Fréttir

true

Vetrarþjónusta aukin á þjóðvegum landsins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Vegagerðin hafa ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi og er þarna verið að bregðast við kröfu atvinnulífsins en ekki síst ferðaþjónustunnar sem er að fá til sín gesti allt árið. Undanfarið hafa…Lesa meira

true

Snæfellingar misstigu sig á ögurstundu

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn baráttuglöðum Gnúpverjum, 79-83, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Liðin fylgdust að fyrstu mínúturnar áður en gestirnir náðu fjögurra stiga forskoti. Snæfell jafnaði seint í leikhlutanum en Gnúpverjar skoruðu síðustu körfuna í fyrsta og leiddu með tveimur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 21-23. Snæfell komst…Lesa meira

true

Rúmar tvær milljónir í minningarsjóð Arnars Dórs

Alls söfnuðust rúmlega 2,1 milljón króna í minningarsjóð Arnars Dórs Hlynssonar, ungs Skagamanns sem lést langt fyrir aldur fram í september síðastliðnum. Sjóðurinn var stofnaður af fyrirtækinu Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og Íþróttabandalagi Akraness. Það var Þórður Már Gylfason í Sansa sem hratt söfnuninni formlega af stað fimmtudaginn 11. janúar með áskorunum á Facebook.…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu eftir framlengingu

Einn leikur fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Það var viðureign Snæfells og Hauka í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Haukar höfðu sigur með 79 stigum gegn 76 stigum Snæfells. Haukar voru sterkari í upphafi og Snæfell fann ekki taktinn í vörninni.…Lesa meira

true

Spá hvössum vindi í dag og kvöld

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þæfingsfærð og skafrenningur á mörgum fjallvegum. Vaxandi vindur verður á sunnanverðu landinu þegar líður á daginn og spáð stormi undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Á Hellisheiði og Mosfellsheiði verður hríðarveður og blint einkum frá kl. 18 til 24 og vindur 16-20 m/s. Hugsanlega…Lesa meira

true

Haldin verða tvö mót í KB mótaröðinni

Mótanefnd hestamannafélaganna sem staðið hafa að KB mótaröðinni í hestaíþróttum í Borgarnesi hefur ákveðið að tvö mót verða haldin í KB mótaröðinni í vetur. Fyrra mótið verður laugardaginn 24. febrúar og seinna mótið laugardaginn 24. mars og fara bæði fram í Reiðhöllinni Faxaborg. Flokkaskipting er þannig að keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki og 1.…Lesa meira

true

Mest er óánægja íbúa vegna skipulagsmála í Borgarbyggð

Samkvæmt íbúakönnun Gallup, sem var framkvæmd í nóvember og desember á sl. ári hefur ánægja íbúa í Borgarbyggð með þjónustu sveitarfélagsins í mörgun tilvikum vaxið milli áranna 2016 og 2017. Borgarbyggð keypti niðurstöður íbúakönnunar Gallup sem framkvæmd var í nóvember og desember 2017. Alls komu 167 svör úr Borgarbyggð. Án þess að það liggi nákvæmlega…Lesa meira

true

Flestir listar eru farnir að íhuga framboðsmál

Kjördagur í sveitarstjórnarkosningum er laugardagurinn 26. maí næstkomandi. Það þýðir að aðeins eru rétt rúmir fjórir mánuðir þar til gengið verður til kosninga. Síðast var kosið fyrir fjórum árum, vorið 2014. Þá fór fram óbundin kosning, það er að segja persónukjör, í fjórum sveitarfélögum á Vesturlandi; Dalabyggð, Helgafellssveit, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi. Auk þess var persónukjör…Lesa meira

true

Akurey farin í sín fyrstu veiðiferð

Síðastliðinn föstudag var Akurey AK-10 siglt áleiðis í sína fyrstu veiðiferð. Skipið kom til landsins í júnílok á síðasta ári, var formlega vígt og því gefið nafn við athöfn sem fram fór í Akraneshöfn. Akurey er annað af þremur skipum í raðsmíðaverkefni sem HB Grandi samdi um við tyrkneska skipasmíðastöð. Hin skipin eru Engey RE…Lesa meira

true

Say Iceland vinnur Hnakkaþonið 2017

Brim hf. mun byggja upp eigið vörumerki undir nafninu „Say Iceland“ og selja fullunninn ufsa á nýja markaði á austurströnd Bandaríkjanna, nái tillögur sigurliðs Hnakkaþons HR og SFS, útflutningskeppni sjávarútvegsins 2018 fram að ganga. Úrslit keppninnar voru kynnt í HR í liðinni viku. Í vinningstillögunni er lagt til að lögð verði aukin áherslu á íslensk…Lesa meira