Fréttir

true

Á steinbítsveiðar á Guðbjarti SH

Vormánuðina mars og apríl gerðu línubátar af Snæfellsnesi góða steinbítstúra við Látrabjarg, syðsta odda Vestfjarðakjálkans. Sumir komu með fulla báta að landi úr þessum ferðum. Einn eftirmiðdaginn í apríl hringdi síminn hjá fréttaritara Skessuhorns í Snæfellsbæ. „Viltu gera mér greiða; já eða nei?“ Í símanum var útgerðarmaður Guðbjarts SH frá Rifi, Þorvarður Jóhann Guðbjartsson sem…Lesa meira

true

Víkingur Ó. áfram í bikarnum

Víkingur Ó. tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Maltbikars karla með 0-1 útisigri á Fram í gærkvöldi. Heimamenn byrjuðu af krafti en Víkingur Ó. var engu að síður sterkara liðið í fyrri hálfleik. Það kom því ekki mikið á óvart þegar þeir komust yfir á 36. mínútu. Ívar Reynir Antonsson fékk boltann hægra megin…Lesa meira

true

Dramatískur sigur Skagamanna

ÍA tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær eftir dramatískan útisigur á Grindavík, 1-2. Fyrri hálfleikur var markalaus en strax í upphafi þess síðari dró til tíðinda þegar Skagamenn komust yfir. Bjarki Steinn Bjarkason geystist upp vinstri kantinn og renndi boltanum fyrir markið. Þar var Steinar Þorsteinsson réttur maður á réttum stað…Lesa meira

true

Bændur hyggjast fjárfesta fyrir 6,6 milljarða í nautgriparækt

Matvælastofnun hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt vegna framkvæmda á árinu 2018. 190 umsóknir bárust. Af þeim voru 181 umsókn samþykkt, þar af 77 framhaldsumsóknir, en níu umsóknum var hafnað. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á þessu ári er samkvæmt samþykktum umsóknum um 6,6 milljarðar króna. Matvælastofnun hefur til úthlutunar samkvæmt fjárlögum…Lesa meira

true

Vinstri umferðin var sérlega bagaleg fyrir konur sem riðu um í söðli!

Laugardaginn 26. maí síðastliðinn voru rétt 50 ár liðin frá því hægri umferð var tekin upp hér á landi. Allt frá upphafi bílaaldar á Íslandi var ekið á vinstra helmingi vegarins og lengi fram eftir 20. öldinni voru fluttir inn bílar með stýrinu hægra megin, þó að það væri ekki regla. Ísland var hins vegar…Lesa meira

true

Ferðamenn vilja komast á sjóinn

Gísli Ólafsson stendur á bak við hvalaskoðunarfyrirtækið Láki Tours á Grundafirði. Hann hefur lengi verið tengdur sjónum, þrátt fyrir að vera menntaður búfræðingur. „Ég er menntaður búfræðingur á Hólum en maður hefur verið í hinu og þessu í gegnum tíðina,“ segir hann hratt og á virkilega við að hann hafi verið í hinu og þessu.…Lesa meira

true

Eldsmíðahátíð að hefjast á Akranesi

Dagana 31. maí til 3. júní verður Eldsmíðahátíð haldin á svæði Byggðasafnsins í Görðum á Akranesi. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði. Haldin verða námskeið fyrir byrjendur sem lengra komna og ásamt sýnikennslu í eldsmíði. Rúsínan í pylsuendanum verður sem fyrr Íslandsmeistaramótið í eldsmíði sem haldið verður á sunnudaginn. „Lögð verður áhersla á verkfærasmíði á hátíðinni…Lesa meira

true

Hætti á frystitogara eftir aldarfjórðung þar og keypti sér smábát

Hann kemur út á svalainnganginn um leið og ég labba inn á þriðju hæðina úr stigaganginum á nýju þriggja hæða fjölbýlishúsi við Asparskóga á Akranesi. „Það er eitthvað samband á milli okkar nafni, ég fann á mér að þú værir að koma,“ segir Haraldur Jónsson, sjómaður í rúmlega hálfa öld. Alltaf kallaður Haddi Jóns, fæddur…Lesa meira

true

„Fyrsta og eina golfhótelið á Íslandi“

„Velkomin í nýja klúbbhúsið,“ segir Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness, þegar blaðamaður gengur inn á Hótel Hamar í Borgarnesi. Jóhannes er þar ásamt Sigurði Ólafssyni hótelstjóra til að fræða Skessuhorn um breytingar á rekstri klúbbsins og hótelsins. Þannig er mál með vexti að Golfklúbbur Borgarness og Icelandair Hótel Hamar hafa samið um að hótelið annist…Lesa meira

true

Kútter leggst að bryggju á Akranesi á morgun

Færeyski kútterinn Westward HO er væntanlegur til hafnar á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 31. maí. Þegar þessi orð eru rituð er kútterinn staddur suður af Íslandi, á leið til Vestmannaeyja þar sem skipið mun leggjast að bryggju síðar í dag. Á morgun kemur kútterinn til hafnar á Akranesi og því næst verður siglt yfir Faxaflóann…Lesa meira