Fréttir

true

Farið í úttekt á vegum á Vesturlandi

Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur er nú á ferð um Vesturland í þeim tilgangi að taka út vegi í landshlutanum, allt frá Hvalfirði að Gilfirði. Á fréttasíðunni budardalur.is ræðir Þorgeir Ástvaldsson við Ólaf, áður en ferðalag hans hófst. Þar segir Ólafur að hann muni aka um og mynda alla helstu vegi í landshlutanum, skoða ástandið á þeim…Lesa meira

true

Fræðin fléttast við Reykholtshátíð

Samkvæmt venju verður árleg Reykholtshátíð haldin síðustu helgina í júlí, sem nú er framundan. Saman fléttast þá og blómstra sterkir þræðir staðarins, tónlist í sögulegu umhverfi, fræðastarf Snorrastofu og helgihald Reykholtskirkju. Fyrirlestur Snorrastofu á hátíðinni er í höndum dr. Ólínu Þorvarðardóttur þjóðfræðings, laugardaginn 28. júlí kl. 13, Nefnist hann: “Fyrsti blaðamaðurinn – fyrstur til margs.…Lesa meira

true

Fullveldisbörnum boðið í veislu á fimmtudaginn

Afmælisnefnd vegna fullveldi Íslands hefur í samstarfi við Hrafnistu boðið öllum Íslendingum fæddum 1918 og fyrr, til hátíðarsamkomu í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Alls hafa 64 einstaklingar, búsettir um land allt, fengið boð í veisluna ásamt gesti. Þetta er í fyrsta skipti í sögu þjóðarinnar sem öllum Íslendingum 100 ára og eldri er…Lesa meira

true

Ríkisstjórnin heldur sumarfund sinn í Staðarsveitinni

Ríkisstjórn Íslands heldur í dag, mánudag, sumarfund að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi í dag. Að loknum fundi mun stjórnin funda með fulltrúum sveitarstjórna á Vesturlandi. Á þeim fundi verður m.a. farið yfir áherslur ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmálanum og mál sem rædd voru á ríkisstjórnarfundinum og tengjast byggðamálum. Þá munu fulltrúar sveitarstjórna á svæðinu fara yfir…Lesa meira

true

Undirbúa byggðaráðstefnu í Stykkishólmi í haust

Byggðastofnun kallar eftir tillögum að erindum sem flytja mætti á byggðaráðstefnuna sem halda á í Stykkishólmi dagana16.-17. október í haust. Þar verður umfjöllunarefnið „Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúrvernd farið saman?“ Að ráðstefnunni staðanda, auk Byggðastofnunar, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Stykkishólmsbær. „Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu…Lesa meira

true

„Þú gætir farið heim til þín og málað húsþakið“

Íslendingar eru í auknum mæli farnir að liggja í köldum körum sem virðast fylgja öllum sundlaugum í dag eða stunda sjósund við strendur landsins í góðum félagsskap. Þeir sem stunda þetta sport reglulega vilja meina að þetta sé gott fyrir heilsu og sál á meðan aðrir hrista hausinn við tilhugsunina að sjokkera líkamann með köldu…Lesa meira

true

Spáð er þurrki til fimmtudags

Samkvæmt veðurspá er nú útlit fyrir þurrk um landið vestanvert næstu fjóra daga. Það verður norðlæg átt og léttir smám saman til í dag, en skýjað og súld eða dálítil rigning verður fyrir norðan og austan. Á morgun, þriðjudag verður hæg breytileg átt og léttskýjað sunnan- og vestanlands en skýjað fyrir norðan og þokuloft við…Lesa meira

true

Forstjóri HVE uggandi yfir óvissunni sem kjaradeilan er að valda

Enn er kjaradeila ljósmæðra og íslenska ríkisins óleyst og hefur nú verið boðað yfirvinnubann næstkomandi miðvikudag, 18. júlí. Blaðamaður Skessuhorns hafði samband við Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og tók stöðuna á ástandinu á fæðingadeildinni á Akranesi. Jóhanna segist uggandi yfir óvissunni sem nú ríkir og að komi til yfirvinnubanns. „Við vitum vel að…Lesa meira

true

Skagamenn gáfu toppsætið frá sér

Karlalið ÍA þurfti að sætta sig við tap þegar það sótti Þrótt heim í 11. umferð Inkassodeildarinnar í Laugardalnum síðastliðinn föstudag. ÍA sat fyrir leikinn á toppi deildarinnar og þrjú stig því mikilvæg til að halda efsta sætinu. ÍA byrjaði leikinn tiltölulega vel en missti dampinn eftir því sem leið á leik. Gestgjafarnir nýttu sér…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í spænskum grísakótelettum

„Matvælastofnun varar við neyslu á Lúxus grísakótilettum frá Krónunni,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni sl. föstudag. „Salmonella greindist í einu sýni í skimun Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á sjúkdómsvaldandi örverum í kjöti á markaði. Nánari rannsókna er þörf til að staðfesta greininguna. Krónan ehf. hefur ákveðið að innkalla af markaði lúxus ókryddaðar og kryddaðar grísakótilettur…Lesa meira