Fréttir

true

Skuldir Borgarbyggðar komnar niður í 112% af veltu

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var ársreikningur sveitarfélagsins fyrir síðasta ár lagður fram. Ársreikningur sýnir jákvæða rekstrarafkomu sem nemur 298,5 milljónum króna. Tekjur jukust um 272,5 milljónir króna á milli ára. Þar af hækkaði útsvar um 187 milljónir, framlög Jöfnunarsjóðs um 64 milljónir og fasteignaskattur um 17 milljónir. Skuldir voru greiddar niður um…Lesa meira

true

Boðað til stofnfundar félags kvenna í atvinnurekstri á Akranesi

Boðað er til stofnfundar félags kvenna í atvinnurekstri á Akranesi í næstu viku, fimmtudaginn 12. apríl. Markmiðið með stofnun félagsins er að efla tengslanet kvenna sem stunda hvers kyns rekstur í bæjarfélaginu og nágrenni þess. Á dagskrá stofnfundarins er kynning, umræða og stefnumörkun. Fundurinn hefst kl. 20:00 í kvöld í Café Kaja við Stillholt 23…Lesa meira

true

Snæfellsnes Excursions býður upp á jöklaferðir

Ferðafyrirtækið Snæfellsnes Excursions í Grundarfirði festi nýverið kaup á snjótroðara til að bjóða upp á ferðir á topp Snæfellsjökuls. Laugardaginn 31. mars var farið í prufuferð á jökulinn í blíðskaparveðri og fékk fréttaritari Skessuhorns að fljóta með. Ferðin sjálf var frábær enda heiðskýrt og eindæma veðurblíða. Troðarinn var snöggur á toppinn þar sem útsýnið sveik…Lesa meira

true

„Veiðidellan byrjaði snemma“

Brynjar Halldór Sveinsson er fæddur á Akranesi í mars 2000. Hann segir móðurömmu sína hafa tekið á móti sér, klippt á naflastrenginn og baðað. „Kannski er ég þess vegna svona gömul sál,“ segir hann og brosir. „Blóðfaðir minn bjó ekki með mömmu og því var amma viðstödd. Ég eignaðist hins vegar besta pabba sem hægt…Lesa meira

true

Samþykktu breytingu á aðalskipulagi vegna skotæfingasvæðis

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti með sjö atkvæðum á fundi sínum 27. mars síðastliðinn breytingu á aðalskipulagi sem felst í að heimilt verði að gera ráð fyrir skotæfingasvæði í landi Hamars ofan við Borgarnes. Tillagan er sett fram á uppdrætti og með greinargerð dags. 5. desember 2017 og tekur til breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, þ.e. að…Lesa meira

true

Andlát – Þorsteinn Þorvaldsson á Akranesi

Þorsteinn Þorvaldsson vélstjóri lést mánudaginn 2. apríl síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, 93 ára að aldri. Þorsteinn var einn af stofnfélögum Golfklúbbsins Leynis og minnast félagar hans í klúbbnum Þorsteins með meðfylgjandi orðum: „Þorsteinn var einn af frumherjum Golfklúbbsins Leynis og einn af stofnfélögum klúbbsins.  Þorsteinn var formaður í 13 ár samfleytt frá árinu…Lesa meira

true

Keppt í fimmgangi í Faxaborg í kvöld

Fjórða mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram í kvöld, fimmtudaginn 5. apríl, og verður keppt í fimmgangi. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi. Deildin hefur farið vel af stað í vetur og aldrei verið sterkari. Von er á fjölda sterkra hesta og knapa og má því búast við góðri skemmtun í…Lesa meira

true

Almennt góð færð á vegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að vegir eru nú að mestu greiðfærir á Suðurlandi en á Vesturlandi eru hálkublettir á nokkrum leiðum og hálka á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.Lesa meira

true

Sýndu Kardemommubæinn á árshátíð

Árshátíð Hvanneyrardeildar Grunnskóla Borgarfjarðar var haldin í Halldórsfjósi fimmtudaginn 22. mars síðastliðinn. Nemendur í 1. – 5. bekk sýndu leikritið Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Kennarar og starfsmenn skólans lögðu allir hönd á plóg við uppsetningu leikritsins og nemendur stóðu sig með stakri prýði og sýndu hvernig góð samvinna getur gefið af sér góða afurð. Að…Lesa meira

true

Hárhús Kötlu sett á sölu

Katla Hallsdóttir hyggst hætta eða breyta rekstri á Hárhúsi Kötlu á Akranesi eftir ríflega þrjá áratugi. Katla stofnaði Hárhús Kötlu í húsnæði við Suðurgötu árið 1986 og flutti stofuna tíu árum síðar í núverandi húsnæði við Stillholt. Fyrir um 15 árum kom Ína Dóra Ástríðardóttir inn í reksturinn og hafa þær rekið stofuna saman síðan.…Lesa meira