Fréttir

true

Hvalveiðar í fullum gangi

Nú hefur á þriðja tug hvala veiðst og verið unnir í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Þar er gengið fumlaust til verka. Ljósmyndari Skessuhorns fylgdist með skurði á einni langreyði á plani Hvalstöðvarinnar í gær. Á útsýnissvæði ofan við athafnasvæðið voru auk blaðamanns nokkrir áhugasamir Íslendingar að fyljast með hvalskurðinum. Fólki sem rætt var við fannst þetta…Lesa meira

true

Skagakonur gerðu jafntefli

ÍA gerði jafntefli í fjörugum leik gegn Aftureldingu/Fram í níundu umferð Inkassodeildar kvenna í gær. Fyrir leik skipuðu Skagakonur annað sætið í deildinni og voru búnar að vinna tvo auðvelda sigra í röð og því fullar sjálfstrausts komandi inn í viðureignina. Leikurinn fór fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Vestlendingar byrjuðu leikinn af krafti og strax…Lesa meira

true

Sigur á Ólafsvíkurvelli

Víkingur Ó. nældi sér í þrjú stig þegar liðið vann Fram á heimavelli í 12. umferð Inkassodeildarinnar í gær. Snæfellingar hafa verið á góðri siglingu síðustu vikur enda eru þeir í flottri baráttu í efri hluta deildarinnar, unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum en liðið gerði jafntefli í útileik við Njarðvík í síðustu umferð.…Lesa meira

true

Jónína Erna ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Akraness

Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari og tónlistarkennari hefur verið ráðin í starf skólastjóra Tónlistarskóla Akraness. Bæjarráð Akraneskaupstaðar staðfesti í gær ráðningu hennar, en staðan var auglýst í byrjun júní og bárust tíu umsóknir. Jónína Erna er fædd og uppalin í Borgarnesi og býr þar. Hún er með burtfarar- og kennarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og Cand…Lesa meira

true

Segir fasta búsetu þurfa að fylgja eignarhaldi jarða

„Eitt af forgangsmálum þessarar ríkisstjórnar er að setja skilyrði við kaup á landi sem taki mið af jákvæðri þróun byggða um land allt. Land er takmörkuð auðlind og undirstaða verðmætasköpunar og velferðar í landinu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra sveitarstjórnarmála. Hann segir mikilvægt að landi sem hentar vel til ræktunar verði ekki ráðstafað til annarra…Lesa meira

true

Eldislax slapp úr sjókví í Tálknafirði

„Slysaslepping á eldislaxi varð úr sjókví Fjarðalax í Tálknafirði í byrjun mánaðar. Orsök tjóns og umfang slysasleppingar liggja ekki fyrir en fimm fiskar úr sjókvínni hafa veiðst í net eftir atvikið fram til þessa,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Stofnuinni barst tilkynning frá Fjarðalaxi um fisk utan kvíar og gat á nótarpoka sjókvíar fyrirtækisins að…Lesa meira

true

Hvassar og háar brúnir á skemmdum vegum

„Ég var á leiðinni heim úr vinnunni í gærkvöldi og ók í holu á vegkanti og eyðilagði tvö dekk og báðar felgurnar hægra megin á bílnum,“ segir Gunnar Ásgeir Gunnarsson sem býr á Felli í Reykholtsdal. Gunnar var að mæta bíl á móts við bæinn Síðumúlaveggi í Hvítársíðu. Ökumaður hins bílsins vék ekki út af…Lesa meira

true

Myndarlega tekið til hendinni hjá Skógræktarfélagi Ólafsvíkur

Fréttaritari Skessuhorns mælti sér nýverið mót við Vagn Ingólfsson formann Skógræktarfélags Ólafsvíkur til að fræðast um starfsemi félagsins. Vagn var þá staddur ásamt Sigurði Scheving í ræktunarreit félagsins ofan Ólafsvíkur. Þar var einnig að störfum vinnuhópur undir stjórn Jóns Ásgeirs Jónssonar skógfræðings og starfsmanns Skógræktarfélags Íslands. „Jón ásamt fimm erlendum starfsmönnum komu til okkar síðastliðið…Lesa meira

true

Erfðaskrá ógilt þar sem lögerfingi reyndist vera til

Héraðsdómur Vesturlands hefur með úrskurði fellt úr gildi erfðaskrá manns sem lést árið 2016. Breytast með þeim úrskurði skipti á dánarbúi eins og getið hafði um í erfðaskrá mannsins sem gerð hafði verið 2004. Í ljós kom að maðurinn hafði átt óskilgetinn son sem ekki var getið um í erfðaskrá, enda hafði sonurinn verið feðraður…Lesa meira

true

Nýtt gullsmíðaverkstæði opnað í Leir 7

Greta Maria Árnadóttir opnaði gullsmíðaverkstæði í húsnæði Leir 7 í Stykkishólmi á laugardaginn. Greta fæddist í Reykjavík en flutti til Danmerkur sex ára gömul og hefur búið þar síðan. Árið 2007 hóf hún nám í gullsmíði sem hún lauk árið 2011. Þá tók við tveggja ára tímabil þar sem hún ferðaðist um heiminn og vann…Lesa meira