
Evrópumót í sjóstangveiði var sett við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík síðastliðinn sunnudag. Setningin hófst með skrúðgöngu og trommuslætti frá North Star Hotel Ólafsvík að félagsheimilinu. Fánum bæði félaga og þeirra landa sem þátt taka í mótinu var haldið á lofti. Í Klifi setti Horst Schneider forseti EFSA mótið. Kristinn Jónasson bæjarstóri flutti…Lesa meira








