Fréttir

true

Ný reglugerð um skráningu afla á sjóstangveiðimótum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum en slík mót eru haldin víða um land á hverju sumri á vegum sjóstangveiðifélaga. Með reglugerðinni er leitast við að einfalda framkvæmd aflaskráningar en sjóstangaveiðifélögunum eru með lögum um stjórn fiskveiða tryggðar fullnægjandi aflaheimildir vegna mótanna og skal tekjum…Lesa meira

true

Keppt í fimmgangi á fimmtudaginn

Fjórða mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram fimmtudagskvöldið 5. apríl nk. og verður keppt í fimmgangi. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi. Deildin hefur farið vel af stað í vetur og aldrei verið sterkari. Von er á fjölda sterkra hesta og knapa og má því búast við góðri skemmtun í Faxaborg…Lesa meira

true

Haukar höfðu betur gegn Skallagrími í fyrsta leik

Haukakonur höfðu betur gegn Skallagrímskonum í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í leik sem spilaður var á Ásvöllum í gær. Haukar sigruðu með 88 stigum gegn 74. Deildarmeistarar Hauka tóku forystuna strax í upphafi leiks og létu hana aldrei af hendi. Í lok fyrsta leikhluta voru Haukakonur átta stigum yfir gestunum en Skallagrímskonur gáfu þá…Lesa meira

true

Um 900 skipulagðar lóðir fyrir íbúðir eru nú til á Vesturlandi

Nýverið kom út Hagvísir Vesturlands í ritstjórn Vífils Karlssonar hagfræðings hjá SSV. Í honum er að þessu sinni tekin staðan á fasteignamarkaði á Vesturlandi. Meðal niðurstaðna má nefna að íbúðaverð hefur hækkað mikið á Íslandi síðastliðin þrjú til fimm ár, einkum á höfuðborgarsvæðinu, en það hafa tekjur heimilanna einnig gert. Þegar fjöldi íbúða er borinn…Lesa meira

true

Hestamannafélagið bauð upp á páskaeggjaleit

Hestamannafélagið Borgfirðingur stóð nýverið fyrir páskeggjaleit fyrir yngstu kynslóðina í félaginu. Voru faldir málaðir steinar fyrir utan reiðhöllina Faxaborg í Borgarnesi og eftir að börnin voru búin að fara í nokkra leiki var þeim hleypt af stað í leitina. Þegar þau svo voru búin að finna einn málaðan stein og koma honum til skila, var…Lesa meira

true

Atvinnuleysi mældist 2,4%

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 198.300 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í febrúar 2018, sem jafngildir 80,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 193.500 starfandi og 4.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,4%. Samanburður mælinga fyrir febrúar…Lesa meira

true

Gjaldheimtu verður hætt í september

Á aðalfundi Spalar nýverið kom fram að innheimtu veggjalds í Hvalfjarðargöngum verður hætt í september. Þá segir á vefsíðu Spalar að þessi ákvörðun hafi verið tekið þegar búið var að fara rækilega fyrir skuldbindingar og tekjuáætlanir félagsins. Á fundinum upplýsti Gylfi Þórðarson framkvæmdastjóri fyrirtækisins um að heildarskuldbindingar félagsins til loka rekstrartímabilsins nema um 1.300 milljónum…Lesa meira

true

Tveggja bíla árekstur í Grundarfirði

Tveggja bíla árekstur varð í gær á móts við bæinn Grund austan við Grundarfjörð. Þrír voru í öðrum bílnum og einn í þeim sem sést á meðfylgjandi mynd. Sá var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akranesi en meiðsli hans voru minniháttar. Þeir sem voru í hinum bílnum voru fluttir á Heilsugæslustöðina í Grundarfirði til…Lesa meira

true

Kviknaði í tvígang í þurrum gróðri

Slökkvilið Borgarbyggðar var í tvígang kallað út vegna elds í sinu í liðinni viku. Fyrra útkallið var á miðvikudagskvöld við þjóðveginn sunnan við Galtarholt í Borgarhreppi. Íbúar í  nágrenninu hófu þegar slökkvistarf og var því að mestu lokið þegar slökkvilið mætti skömmu síðar. Í seinna tilfellinu á laugardagskvöldið var um nokkuð meiri eld að ræða.…Lesa meira

true

Skráning hafin á Landsmótið í sumar

„Landsmótið er nýjung fyrir alla sem hafa gaman af því að hreyfa sig. Ég sé fyrir mér að þarna geti vinahópar komið saman og skemmt sér í íþróttum, gamlir skóla- eða íþróttafélagar fá tækifæri til að rifja upp taktana í brennibolta, skokkhópar geta sprett úr spori og prófað nýjar greinar.  Þarna verður einnig hefðbundin keppni…Lesa meira