Fréttir

true

Valdís gerði vel í Tælandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 19. sæti á Ladies European Thailand Championship mótinu í Tælandi nú um helgina. Mótið var liður í Evrópumótaröð kvenna. Fyrstu tvo hringi mótsins lék hún á 71 höggi, einu undir pari. Komst hún því örugglega í gegnum niðurskurðinn á samtals tveimur höggum undir pari í 17.…Lesa meira

true

Leikfangasafn opnað í Borgarnesi

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní opnaði Margrét Rósa Einarsdóttir leikfangasafn í Englendingavík í Borgarnesi. „Þetta safn samanstendur af safni sem var í Iðnó, safni frá Ósk Elínu Jóhannesdóttur og líka frá vinum og ættingjum. Munir sem ég hef verið að sanka að mér hægt og rólega í gegnum tíðina“ segir Margrét í samtali við Skessuhorn. Hún…Lesa meira

true

Fjölgar um þriðjung í verk- og starfsnámi

Nemendum sem innritast á verk- eða starfsnámsbrautir framhaldsskóla landsins fjölgar um 33% frá síaðsta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Menntamálastofnun var mest ásókn í nám í rafiðngreinum, til dæmis rafeindavirkjun, rafveituvirkjun, rafvélavirkjun, rafvirkjun og hljóðtækni. Einnig var mikil ásókn í málmiðngreinar, s.s. blikksmíði, rennismíði, stálsmíði og vélvirkjun. Flestir nemendur innritast á bóknáms- eða listnámsbrautir til stúdentsprófs,…Lesa meira

true

Valdís Þóra í góðum málum

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, lék annan hringinn á Ladies European Thailand Championship mótinu á 71 höggi, einu undir pari. Er það sama skor og á fyrsta hringnum sem leikinn var í gær. Valdís lék nokkuð stöðugt golf í dag, fékk fjóra fugla og tapaði aðeins þremur höggum á öllum hringnum. Eftir daginn er…Lesa meira

true

Linda Björk ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar

Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Tilkynnt var um ráðninguna á heimasíðu sveitarfélagsins í dag. Hún hefur starfað sem skrifstofustjóri Hvalfjarðarsveitar frá miðjum júlímánuði á síðasta ári. Linda er rekstrarfræðingur að mennt og starfaði hjá Landsbankanum á Akranesi frá 2011 til 2017, síðast sem viðskiptastjóri. Þar áður var hún fjármálastjóri Borgarbyggðar 2006 til…Lesa meira

true

Opnuðu smáhýsagistingu í Hörðudal

Í Hlíð í Hörðudal í Dalasýslu hafa hjónin Guðrún Björg Bragadóttir og Guðlaugur Sigurgeirsson opnað lítið ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur fengið nafni Dalahyttur. Þar hafa þau sett upp þrjú smáhýsi og móttökuhús með litlum matsal. Smáhýsin eru 12 fermetrar að stærð vel búin með baðherbergi, eldunaraðstöðu og svefnplássi fyrir þrjá. Þau Guðrún og Guðlaugur fluttu úr…Lesa meira

true

Valdís fór vel af stað í Tælandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golklúbbnum Leyni, leikur nú á móti í Tælandi. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Hún lék vel á fyrsta hringnum í gær, fékk tvo fugla, þrjá skolla og gerði sér lítið fyrir og fékk örn á 7. holu. Hún kláraði hringinn á 71 höggi, eða einu undir pari. Skilaði það…Lesa meira

true

Fleiri gista í tjaldi

Gestum á tjaldsvæðum í Snæfellsbæ fjölgaði töluvert í maí síðastliðnum samanborið við maí í fyrra, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Í ár nýttu 1.427 ferðalangar sér tjaldsvæði í Snæfellsbæ í maímánuði en í fyrra voru þeir 1.145. Þetta er fjölgun upp á 24,63%. Tjaldsvæðin í Snæfellsbæ eru tvö; í Ólafsvík og á…Lesa meira

true

„Virðist ekki hafa notað opinbert sjókort“

Skessuhorn greindi frá því fyrir skemmstu þegar Grettir BA, skip Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, strandaði á grynningum skammt frá Stykkishólmi. Greint var frá því að ástæða strandsins hafi verið sú að grynningarnar hafi verið ranglega merktar inn á sjókort sem siglt var eftir. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, hafði samband við Skessuhorn í gær vegna þessa. Hann…Lesa meira

true

Skógardagur í Skorradal

Á morgun, laugardaginn 23. júní, verður haldinn skógardagur í Selskógi í Skorradal. Verkefnið er samstarfsverkefni þriggja máttarstólpa í skógrækt á Vesturlandi, en það eru Skógræktin, Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Félag Skógareigenda á Vesturlandi. Skógardagurinn er liður í átaksverkefni sem nefnist Líf í lundi og halda Skógræktarfélag Íslands, Landssamband skógareigenda og Skógræktin utan um það verkefni. Tilgangur…Lesa meira