Fréttir

true

Gul viðvörun í gildi

Gul viðvörun er í gildi við Breiðafjörð og Faxaflóa í dag og fram á kvöld. Á Faxaflóasvæðinu er búist við hvassviðri með vindhraða á bilinu 15-20 m/s. Þá má einnig búast við talsverðum éljagangi með skafrenningi og lélegu skyggni sem gæti haft áhrif á akstursskilyrði. Við Breiðafjörð er einnig búist við hvassviðri eða stormi með…Lesa meira

true

Stórt tap í Hveragerði

Skallagrímur reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Hamar, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Leikið var í Hveragerði og það voru heimamenn sem sigruðu örugglega, 110-78. Borgnesingar byrjuðu leikinn illa, skoruðu ekki stig fyrstu sex mínúturnar og á meðan komust Hvergerðingar í 15-0. Skallagrímsmenn náðu þó ágætis rispu…Lesa meira

true

Tap í fjörugum leik

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn liði Álftaness á útivelli, 127-110, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudag. Eins og lokatölur gefa til kynna var leikurinn hraður og bæði lið settu allt sitt púður í sóknarleikinn. Áhorfendur fengu því skemmtilegan og fjörugan leik. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og staðan…Lesa meira

true

Skessuhorn nú aðgengilegt á timarit.is

Síðastliðið haust var gengið frá samningi milli Landsbókasafns Íslands og Skessuhorns ehf. um rafræna birtingu allra tölublaða Skessuhorns frá upphafi útgáfunnar 1998 á vefnum timarit.is. Nú er lokið við að setja efnið inn og aðgengilegt þeim sem vilja glugga í það. Alls er nú 21 árgangur af blaðinu kominn í birtingu; árin 1998 til og…Lesa meira

true

Mannauðs- og gæðastjóri hjá LbhÍ

Guðmunda Smáradóttir hefur verið ráðin í starf mannauðs- og gæðastjóra við Landbúnaðarháskóla Íslands og hóf hún störf um áramótin. Guðmunda er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnun og stefnumótun. Þá hefur hún lokið PLD námi (Program Leadership Development) frá IESE viðskptaháskólanum í Barcelona, auk þess að hafa lokið markþjálfunarnámi og…Lesa meira

true

Nýtt skipurit Landmælinga Íslands

Í nýjasta Kvarðanum, tímariti Landmælinga Íslands, er greint frá því að 1. desember síðastliðinn tók nýtt skipurit LMÍ formlega gildi. Það var unnið í framhaldi af niðurstöðum úr vinnu starfsmanna á sérstökum starfsdegi í september og kynnt á starfsmannafundi 29. október. Í skipuritinu eru helstu málaflokkar Landmælinga Íslands skilgreindir og endurspegla þeir hlutverk og grunnverkefni…Lesa meira

true

Körfu ársins skoraði Gunnar Örn í MB

Á Áskorendadegi í Menntaskóla Borgarfjarðar í vikunni sem leið var keppt í körfubolta. Í skólanum eru margir nemendur sem æfa íþróttir af kappi og meðal annars körfubolta. Í mjög jafnri og skemmtilegri viðureign nemenda og kennara voru sýnd mikil tilþrif þar sem nemendur snéru af sér annars knáa kennara. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá magnaða…Lesa meira

true

Viðvörun vegna suðaustan roks og asahláku í kvöld

Í dag er spáð vestlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s, en hvassari austanlands fram yfir hádegi. Skýjað verður með köflum og stöku él. Frost 0 til 8 stig. Síðan hvessir í kvöld, þykknar upp og fer að hlýna. Suðaustan og sunnan 18-28 m/s í nótt, hvassast í vindstrengjum á Norðurlandi. Talsverð rigning, en úrkomuminna um…Lesa meira

true

Rannsökuðu háttsemi hrossa í haga

Í nýjasta tölublaði Náttúrufræðingsins, félagsrits Hins íslenska náttúrufræðifélags og tímarits Náttúruminjasafns Íslands, er áhugaverð grein eftir þær Hrefnu Sigurjónsdóttur og Söndru M Granquist. Í greininni er birt niðurstaða rannsóknar á hátterni hrossa. Hross eru félagslyndar skepnur og mynda mismikil tengsl við önnur og óskyld hross. „Hestar kljást og þeir slást – en af hverju? Í…Lesa meira

true

Fyrirlestur um Reykhyltingana 1569-1807

Fyrirlestrar í héraði í Snorrastofu hefjast á nýju ári með fyrirlestri sr. Geirs Waage sóknarprests í Reykholti, þriðjudaginn 21. janúar kl. 20. Þar fjallar hann um forvera sína á Reykholtsstað og staðinn sjálfan frá árinu 1569 til 1807, þegar staðurinn var setinn af svonefndum Reykhyltingum. Umbroti siðaskiptanna lýkur í Reykholti með því að síra Jóni…Lesa meira