Fréttir

true

Kosningaþátttaka á Vesturlandi var afar mismunandi

Kosið var til sveitarstjórna síðastliðinn laugardag. Hér á Vesturlandi voru listakosningar í sex sveitarfélögum en í fimm var persónukjör, að Reykhólahreppi meðtöldum. Kjörsókn var töluvert yfir landsmeðaltali í þessum ellefu sveitarfélögum, eða 78,72% að meðaltali. Mest var kjörsókn í Skorradalshreppi eða 88,64% og í Stykkishólmi 88,48%. Minnst var hún hins vegar 68,75% í Reykhólahreppi og…Lesa meira

true

„Ég þurfti að taka ákörðun á sekúndubroti“

„Við vorum svo heppnir að það var stillt veður, en það var skítakuldi. Alveg átta gráðu frost,“ segir Hermundur Pálsson sem var við síldveiðar með föður sínum Páli Guðmundssyni á bátnum Hönnu Ellerts SH 4 þegar hann fór útbyrðis með netunum. Hanna Ellerts SH 4 er um 13 tonna og 10 metra langur bátur sem…Lesa meira

true

Bjarki og félagar komust ekki áfram

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson og félagi hans Gísli Sveinbergsson luku á mánudag keppni á NCAA úrslitamótinu í bandaríska háskólagolfinu. Báðir leika þeir fyrir Kent State háskólann. Þeir félagar voru aðeins hársbreidd frá því að komast áfram í holukeppnina, en aðeins munað tveimur höggum á þeim og næsta liði sem fór áfram. Leiknir voru fjórir höggleikshringir og…Lesa meira

true

Nýir rekstraraðilar í Bjarkalundi

Hildur Árnadóttir og Elísabet Agnarsdóttir hafa tekið rekstur Hótels Bjarkalundar í Reykhólasveit á leigu fram á haustið. Elísabet er hótelstjóri að mennt og rekur Thomsen Apartments í Reykjavík. Hildur er innanhússhönnuður með áralanga reynslu af rekstri og stjórnun. Munu þær leggja áherslu á einfaldan og góðan matseðli í Bjarkalundi, gott kaffi og bakkelsi og ýmislegt…Lesa meira

true

Vegglistarsýning á Hellissandi

Fjölþjóðlegur hópur listamanna er um þessar mundir að taka þátt í verkefninu Hellissandur; Street Art Capital of Iceland, þar sem unnið er að veggjaskreytingum. Hugmyndin að þessu kemur frá Kára Viðarssyni fjöllistamanni í Frystiklefanum. Listamennirnir eru búnir að mála veggi víða í þorpinu eins og t.d. veggi gamla frystihússins á Sandi.Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Með Skessuhorni sem kom út í dag fylgir 36 síðna blað helgað sjómannadeginum næstkomandi sunnudag. Í blaðinu er m.a. rætt við sjómenn víðsvegar um landshlutann og fólk sem tengist útgerð og þjónustugreinum sjávarútvegs, ýmist í stuttu bryggjuspjalli eða lengri viðtölum. Blaðið verður, auk hefðbundinnar dreifingar í dag, sent á öll heimili og fyrirtæki á Snæfellsnesi…Lesa meira

true

Keppt í Mjólkurbikarnum

Leikið verður í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu í dag og á morgun. Þar munu þrjú Vesturlandslið etja kappi; ÍA, Víkingur Ó. og Kári. ÍA og Víkingur Ó. leika bæði í kvöld, miðvikudaginn 30. maí. ÍA mætir úrvalsdeildarliði Grindavíkur á útivelli og Víkingur Ó. heimsækir Fram. Báðir þessara leikja hefjast kl. 19:15. Á…Lesa meira

true

Í samstarf við HÍ um Ugluna

Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tölvukerfið Ugla, sem er í eigu Háskóla Íslands, verði innleitt hjá Háskólanum á Bifröst á árinu 2019. Uglan hefur hingað til eingöngu verið notuð sem megintölvukerfi opinberu háskólanna þannig að hér er um nokkur tímamót að ræða…Lesa meira

true

Endurtalning breytti engu um niðurstöðuna í Borgarbyggð

Búið er að telja að nýju atkvæði sem greidd voru í Borgarbyggð til sveitarstjórnarkosninganna á laugardaginn. „Niðurstaða endurtalningar á atkvæðum í Borgarbyggð nú í dag breytir engu um úrslit kostningana,“ segir í tilkynningu frá kjörstjórn sem rétt í þessu var að ljúka endurtalningu.Lesa meira

true

Vellíðan og Vinátta í öndvegi hjá Uglukletti

Leikskólinn Ugluklettur hefur fengi úthlutað styrk upp á 1,2 milljón króna úr Sprotasjóði fyrir verkefnið Vellíðan og Vinátta í skólasamfélagi. Árið 2013 varð skólinn tilraunaleikskóli fyrir verkefnið Vinátta – Fri for Mobberi á vegum Barnaheilla og hefur gefist vel að nýta efni verkefnisins í sérstökum stundum en nú er áætlað að taka verkefnið skrefinu lengra…Lesa meira