Fréttir

true

Mótmæltu hækkun launa forstjóra OR

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar á þriðjudag í liðinni viku voru til umræðu fundargerðir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá því í febrúar og mars. Valgarður Lyngdal Jónsson bæjarfulltrúi Samfylkingar lagði fram svohljóðandi bókun fyrir hönd beggja bæjarfulltrúa flokksins, vegna launa forstjóra OR: „Undirritaðir, bæjafulltrúar Samfylkingarinnar, mótmæla þátttöku fulltrúa Akraneskaupstaðar í þeirri ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að hækka…Lesa meira

true

Tími páskahretanna er hreint ekki liðinn

Veðurstofan bendir á að snjókoma með tilheyrandi skafrenningi verður á heiðarvegum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum og einnig á Norðvesturlandi í kvöld. Færð getur hæglega spillst á þeim slóðum. Kafaldsbylur verður í fyrramálið á Snæfellsnesi, Holtavörðuheiði og í Borgarfirði. Styttir þar upp síðdegis en snjókoma verður þá á Suðurlandi og Suðvesturhorninu. Meðfylgjandi mynd tók Alfons Finnsson…Lesa meira

true

Leikjaplan í úrslitakeppninni

Haukar og Skallagrímur eigast við undanúrslitum úrvalsdeildar Domino´s deild kvenna í körfubolta. Hins vegar eru það Keflavík og Valur sem keppa um hitt lausa sætið í úrslitum. Haukar urðu efstir fyrir úrslitakeppnina en Borgarnesingar í fjórða sæti eftir frábæran endasprett í deildinni þar sem stelpurnar unnu sex af sjö síðustu leikjunum og unnu þar upp…Lesa meira

true

Skemmdarverk unnin á bílum og merkjum

Í dymbilvikunni var nokkuð um skemmdarverk á Akranesi. Meðal annars var gamall Bens fólksbíll, sem stendur niður á Breið, eyðilagður; rúður meðal annars brotnar. Þá voru rifin niður og skemmd upplýsingaskilti á nokkrum stöðum, svo sem meðfram gönguleiðinni frá Elínarhöfða að Miðvogi sem og skilti á Breiðinni. Íbúum er bent á að hafa samband við…Lesa meira

true

Öryggisúttekt á þjóðvegum landsins

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra opnaði í liðinni viku fyrir aðgang að gagnagrunni evrópska vegamatskerfisins EuroRAP. Þar er hægt að nálgast niðurstöður úr öryggisúttekt sem FÍB framkvæmdi á þjóðvegum Íslands, samtals 4.200 kílómetrum. Öryggisúttektin var framkvæmd þannig að ekið var um vegi landsins á sérútbúnum bíl og myndir teknar. Upplýsingarnar eru svo skráðar niður um vegina…Lesa meira

true

Að vestan aftur í loftið á N4

Ný þáttaröð af hinum vinsælu þáttum Að vestan hefur göngu sína á N4 á annan í páskum, 2. apríl klukkan 20. Líkt og áður sjá þau Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir um gerð þáttanna. „Þetta er búið að vera alveg ótrúlega skemmtilegt verkefni og það er gott að vera farin aftur af stað í…Lesa meira

true

Sýna beint frá íþróttaleikjum á Akranesi

ÍA TV var komið á fót í árslok 2016 þegar Íþróttabandalag Akraness ákvað að styrkja áhugahóp til tækjakaupa til að geta sent út íþróttaviðburði á vegum ÍA. Nokkru áður hafði hópur manna, að frumkvæði Arnar Óðins Arnþórssonar, hafið útsendingar frá leikjum meistaraflokks ÍA í 1. deild karla í körfuknattleik í gegnum Youtube rásina ÍA TV.…Lesa meira

true

Lóan óvenju seint á ferðinni – en er nú komin

Lóan er komin til landsins. Þessi helsti vorboði okkar er nokkru seinna á ferð en í meðalári. Aðeins tvisvar sinnum hafa lóurnar komið seinna en í dag, árin 1999 og 2001, en meðalkomudagur þeirra 1998-2017 hefur verið 23. mars. Lóan er einkennisfugl íslenskra móa og útbreiddur varpfugl um land allt og einnig á hálendinu.  Lóan…Lesa meira

true

Eiríkur byggir við Grunnskóla Borgarness

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu byggingarnefndar Grunnskóla Borgarness um að semja við EJI ehf., fyrirtæki Eiríks J Ingólfssonar húsasmíðameistara, um byggingu á fjölnota sal og heildarendurbætur við húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Skóflustunga að stækkun skólans var tekin fyrir ári síðan, á 150 afmæli verslunarstaðarins Borgarness. EJI ehf. var eini tilboðsgjafinn í…Lesa meira

true

Bjarki Pétursson í fimmta sæti á HI mótinu

Borgnesingurinn og golfarinn Bjarki Pétursson lauk í gær keppni á Hootie Intercollegiate mótinu sem fram fór í bandaríska háskólagolfinu dagana 25.-27. mars. Bjarki stundar nám við Kent State háskólann í Bandaríkjum og endaði lið skólans í öðru sæti á mótinu. Þá varð Bjarki í fimmta sæti í einstaklingskeppni en hann lék mjög vel á mótinu…Lesa meira