Fréttir

true

Jógahátíð framundan á Lýsuhóli

Jógahátíð á sumarsólstöðum verður dagana  21. – 24. júní nk. á Lýsuhóli á sunnanverðu Snæfellsnesi. „Komum og stillum hjörtun sama á glæsilegri jógahátíð. Sýnum sjálfum okkur og öðrum kærleik og styrkjum samfélagið. Syngjum möntrur saman undir leiðsögn Kevin James Carroll, tónlistarmanns frá Ástralíu sem gefið hefur út fjölda diska,“ segir í tilkynningu. Á dagskrá verður…Lesa meira

true

Krakkarnir funduðu um mikilvæg mál

Börn á sumarnámskeiði á Reykhólum heimsóttu starfsfólk hreppsskrifstofu Reykhólahrepps á dögunum og kynntu sér starfsemina þar. Krakkarnir fengu sér sæti í fundarherbergi og blésu til sveitastjórnarfundar þar sem mikilvæg mál voru rædd og margar hugmyndir litu dagsins ljós. Krakkarnir vildu m.a. fá aparólu í þorpið, rennibraut í sundlaugina, fleiri bækur á bókasafnið og nýja girðingu…Lesa meira

true

Mikil vinna að baki uppbyggingu Sjóminjasafnsins á Hellissandi

Sjóminjasafnið á Hellissandi var opnaði að nýju eftir veturinn á sjómannadaginn með opnun á ljósmyndasýningu Karls Jeppesens. Myndirnar eru úr bók Karls „Fornar hafnir, útvegur úr aldanna rás“ og var sýningin sett upp í nýju móttökuhúsi Sjóminjasafnsins sem byggt var í vetur. Þessi nýja viðbygging er um 70 fermetrar að stærð og kemur hún til…Lesa meira

true

Úthlutað úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar

Nýverið fengu 30 skólar víðs vegar á landinu úthlutaðan fjárstyrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Heildarúthlutun sjóðsins fyrir þetta ár er 4,1 milljón króna í formi fjárstyrkja og lítið eitt hærri upphæð í formi tölvubúnaðar. Styrkurinn skal nýttur í að þjálfa kennara til að búa betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur og skuldbinda sig til að hafa…Lesa meira

true

Nýr Þorsteinn SH bætist í flotann í Ólafsvík

Þorsteinn SH, nýr bátur sem Nesver ehf. keypti nýverið, er kominn til heimahafnar í Ólafsvík. Að sögn Gylfa Scheving Ásbjörnssonar skipstjóra hafði Nesver átt minni bát með sama nafni áður en skipti á þeim báti og þessum nýja. Þorsteinn SH er af gerðinni Kleópatra 38 og er með 700 hestafla vél. Báturinn er útbúinn á…Lesa meira

true

Bilun kom upp í Baldri

Farþega- og bílferjan Baldur bilaði á föstudaginn og hefur skipinu ekki verið siglt síðan. Unnið hefur verið að viðgerð frá því bilunin kom upp. Farið var í gær á Særúnu til Flateyjar. Í tilkynningu biðja Sæferðir farþega afsökunar á óþægindum sem þetta veldur.Lesa meira

true

Eðvarð Lárusson er Bæjarlistamaður Akraness

Eðvarð Lárusson tónlistarmaður, oftast kallaður Eddi Lár, er bæjarlistamaður Akraness árið 2018. Útnefning hans var kynnt á hátíðarhöldum á Akratorgi í gær. Eddi hóf ungur að árum að leika á gítar og lærði gítarleik fyrst í Tónlistarskólanum á Akranesi og síðar í Tónlistarskóla FÍH þaðan sem hann útskrifaðist frá djassdeild árið 1991. Hann hefur á…Lesa meira

true

Vantar nöfn á nokkrar fjallkonur

Á vef Akraneskaupstaðar má nú finna yfirlit yfir fjallkonur á Akranesi í gegnum tíðina, allt frá lýðveldisstofnun. Í yfirlitið vantar upplýsingar um fjallkonur nokkurra ára. “Ábendingar um það sem vantar í yfirlitið eru mjög vel þegnar sem og myndir af þeim fjallkonum þar sem þær vantar. Best er að fá ábendingar sendar á netfangið akranes@akranes.is,”…Lesa meira

true

Rólegt hjá lögreglunni í síðustu viku

Síðasta vika var nokkuð róleg hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Um 40 ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka of hratt en töluvert fleiri voru teknir af myndavélunum. Tvö minniháttar fíkniefnabrot komu inn á borð þar sem handlagt var smávegins kannabis, neysluskammtar.Lesa meira

true

Aflamark ýsu og ufsa hækkað umtalsvert

Einnig smávægileg hækkun í þorski Hafrannsóknastofnun kynnti á miðvikudag úttekt á ástandi nytjastfona og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark fyrir á þriðja tug stofna. Miðað er við varúðarsjónarmið og hámarksnýtingu til lengri tíma litið. Ráðlagt aflamark ýsu er 57.982 tonn fyrir fiskveiðiárið 2018 til 2019. Það…Lesa meira