Fréttir

true

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember síðastliðinn. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga, eða frá rúmum 44% niður í 1% þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga í…Lesa meira

true

Fornbátaskrá og leiðarvísir um varðsveislugildi gamalla báta

Samband íslenskra sjóminjasafna gaf nýverið út fornbátaskrá og leiðarvísi við mat á varðveislugildi eldri báta og skipa. Útgáfan er afrakstur mikillar vinnu undanfarin ár og hefur það að meginmarkmiði að vekja aukna athygli á stöðu bátaverndar í landinu. Um tuttugu söfn, setur og sýningar um land allt eiga aðild að samtökunum. „Tilgangurinn með gerð fornbátaskrárinnar…Lesa meira

true

Árleg fuglatalning verður um næstu helgi

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 24. – 27. janúar næstkomandi. Framkvæmd athugunarinnar er einföld, segir í tilkynningu frá Fuglavernd. Fólk skal velja stund og stað og það þarf einungis að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern fyrrgreindra daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. „Oft er gott að…Lesa meira

true

Leitin að rassvöðvunum

Ungmennasamband Borgarfjarðar og Heilsueflandi samfélag standa í sameiningu fyrir fyrirlestri með gagnlegri fræðslu og markmiðasetningu í Hjálmakletti í Borgarnesi frá kl. 20-22 í kvöld. ,,Leitin að rassvöðvunum!” Gauti Grétarsson, einn reyndasti sjúkraþjálfari landsins fjallar um mikilvægi hreyfingar. ,,Hvað viltu? Vegferð að velgengni & vellíðan.” Aldís Arna Tryggvadóttir, ICF vottaður markþjálfi, fjallar um hvernig ná má…Lesa meira

true

Ætlar sér að ná langt í körfunni

Lisbeth Inga Kristófersdóttir er ung og mjög efnileg körfuknattleikskona úr Reykholtsdalnum. Var hún fyrr í þessum mánuði kjörin Íþróttamaður Umf. Reykdæla. Lisbeth er 14 ára gömul, fædd og uppalin á Litla-Bergi, dóttir Þórhildar Maríu Kristinsdóttur og Kristófers Ólafssonar. Þegar hún var tíu ára mætti hún á fyrstu körfuboltaæfinguna sína en fram að því hafði hún…Lesa meira

true

Thule slóð í hverri hlaupaferð

Brynhildur Stefánsdóttir snyrtifræðingur og bóndi á Ytri-Hólmi í Hvalfjarðarsveit fer reglulega út að hlaupa sér til heilsubótar. Vanalega hleypur hún meðfram þjóðveginum á Innnesinu, nokkra kílómetra í hvert sinn. Hún vakti fyrst máls á því fyrir rúmum tveimur árum þegar hún fór að taka eftir því að á og við þjóðveginn lágu alltaf tómar öldósir,…Lesa meira

true

Dýpkun Reykhólahafnar hefst innan tíðar

Verk- og kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar vegna dýpkunar Reykhólahafnar var lögð fram á janúarfundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps. Tilboð Hagtaks í verkið hljóðar upp á 36.750 þús. krónur og þarf sveitarfélagið að greiða 10% þess kostnaðar. Samþykkti sveitarstjórn að ráðstafa 3.650 þús. krónum í verkkaup vegna dýpkunar hafnarinnar. Verður þeim útgjöldum mætt af áætluðum rekstrarafgangi ársins, sem verður rétt…Lesa meira

true

Fráfarandi sveitarstjóri tilkynnir um málssókn

Lögmaður Gunnlaugs A Júlíussonar fráfarandi sveitarstjóra í Borgarbyggð hefur tilkynnt lögmanni sveitarfélagsins að hann muni leita til dómstóla til þess að fá kröfur Gunnlaugs um bætur vegna uppsagnar hans hjá sveitarfélaginu viðurkenndar og dæmdar. Í bréfi lögfræðings Borgarbyggðar 20. janúar sl. til lögfræðings Gunnlaugs sagði m.a. „Hagsmunir umbjóðanda þíns voru tryggðir með ríflegum biðlaunarétti samkvæmt…Lesa meira

true

Nær öll búsetuskilyrði verri til sveita

Skýrsla Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Öll él birtir upp um síðir, kom út á mánudaginn. Markmið skýrslunnar var að greina hvaða búsetuskilyrði væru líklegust til að ýta undir fólksflutning úr sveitum. Var það gert með því að bera saman ánægju íbúa í sveitum með ýmis búsetuskilyrði við ánægju íbúa í þéttbýli. „Þegar svörunum var skipt…Lesa meira

true

Bjóða upp á heilsunámskeið í Borgarnesi

Fimmtudaginn 30. janúar nk. kl. 19:30 – 22 verður boðið upp á heilsunámskeið með Röggu Nagla og Ásdísi Grasa á Hótel B-59 í Borgarnesi. „Í aragrúa nútímans þar sem hver samfélagsmiðillinn keppist um athygli okkar eru skilaboðin um hvað megi borða, hvað sé óhollt, hvað sé fitandi, oft eins og ærandi rokktónlist á næturklúbbi. Er…Lesa meira