Fréttir

true

Skagakonur töpuðu suður með sjó

Skagakonur máttu játa sig sigraðar fyrir Keflavík, 2-0, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var suður með sjó. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri háfleik, sem einkenndist af mikilli stöðubaráttu inni á vellinum. Skagakonur náðu að skapa sér ágæt tækifæri en tókst ekki að gera sér mat úr…Lesa meira

true

Baldur siglir að nýju eftir bilun

Siglingar Breiðafjarðarferjunnar Baldurs eru hafnar að nýju eftir stutt hlé vegna bilunar. Verður skipinu siglt samkvæmt áætlun frá og með deginum í dag, að því er fram kemur á heimasíðu Sæferða. Bilun kom upp í bátnum síðastliðinn föstudag og var undireins hafist handa við viðgerð. Varahlutur sem panta þurfti erlendis frá kom til landsins í…Lesa meira

true

Tekið fyrir flutning greiðslumarks milli lögbýla í eigu sama aðila

Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra gaf út reglugerð 15. júní síðastliðinn þar sem tekið er fyrir tilfærslu greiðslumarks mjólkur milli lögbýla í eigu sama aðila. Þessi reglugerðarbreyting tók strax gildi. Í henni segir m.a. orðrétt: „Tilfærsla greiðslumarks er þó aðeins heimil ef handhafi getur sýnt fram á með þinglýstu afsali að öll lögbýli sem tilfærsla greiðslumarksins…Lesa meira

true

Flutti lag sitt á hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu

Ungur nemandi Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Kristján Karl Hallgrímsson frá Vatnshömrum í Andakíl, kom fram við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu 17. júní síðastliðinn á samkomu þar sem ný hátíðarútgáfa af Íslendingasögum og þáttum var afhent. Kristján Karl flutti þar eigið lag við ljóð Sigríðar Einarsdóttur frá Munaðarnesi, sem var fædd árið 1893. Viðstödd voru m.a. Vigdís Finnbogadóttir…Lesa meira

true

Búin að stofna einkahlutafélagið Krúttin

Hjónin Daníel BJ Guðrúnarson og Kristjana G Bjarnadóttir eru búsett á Akranesi. Nýverið létu þau gamlan draum rætast og hafa stofnan fyrirtækið Krúttin ehf. og hafa nú fengið kennitölu og bíða eftir að fá virðisaukanúmer afhent hjá skattinum. „Með þessu erum við að láta gamlan draum verða að veruleika. Okkur skilst að það séu mjög…Lesa meira

true

Diðrik á Helgavatni barðist ungur í síðari heimsstyrjöldinni:

Diðrik Vilhjálmsson fæddist í Þýskalandi árið 1927. Hann var aðeins tólf ára gamall þegar heimsstyrjöldin síðari skall á og mótaðist æska hans og uppvöxtur nokkuð af því. Að endingu var hann, eins og svo margir ungir menn, kvaddur í herinn og gegndi herskyldu síðustu mánuðina sem stríðið geisaði. Hann nam landbúnað og fluttist síðar til…Lesa meira

true

„Alltaf haft gaman af mat og eldamennsku“

Ari Jónsson Akurnesingur er nýkominn heim til Íslands frá Ítalíu þar sem hann aðstoðaði við framlag Íslands í einni virtustu matreiðslukeppni í heimi, Bocuse d‘Or. Hann, ásamt tveimur öðrum Skagamönnum, hjálpaði Bjarna Siguróla Jakobssyni að kalla fram dýrindis máltíðir fyrir framan dómara og áhorfendur og komust þeir áfram í lokakeppnina sem fram fer í Lyon…Lesa meira

true

Undirlyftustöng gaf sig í Akurey

Það óhapp varð aðfararnótt mánudags að undirlyftustöng í aðalvélinni á ísfisktogaranum Akurey AK brotnaði. Varðskipið Þór dró skipið til hafnar og voru skipin komin til hafnar í Reykjavík um hádegisbil á þriðjudag. Að sögn Eiríks Jónssonar skipstjóra var togarinn staddur í kantinum norður af Patreksfirði þegar óhappið varð. Rúmur sólarhringur var eftir af áætlaðri veiðiferð…Lesa meira

true

Færðu HVE í Ólafsvík Ipad tæki í sjúkrabíla

Lionsklúbbur Ólafsvíkur færði nýverið HVE í Ólafsvík Ipad og festingingu til notkunar í sjúkrabílum stöðvarinnar. Búið er að taka Ipadana í notkun og að sögn sjúkrabílstjóra eru tækin bylting fyrir þá þar sem nú geti þeir fengið allar upplýsingar frá Neyðarlínu beint í tækin. Mun það einnig gera staðsetningar nákvæmari og auðvelda þeim vinnu þar…Lesa meira

true

Ingibjörg Birna hættir sem sveitarstjóri Reykhólahrepps

Ingibjörg Birna Erlingsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldand starfa sem sveitarstjóri Reykhólahrepps. Hefur hún tilkynnt oddvita um ákvörðun sína. Frá þessu greinir Ingibjörg í færslu sem hún ritar á Reykhólavefinn. Hún hefur gegnt starfinu síðustu átta ár, eða undanfarin tvö kjörtímabil. Áður starfaði hún sem skrifstofustjóri Hvalfjarðarsveitar, frá vordögum 2006…Lesa meira