Fréttir

true

Ríflega helmingi minni byggðakvóti á Vesturland

Þrjú byggðarlög á Vesturlandi fá úthlutað almennum byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2019/2020. Úthlutun til Arnarstapa nemur 27 þorskígildislestum, Ólafsvík fær 107 þorskígildislestir og 140 þorskígildislestir koma í hlut Grundarfjarðar. Hellissandi, Rifi og Stykkishólmi er ekki úthlutaður almennur byggðakvóti. Samtals koma því 274 þorskígildislestir í hlut byggðarlaga á Vesturlandi, en það er 330 þorskígildislestum minna en á…Lesa meira

true

Slá tímabundið af gatnagerðargjöldum

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að veita tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum. Nær afslátturinn til eldri íbúðalóða í bænum, sem og tilbúinna iðnaðarlóða í iðnaðarhverfinu Ártúni/Hjallatúni. Um er að ræða 50% afslátt í sex mánuði frá endanlegri samþykkt nánari skilmála sem bæjarráði var falið að útfæra. „Ráðstöfunin er gerð til að ýta frekar…Lesa meira

true

Boðað til íbúaþings um atvinnumál

Akraneskaupstaður efnir í kvöld til íbúaþings þar sem atvinnulíf í bæjarfélaginu verður til umræðu. Markmið þingsins er að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs á Akranesi með sérstakri áherslu á Breið og nágrenni, í samstarfi við Brim og fleiri fyrirtæki. “Metnaður bæjarins er að byggja upp öflugt atvinnulíf á Akranesi í…Lesa meira

true

Spáð er slæmu veðri síðdegis og næsta sólarhring

Um vestanvert landið er í dag spáð suðvestan- og vestan hvassviðri eða stormi undir kvöld með vindhraða á bilinu 18-23 m/s. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt vestan- og norðanvert landið. Búast má við talsverðum éljagangi á Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæðinu, skafrenningi og lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Spáð er éljafjúki á fjallvegum, svo sem…Lesa meira

true

Þrátt fyrir fækkun ferðamanna á síðasta ári ríkir almenn bjartsýni

Mannamót Markaðstofanna var haldið í Kórnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Viðburðurinn er haldinn árlega í janúar af Markaðsstofum landshlutanna. Markmið mannamóts er að skapa vettvang fyrir ferðaþjónustuaðila til að kynna sér þá fjölbreyttu ferðaþjónustu sem rekin er á landsbyggðinni, sem og fyrir ferðaþjónustuaðila að mynda tengsl sín á milli. Ekkert laust pláss var á sýningunni, öll…Lesa meira

true

Taka við rekstri bókhaldsstofunnar eftir fráfall föðurs þeirra

Bræðurnir Styrmir Már og Elfar Már Ólafssynir hafa tekið yfir rekstur Bókhalds- og rekstrarþjónustu Ólafs Helgasonar í Borgarnesi. „Pabbi hafði rekið þessa bókhaldsstofu í fjölmörg ár áður en hann féll frá í nóvember á síðasta ári. Hann bað okkur bræður að koma inn í fyrirtækið í fyrra en það stóð alltaf til að við myndum…Lesa meira

true

Þorrablót framundan

Bóndadagurinn er á föstudaginn en þá gengur Þorrinn í garð. Framundan eru fjölmörg þorrablót í landshlutanum þar sem fólk kemur saman, borðar góðan mat, skemmtir sér og öðrum og á góða stund í leik og dansi. Á Vesturlandi verða allmörg þorrablót haldin næstu vikurnar og því ekki úr vegi fyrri Vestlendinga að fara að skipuleggja…Lesa meira

true

Gripinn fullur á leið í ríkið

Lögregla var við eftirlit við verslun Vínbúðarinnar við Kalmansvelli á Akranesi síðastliðinn laugardag, frá kl. 11:00 og fram yfir hádegi. Einn ökumaður var handtekinn, grunaður að hafa ekið ölvaður í Vínbúðina. Þá var annar ökumaður stöðvaður fyrir að tala í símann undir stýri.Lesa meira

true

Fyrstu stuðningsgreiðslur ársins til sauðfjárbænda

Framleiðendur í sauðfjárrækt hafa fengið fyrstu stuðningsgreiðslur ársins 2020. Samkvæmt tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu byggja þær á bráðabirgðaáætlun um heildarframlög vegna ársins 2020. Um er að ræða tvöfalda mánaðargreiðslu, fyrir janúar og febrúar. Bráðabirgðaáætlun er aðgengileg á Bændatorginu undir rafrænum skjölum. “Athygli er vakin á breytingu sem varð um áramót með reglugerð nr. 1253/2019 um stuðning…Lesa meira

true

Samið um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila

Tekist hafa samningar milli Sjúkratrygginga Íslands og rekstraraðila 43 hjúkrunarheimila í landinu um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila. Samningslaust hefur verið frá 2019. Samið var við hvern og einn rekstraraðila, í stað rammasamnings, en samningarnir eru engu að síður samhljóða og taka til 2.468 hjúkrunar- og dvalarrýma í landinu. Andvirði þeirra nemur um 32,5 milljörðum króna…Lesa meira