvinnu heima í Grundarfirði. Þangað flutti hann aftur á síðasta ári, sem lið í því að láta draum sinn um að geta lifað af kvikmyndagerðinni verða að veruleika. Skessuhorn ræddi…Lesa meira