Fréttir

true

Heitir nú Náttúruhamfaratrygging Íslands

Viðlagatrygging Íslands, sem hefur það hlutverk að vátryggja gegn beinu tjóni af völdum náttúruhamfara, svo sem eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjó- og vatnsflóða, fær nafnið Náttúruhamfaratrygging Íslands, skammstafað NTÍ, frá 1. júlí næstkomandi þegar breytingar á lögum um starfsemi stofnunarinnar taka gildi. Alþingi samþykkti þessi lög í byrjun maí. Með breytingunum er það hlutverk stofnunarinnar að…Lesa meira

true

FVA er lýðræðislegasti framhaldsskólinn

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi er lýðræðislegasti framhaldsskóli landsins, samkvæmt niðurstöðum Skuggakosninganna sem fram fóru 12. apríl síðastliðinn. Skuggakosningarnar voru haldnar í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar í vor og eru hápunktur lýðræðisherferðiarinnar Ég kýs. Herferðin er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands ungmennafélaga. Lagt er upp með að kosningarnar séu sem líkastar almennum kosningum, með kjörkössum, kjörseðlum…Lesa meira

true

Nærri tvö þúsund brautskráðir frá HÍ

Nærri tvö þúsund kandídatar voru brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi við Háskóla Íslands á laugardaginn á tveimur athöfnum. Fyrst vor útskrifaðir 745 kandídatar úr framhaldsnámi og 748 tóku við prófskírteinum. Meðal þeirra sem útskráðust úr meistaranámi eða kandídatsnámi voru fyrstu nemendurnir sem ljúka námi með MS gráðu í hagnýtri sálfræði. Alls brautskráðust 1219 kandídatar úr…Lesa meira

true

ÍA lá fyrir Fylki

Skagakonur máttu játa sig sigraðar fyrir Fylki, 4-1, í sjöttu umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag. Leikið var á Fylkisvelli í Árbænum í Reykjavík. Heimaliðið kom mjög ákveðið til leiks og náði forystunni strax á 6. mínútu þegar Marija Radojicic skoraði. Skagkonur komust betur inn í leikinn eftir því sem leið á en…Lesa meira

true

Fyrsta langreyðurin veidd

Fyrsta langreyður nýhafinnar hvalvertíðar var dregin á land í hvalstöðinni í Hvalfirði seint á fimmtudagskvöld. RÚV greindi frá. Langreyðurin var 67 feta löng og 80 tonn að þyngd. Það var Hvalur 8, sem siglt var á miðin á mánudagskvöld, sem kom með dýrið að landi. Þar voru sýni tekin úr því og hvalurinn síðan skorinn.Lesa meira

true

Vilja gera Húsafell að áfangastað sem allir vilja heimsækja

Á undanförnum árum hefur mikil uppbygging átt sér stað á Húsafelli í Borgarfirði. Þar var Hótel Húsafell opnað árið 2015 og hefur hótelið nú fengið viðurkenningu National Geographic Unique Lodges of the World sem framúrskarandi gististaður á heimsvísu. Til að fá þessa viðurkenningu þarf að uppfylla mjög strangar gæðakröfur en aðeins um 60 aðrir gististaðir…Lesa meira

true

Fyrsti veitingastaðurinn opnaður á Reykhólum

Veitingastaðurinn 380 Restaurant var opnaður á Reykhólum 14. júní síðastliðinn. Staðurinn verður rekinn af hjónunum Reyni Þór Róbertssyni og Ásu Fossdal en þau reka Hólabúð á Reykhólum. „Þetta er fyrsti veitingastaðurinn sem opnaður er á Reykhólum og er langþráður draumur að rætast. Til að byrja með verðum við með sæti fyrir 24 en salurinn getur…Lesa meira

true

Hægt að skoða Vesturland í vefsjá

Vefsjá fyrir Vesturlands hefur verið gerð aðgengileg á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Innan skamms verður einnig hægt að skoða hana á heimasíðu Vesturlandsstofu, www.west.is. „Vefsjáin hefur að geyma fjölmargar upplýsingar um Vesturland og er sérstakleg ahugsuð fyrir ferðamenn. Vefsjáin var unnin í tengslum við verkefnið Áfangastaðaáætlun Vesturlands DMP og er fjármögnuð af Sóknaráætlun Vesturlands,“…Lesa meira

true

Féll fyrir björg á Arnarstapa

Stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands fékk tilkynningu frá neyðarlínunni kl. 12:30 í dag þess efnis að maður hefði fallið fram af klettum við Miðgjá á Arnarstapa og væri þar í sjónum. Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út auk þess sem þrír heimamenn réru á Gesti SH á staðinn og öðrum bátum var beint þangað. Voru það mennirnir á…Lesa meira

true

Hægviðri og rigning í kortunum

Rigning og hægviðri verður nú síðdegis víðast hvar á Vesturlandi, en helst er að rigningin verði seinna á ferðinni við Breiðafjörð og þar fari ekki að rigna fyrr en í kvöld. Gengur í vestanátt 10-15 m/s með skúrum um allan landshlutann í nótt. Suðlægari áttir á Faxaflóasvæðinu á morgun og úrkomuminna annað kvöld, mánudag. Suðvestan…Lesa meira