Fréttir

true

Opnar sýningarsal um norðurljósin

Ómar Örn Ragnarsson frumkvöðull og verslunarmaður í Borgarnesi hefur undanfarna mánuði undirbúið opnun norðurljósasýningar í Borgarnesi. Í þeim tilgangi festi hann kaup á húsnæði á jarðhæð fjölbýlishúss við Brákarbraut, beint á móti Landnámssetrinu, og mun þar opna sýningarsal um norðurljósin mánudaginn 2. apríl næstkomandi. Síðastliðinn föstudag hélt Ómar forsýningu í húsnæðinu þangað sem hann bauð…Lesa meira

true

Vann til silfurverðlauna á Norðurlandamótinu í boxi

Borgnesingurinn Kristín Sif Björgvinsdóttir vann til silfurverðlauna á Norðurlandamóti í boxi sem fram fór í Noregi um liðna helgi. Kristín Sif keppti í -75 kg flokki kvenna og mætti Julie Holte frá Noregi á laugardeginum og sigraði eftir einróma dómaraákvörðun. Þá mætti hún Love Holgersson frá Danmörku í úrslitum á sunnudeginum en þurfti að lúta…Lesa meira

true

Vilja að Fiskistofu fylgist með sjókvíaeldi

Landssamband veiðifélaga hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf þar sem skorað er á ráðherrann að beita sér fyrir því að allt eftirlit með fiskeldi í sjó verði flutt frá Matvælastofnun til Fiskistofu. „Í bréfinu er vísað til atburða að undanförnu og getuleysi stofnunarinnar til að upplýsa um slysasleppingar undanfarin ár. Telur Landssambandið að stofnunin ráði…Lesa meira

true

206 staðir í Borgarbyggð hafa ekki aðgang að þriggja fasa rafmagni

Síðastliðinn fimmtudag fékk byggðarráð Borgarbyggðar á fund til sín Björn Sverrisson svæðisstjóra Rarik á Vesturlandi. Björn fór yfir áform fyrirtækisins um rafvæðingu í þriggja fasa rafmagn í sveitarfélaginu. Meðal annars lagði hann fram lista yfir heimili og vinnustaði sem ekki hafa aðgang að þriggja fasa rafmagni ásamt áætlun um rafstrengjalagnir í Borgarbyggð 2018. Alls eru…Lesa meira

true

Styrkja uppbyggingu ferðamannastaða

Síðastliðinn fimmtudag var tilkynnt um úthlutun ríkisstyrkja upp á 2,8 milljarða króna til uppbyggingar innviða og annarra verkefna á fjölsóttum stöðum í náttúru Íslands og á ferðamannastöðum. Það voru Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem tilkynntu um styrkina. Annars vegar er um að ræða 722…Lesa meira

true

Samþykktu breytingu á aðalskipulagi vegna skotæfingasvæðis

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti með sjö atkvæðum á fundi sínum í gær breytingu á aðalskipulagi sem felst í að heimilt verði að gera ráð fyrir skotæfingasvæði í landi Hamars ofan við Borgarnes. Tillagan er sett fram á uppdrætti og með greinargerð dags. 5. desember 2017 og tekur til breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, þ.e. að breyta…Lesa meira

true

Sameinar tvo heima með atvinnuvali sínu

„Þetta eru svolítið mismunandi heimar,“ segir Alexander Aron Guðjónsson hlæjandi, en hann er bæði rafvirki og förðunarfræðingur. Alexander er fæddur og uppalinn á Akranesi þar sem hann hefur búið í sama húsinu alla sína æsku. „Við erum búin að vera í þessu húsi í yfir tuttugu ár. Það verður erfitt að fara eitthvert annað,“ segir…Lesa meira

true

Gáfu húsgögn á Brákarhlíð

Lionsklúbbur Borgarness færði Brákarhlíð í Borgarnesi nýverið höfðinglega gjöf, í formi húsgagna í samkomusal heimilisins. Meðfylgjandi mynd var tekin við það tilefni. Á henni eru f.v. Halla Magnúsdóttir forstöðumaður hjúkrunar, María Eyþórsdóttir og Jón Haraldsson frá Lionsklúbbnum og Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri Brákarhlíðar.Lesa meira

true

Fengu aðild að Bændasamtökunum

Beint frá býli og Verndun og ræktun (VOR), félag framleiðenda í lífrænum búskap, hafa fengið aðild að Bændasamtökum Íslands. Aðildarumsóknir þeirra voru samþykktar á Búnaðarþingi 2018 sem fram fór í byrjun mánaðarins. Beint frá býli var stofnað fyrir tíu árum síðan, árið 2008 og er tilgangur félagsins að hvetja til heimavinnslu og sölu milliliðalaust, beint…Lesa meira

true

Stundar silkiormarækt í Grundarfirði

Signý Gunnarsdóttir er grundfirsk athafnakona sem nýverið hóf silkiormarækt. Hún fjárfesti í húsi í Grundarfirði og hefur komið sér upp aðstöðu í bílskúrnum til að rækta þessi litlu kvikindi. Signý er með BA gráðu í tískuhönnun frá Listaháskóla Íslands og var lengi búin að leita leiða til að tengja námið atvinnumöguleikum í Grundarfirði en þar…Lesa meira