Fréttir

true

Jafnt á Akranesvelli

ÍA og Njarðvík skildu jöfn, 2-2, í fjórðu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikið var á Akranesi á föstudag. Gestirnir fengu óskabyrjun og komust yfir strax á 4. mínútu leiksins. Njarðvíkingar komust inn í slaka sendingu Skagamanna á miðsvæðinu. Þeir léku sín á milli þar til Stefán Birgir Jóhannesson fékk boltann á vinstri kanti.…Lesa meira

true

Fyrsta hlaðan á Snæfellsnesi opnuð

Það var Sandarinn Þröstur Kristófersson sem í síðustu viku fékk fyrstu hleðsluna á bíl sinn úr nýrri hraðhleðslu Orku náttúrunnar í Ólafsvík. Hlaðan stendur við þjónustustöð Orkunnar og er fyrsta hlaða ON á Snæfellsnesi og fyrsta hraðhleðslan á Nesinu. Nú vinnur Orka náttúrunnar einnig í að koma upp hraðhleðslustöð nálægt Vegamótum. Þröstur býr á Hellissandi…Lesa meira

true

Hvasst á Vesturlandi á morgun

Sólin lætur sjá sig um allt land í dag og víða á morgun en þá gæti 20 gráðu múrinn verið rofinn á landinu. Hitinn verður þó ekki svo mikill á Vesturlandi og þó sólin láti sjá sig er spáð töluverðum vindi á Vesturlandi á morgun. Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að vindhviður á Vesturlandi gætu orðið…Lesa meira

true

Íslandsbanki styður áfram við KFÍA

Nýverið skrifuðu fulltrúar Knattspyrnufélags ÍA og Íslandsbanka undir endurnýjun á samstarfssamningi. Íslandsbanki hefur verið dyggur stuðningsaðili KFÍA um margra ára skeið og með þessum samstarfssamningi mun bankinn halda áfram að styðja vel við bakið á knattspyrnufólki á Akranesi. Samningurinn er til tveggja ára. „Íslandsbanki hefur verið mikilvægur stuðningsaðili við fótboltann á Akranesi í mörg ár…Lesa meira

true

UDN fagnar aldarafmæli

Ungmennasamband Dalamanna og Norður Breiðfirðinga, UDN, átti aldarafmæli síðastliðinn fimmtudag, 24. maí. Stefnt er að því að afmælinu verði fagnað í sumar, að því er kemur fram á vef sambandsins. Sambandið á rætur sínar að rekja til Hjeraðssambands Dalamanna sem stofnað var 24. maí 1918 af félögunum: Umf. Ólafi Pá, Unni Djúpúðgu, Umf. Dögun og…Lesa meira

true

Nýtt húsnæði FSS tekið í notkun í Ólafsvík

Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS) tók síðastliðinn fimmtudag formlega í notkun nýtt húsnæði fyrir Smiðjuna við Ólafsbraut 19 í Ólafsvík. Þar var síðast rekin blómabúð. Þar verður rekin dagþjónustu- og hæfingarstöð FSS fyrir fatlaða og aðra með skerta starfsgetu. Byggðasamlagið sér um rekstur FSS og festi það kaup á þessu húsnæði undir starfsemina. Unnið hefur…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Í gær var útskriftarathöfn í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þegar 65 nemendur luku námi. Fyrir athöfnina lék hljómsveit skipuð nemendum úr FVA og Tónlistarskóla Akraness ásamt Eiríki Guðmundssyni kennara nokkur vel valin lög. Hljómsveitina skipuðu auk Eiríks: Björgvin Þór Þórarinsson, Edgar Gylfi Skaale Hjaltason, Eiður Andri Guðlaugsson, Halla Margrét Jónsdóttir, Logi Breiðfjörð Franklínsson og Sigurður…Lesa meira

true

Hefja meirihlutaviðræður þriggja flokka í Borgarbyggð

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir oddviti VG í Borgarbyggð, Lilja Björg Ágústsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins og Magnús Smári Snorrason oddviti Samfylkingarinnar handsöluðu í nótt að hefja viðræður um myndun meirihluta í Borgarbyggð. Viðræðurnar munu hefjast í dag. VG bætti við sig fylgi og einum manni í kosningunum í gær, hefur því tvo fulltrúa. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Samfylking töpuðu…Lesa meira

true

Úrslit kosninganna í Dalabyggð

Á kjörskrá í Dalabyggð voru 495. Alls greiddu 382 atkvæði og kjörsókn því 77%. Persónukjör var í sveitarfélaginu þriðju kosningarnar í röð. Aðalmenn í sveitarstjórn verða eftirtaldir: Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Ásgarði, Hvammssveit. 229 atkvæði. Ragnheiður Pálsdóttir, Hvítadal, Saurbæ, 191 atkvæði. Skúli Hreinn Guðbjörnsson, Miðskógi, Miðdölum. 177 atkvæði. Sigríður Huld Skúladóttir, Steintúni, Skógarströnd. 176 atkvæði. Einar…Lesa meira

true

Lokatölur úr Borgarbyggð

Talningu atkvæða í Borgarbyggð er nú lokið. Á kjörskrá voru 3637 og nýttu 1916 atkvæðisrétt sinn. Kjörsókn var 72,7%. Framsóknarflokkurinn hlýtur 4 sveitarstjórnarfulltrúa og 36,2% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur 26,2% og tvo menn í sveitarstjórn. Vinstri græn fá 23,15% fylgi og tvo menn í sveitarstjórn. Loks fær Samfylking 14% og einn mann í sveitarstjórn. Samkvæmt þessum…Lesa meira