Fréttir

true

Sniffa gas úr rjómasprautum

Lögreglan á Vesturlandi varar foreldra unglinga og ungmenna við nýrri tískubylgju. „Borið hefur á því að undanförnu að ungmenni hafa verið að gera tilraunir með að komast í vímu með því að nota gashylki úr rjómasprautum. Eru þá rjómasprautur fylltar af gasi og gasið síðan sniffað með þrýstingi. Vitað er til að nokkur ungmenni hafi…Lesa meira

true

Af Spesíu-Gránu sem fetar nú í fótspor fyrirrennara síns á Hraunsnefi

Í Nýja Tímanum síðasta dag októbermánaðar árið 1957 birtist áhugaverð frásögn Guðmundar Illugasonar um kött einn sem bjó á Hraunsnefi í Norðurárdal á seinni hluta nítjándu aldar. Köttur þessi varð auðugasti allra katta hér á landi fyrr og síðar. Happadrjúgt reyndist að heita á hann og brátt varð mikill sjóður til. Gárungar segja jafnvel að…Lesa meira

true

Hætt við starfsmannabúðir í Flóahverfi

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar í dymbilvikunni var rætt um fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi Flóahverfis, sem auglýstar voru fyrr á þessu ári. Þær breytingar áttu að felast annars vegar í því að breyta gatnakerfi lítillega á svæðinu og hins vegar í tímabundinni heimild til að setja upp starfsmannabústaði. Fram kom á fundi bæjarstjórnar að athugasemdir sem…Lesa meira

true

Lionsklúbburinn gaf HVE nýtt ristilspeglunartæki

Lionsklúbbur Akraness kom færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Akraness í gær og færði stofnuninni að gjöf nýtt og fullkomið ristilspeglunartæki. Tækið er af gerðinni Olympus KV-6 Suction og kostar hingað komið 4,9 milljónir króna. Árni Arnarson læknir veitti gjöfinni móttöku fyrir hönd HVE úr hendi Valdimars Þorvaldssonar formanns Lionsklúbbs Akraness. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE þakkaði…Lesa meira

true

Tökur hálfnaðar á Héraðinu

Eftir velgengni Hrúta er Grímur Hákonarson kvikmyndagerðarmaður kominn af stað í tökur á Héraðinu, sinni næstu mynd í fullri lengd. Tökur fóru fram á Erpsstöðum í Dölum og í nágrenni fyrir páska og halda svo áfram á Blönduósi og Hvammstanga eftir páskafríið, en lýkur í sumar í Dölum. Héraðið er kvenhetjusaga kúabónda sem gerir uppreisn…Lesa meira

true

„Ég hef alltaf verið mikið fyrir fólk og hreinlega elska fólk“

Framundan eru tímamót hjá Huldu Sigurðardóttur á Akranesi. Í sumar nær þessi glaðlynda kona hinum löggilta aldri þegar vinnumarkaðurinn er gjarnan kvaddur, hún verður 67 ára. Þá hættir hún starfi sínu til sextán ára að vera vistarstjóri á heimavist Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Starfinu fylgir íbúð á vistinni þar sem Hulda hefur búið og því…Lesa meira

true

Listi VG í Borgarbyggð kynntur

Framboðslisti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur á félagsfundi í gær. Listann leiðir Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, bóndi og náms- og starfsráðgjafi, en hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir VG á liðnum árum og á kjörtímabilinu sem er að líða hefur hún verið fulltrúi í fræðslunefnd Borgarbyggðar. Í öðru sæti…Lesa meira

true

Fíkniefnaneysla er að aukast

Sterkar vísbendingar eru um að fíkniefnaneysla sé að aukast á Akranesi og reyndar einnig víðar um umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi. „Við höfum áhyggjur af þessari þróun. Hér eru að finnast tæki og tól til fíkniefnaneyslu út um allar koppagrundir; á leikskólalóðum, við grunnskólana, á fáförnum bílastæðum og víða á afskekktum stöðum þar sem fíkniefnaneytendur leita…Lesa meira

true

Fannst ómögulegt að sjá reiðhjólin liggja á grasbala í hrúgu

Guðmundur Hallgrímsson á Hvanneyri lætur verkin tala og segir að vandamálin séu til að leysa þau. Hann hefur verið duglegur að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið á Hvanneyri og nú síðast bjó hann til reiðhjólastand fyrir grunnskólabörnin og dósagám fyrir Ungmennafélagið Íslending. „Þetta æxlaðist nú þannig að formaður ungmennafélagsins lék rækilega á mig og…Lesa meira

true

Vinnur við tónlist en hefur einnig ástríðu fyrir ljósmyndun

Dalamaðurinn Eyþór Ingi Jónsson lifir og hrærist í tónlist allan ársins hring ásamt því að sinna ljósmyndun af mikilli ástríðu. Eyþór er búsettur ásamt fjölskyldu sinni á Akureyri þar sem hann starfar sem organisti í Akureyrarkirkju auk þess að taka að sér ýmis önnur verkefni í heimi tónlistar. Nú eru nýlega afstaðnir tónleikar í heimasveitinni…Lesa meira