Fréttir

true

Björg Ágústsdóttir ráðin bæjarstjóri í Grundarfirði

Björg Ágústsdóttir verður nýr bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Tillaga um ráðningu hennar í starfið var samþykkt samhljóða á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar í dag. Björg mun hefja störf 9. ágúst næstkomandi. Tekur hún við starfinu af Þorsteini Steinssyni, sem hefur verið bæjarstjóri undanfarin fjögur ár, eða frá árinu 2014. Björg er Grundfirðingur, lögfræðingur að mennt, með mastersgráðu…Lesa meira

true

Tóku öll völd á vellinum í síðari hálfleik

Víkingur Ó. gerði góða ferð norður til Akureyrar í gær þar sem liðið sigraði Þór með tveimur mörkum gegn engu í 1. deild karla í knattspyrnu. Sólskin og gola var norðan heiða á leikdegi og aðstæður til knattspyrnuiðkunar góðar. Jafnræði var með liðunum og leikurinn fjörugur framan af fyrri hálfleik. Heimamenn voru meira með boltann…Lesa meira

true

Segir Hval meina starfsfólki sínu að vera í VLFA

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir í pistli á Facebook-síðu sinni í gær að forsvarsmenn Hvals hf. hafa bannað starfsfólki sínu að vera meðlimir í Verkalýðsfélagi Akraness. „Þegar starfsmenn komu til fundar með forsvarsmönnum Hvals í morgun [miðvikudaginn 20. júní; innskot blaðamanns] þá var þeim tilkynnt að enginn mætti vera í Verkalýðsfélagi Akraness heldur yrðu…Lesa meira

true

ÍA burstaði Magna

ÍA vann stórsigur á Magna, 5-0, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru með besta móti á Akranesi þegar liðin áttust við, örlítil gola, sólskin og hlýtt í veðri. Skagamenn höfðu yfirburði í leiknum og komust yfir strax á 16. mínútu þegar Albert Hafsteinsson skoraði eftir sendingu…Lesa meira

true

Íslenska ríkið tekur við Hvalfjarðargöngum í haust

Gjaldtöku verður hætt í september Íslenska ríkið tekur við Hvalfjarðargöngum í haust og einkahlutafélaginu Speli, sem á og rekur göngin, verður slitið. Gjaldheimtu í göngin verður hætt í septembermánuði. Nánari tímasetning verður að líkindum ákveðin og tilkynnt í ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Spalar. „Sá möguleiki var ræddur fyrst á árinu 2009…Lesa meira

true

Hvalveiðar hafnar að nýju

Hvalveiðar hófust að nýju eftir tveggja ára hlé síðastliðið þriðjudagskvöld þegar Hval 8 var siglt til veiða. Tvö hvalveiðiskip verða gerð út í sumar, Hvalur 8 og Hvalur 9. Búist er við því að síðarnefndi báturinn haldi á miðin um helgina. Haft er eftir Kristjáni Loftssyni, stjórnarformanni Hvals hf., í Morgunblaðinu í dag að veðrið…Lesa meira

true

Heilt yfir góður gangur í grásleppunni

Grásleppuvertíðin við innanverðan Breiðafjörð stendur nú sem hæst. Flestum grásleppubátum í landshlutanum er róið frá Stykkishólmi. Einn þeirra sem rær á grásleppu er Einar Jóhann Lárusson í Ögri, sem rær á Kviku SH-292. „Þetta er einn af minnstu bátunum í flotanum,“ segir Einar í samtali við Skessuhorn. Faðir hans, Lárus Franz Hallfreðsson, rær til skiptis…Lesa meira

true

B59 Hotel hefur verið opnað í Borgarnesi

Opnunarhátíð nýs fjögurra stjörnu lúxushótels, B59 Hotel, fór fram síðastliðinn föstudag í Borgarnesi. Capital hotels rekur B59 Hotel, sem dregur nafnið sitt af staðsetningunni miðsvæðis í bænum að Borgarbraut 59, beint á móti Hyrnutorgi. Léttar veitingar og tónlistaratriði frá Hljómlistarfélagi Borgarness var í boði fyrir gesti og gangandi sem fengu að ganga um nýja hótelið…Lesa meira

true

Þrjár sýningar í boði á sumarleikári í Frystiklefanum

Nú er sumarleikár Frystiklefans í Rifi á Snæfellsnesi formlega hafið. Að sögn Kára Viðarssonar leikhússtjóra eru þrjár leiksýningar í gangi í húsinu þessi misserin. Sýningarnar eru Journey To The Centre Of The Earth: The Musical, Humours og Bizarre. „Journey To The Centre Of The Earth hefur nú sitt þriðja leikár í klefanum en sýningin hefur…Lesa meira

true

Gylfi hættir sem forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslansd, ætlar ekki að bjóða sig fram til endurkjörs á þingi ASÍ næsta haust. Hann tilkynnti þetta á miðstjórnarfundi sambandsins í dag. Gylfi hefur verið forseti ASÍ undanfarinn áratug. Hann var fyrst kjörinn í október 2008 og hefur fjórum sinnum verið endurkjörinn. Hann kom fyrst til starfa hjá verkalýðshreyfingunni 1989 sem…Lesa meira