Fréttir

true

Mikilvægur Vesturlandsslagur á morgun

Snæfell og Skallagrímur mætast í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á morgun. Leikurinn, sem fram fer í Stykkishólmi, er báðum liðum mikilvægur í baráttunni um fjórða sæti deildarinnar og þar með sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Í fjórða sæti deildarinnar er Stjarnan með 22 stig, átta stigum á eftir Keflavík í sætinu fyrir ofan. Skallagrímur…Lesa meira

true

Haraldur áritar í Eymundsson

Útgáfuhóf verður í verslun Eymundsson á Akranesi á morgun, laugardaginn 3. mars, frá klukkan 12.00-14.00. Þar mun Haraldur Bjarnason, höfundur bókarinnar ,,Víkingur – sögubrot af aflaskipi og skipverjunum,” kynna bókina og árita. -fréttatilk.    Lesa meira

true

Ferskir vindar frá Garði hlutu Eyrarrósina

Eyrarrósin, sem árlega er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, var afhent við hátíðlega athöfn í gær. Það var listahátíðin Ferskir vindar frá Garði sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni. Dómnefnd hafði meðal annars þetta um listahátíðina Ferska vinda að segja: „Aðstandendur Ferskra vinda hafa ekki bara sýnt metnað í verki við skipulag hátíðarinnar heldur seiglu…Lesa meira

true

Skallagrímur kominn í deild þeirra bestu

Skallagrímur tryggði sér í gærkvöld sæti í Domino‘s deild karla eftir sigur á Snæfelli í Borgarnesi, 118-87. Tvær umferðir eru eftir í deildinni en Borgnesingar hafa innsiglað toppsætið og þar með tryggt sér farseðilinn í deild þeirra bestu að nýju. Bæði lið mættu vel stemmd til leiks. Leikmenn voru fullir sjálfstrausts og mikil stemning í…Lesa meira

true

Komst ekki í gegnum niðurskurðinn í nótt

Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi lauk í nótt keppni á NSW Open mótinu á Coffs Harbour vellinum í Ástralíu. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni sem er sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Valdís Þóra lék tvo fyrstu hringina á fimm yfir pari og endaði í 67. sæti. Hún var tveimur höggum frá…Lesa meira

true

Nám, nýsköpun og rannsóknir á Háskóladeginum

Bragðlaukaþjálfun, örnámskeið í rússnesku, mögnuð sýning hjá Sprengjugenginu og jarðskjálftaborð sem hermir eftir Suðurlandsskjálftanum 2008, auk kynningar á um 400 námsleiðum í grunn- og framhaldsnámi, er meðal þess sem í boði verður í Háskóla Íslands þegar Háskóladeginum verður fagnað á morgun, laugardaginn 3. mars kl. 12-16. Háskólinn opnar dyr sínar upp á gátt fyrir landsmönnum…Lesa meira

true

Landað úr færeyskum báti í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Jákup B landaði í Ólafsvík í síðustu viku. Að sögn Sæbjarnar Vigfússonar sölustjóra hjá Fiskmarkaði Íslands var aflinn rúm 86 tonn og var þorskur uppistaða aflans. Sæbjörn sagði fréttaritara að meðalverð á þorskinum hafi verið 285 krónur og á ýsunni 244 krónur. Þessi afli fékkst í fimm lögnum í Breiðafirðinum. Sæbjörn sagði ennfremur…Lesa meira

true

Hótel Húsafell meðal úrvalshótela National Geographic

Hótel Húsafell er fyrst hótela hótelið hér á landi til að vera valið eitt af hótelum National Geographic Unique Lodges of the World, sem framúrskarandi gististaður á heimsvísu. Hótelið vilja samtökin hafa innan sinna raða. Í ljósi þess hversu skilyrðin til að uppfylla þennan úrvalshóp eru ströng er útnefningin markaðslega mjög sterk fyrir Hótel Húsafell…Lesa meira

true

„Einfalt tæki sem getur aukið lífsgæði til muna“

Íslandsklukkan er hugarsmíði Björns Ágústs Magnússonar frá Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarðarsveit. Eins og nafnið gefur til kynna er um klukku að ræða, en enga venjulega klukku þó. Hún sýnir ekki aðeins hvað klukkan er, heldur segir hún það einnig. Er henni ætlað að gera blindum og sjónskertum kleift að fylgjast með tímanum með auðveldum hætti. Björn…Lesa meira

true

Rútan verður fjarlægð á morgun

Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns í gær og fyrradag hefur dregist úr hömlu að fjarlægja rútuna sem fauk útaf Borgarfjarðarbraut síðastliðinn sunnudag. Rútan liggur enn í vegkantinum og nær inná aðra akreinina með tilheyrandi hættu. Í frétt mbl.is er greint frá því að til standi að fjarlægja rútuna á morgun, föstudag. Þar er…Lesa meira