Fréttir

true

Sigurður Elvar Þórólfsson ritstjóri Skagafrétta er Skagamaður ársins

Þorrablót Skagamanna fór fram í gær í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Prýðileg þátttaka var á blótinu, fullsetið í salnum og gestir skemmtu sér með ágætum. Blótið var sem fyrr haldið af Club 71 en íþróttafélög og Björgunarfélag Akraness sáu um vinnu á skemmtuninni og njóta afrakstursins í hlutfalli við vinnuframlag. Um matinn sá veitastaðurinn Galitó. Fréttaannáll…Lesa meira

true

Hálka á vegum

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Nú er spáð hvassviðri suðaustanlands og hviðum allt að 35 m/s undir Eyjafjöllum og í Öræfum við Sandfell frá miðjum degi og fram yfir miðnætti í kvöld.Lesa meira

true

Framkvæmdir við frístundamiðstöð á Akranesi formlega hafnar

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi í dag að viðstöddu fjölmenni. Eru það Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður sem standa að framkvæmdinni. Mun ný frístundamiðstöð hýsa félagsstarf Leynis og aðra frístundastarfsemi á vegum ÍA og Akraneskaupstaðar. Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis, var að vonum ánægður með skóflustunguna, sem markar formlegt upphaf…Lesa meira

true

Stefán Árni ráðinn forstjóri Límtrés Vírnets

Stefán Árni Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri Límtrés Vírnets. Tekur hann við starfinu af Stefáni Loga Haraldssyni, sem verið hefur framkvæmdastjóri í hartnær tvo áratugi, eða frá árinu 1999. Stefán Árni lauk námi í byggingatæknifræði frá Tækniskóla Íslands árið 1997 og meistaragráðu í byggingaverkfræði frá Lunds Tekniska Högskolan í Svíþjóð árið 1991. Stefán er kvæntur…Lesa meira

true

Fjöldi vestlenskra fyrirtækja á Mannamóti

Markaðsstofur landshlutanna stóðu í gær fyrir fjölmennri samkomu í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Þar mættu á þriðja hundrað fulltrúar ferðaþjónustufyrirtækja og kynntu fyrir starfsfólki hótela í Reykjavík og ferðaskrifstofufólki það sem þau bjóða. Frá Vesturlandi voru um 40 fyrirtæki sem kynntu starfsemi sína og var uppselt í Vesturlands pláss á sýningunni. Margt var um manninn…Lesa meira

true

Skallagrímur styrkti stöðu sína á toppnum

Skallagrímur vann góðan sigur á Breiðabliki í toppslag 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir góða byrjun gestanna tóku Skallagrímsmenn öll völd á vellinum og sigruðu með 99 stigum gegn 84. Blikar voru öflugir í upphafi og leiddu 10-16 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Skallagrímsmenn komu sér upp að hlið…Lesa meira

true

Eftirspurn meiri eftir ódýrari sumarhúsum

Sumarbústaðir á Íslandi voru rúmlega 13 þúsund í lok ársins 2016. Rúmlega helmingur sumarhúsa á landinu var á Suðurlandi í árslok 2016 og um fjórðungur á Vesturlandi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Landsbankans. Á þremur stærstu svæðunum var fjölgun sumarhúsa á tuttugu árum, frá 1997-2016, hlutfallslega mest á Vesturlandi, Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu, þar sem…Lesa meira

true

Borgfirðingar búnir að sameina hestamannafélögin Skugga og Faxa

Síðastliðinn þriðjudag var formlega gengið frá sameiningu hestamannafélaganna Faxa og Skugga. Þá um kvöldið var haldinn sameiginlegur framhaldsaðalfundur beggja félaganna þar sem ný lög voru samþykkt og kosið í stjórn og nefndir nýs félags. Félagið hefur enn ekki hlotið nafn en félagsmenn munu í rafrænni kosningu kjósa milli fimm nafna sem valin voru úr innsendum…Lesa meira

true

Allt betra en liggja heima bryðjandi pillur

Árið 2014 fór Hermann Jóhannsson í Borgarnesi að kenna verkja í hnjáliðum. Hann var þá kominn yfir sjötugt en að öðru leyti við góða heilsu og stundaði vinnu við akstur. Hermann starfaði lengst af sínum starfsaldri við akstur sjúkrabíla og húsvörslu í Heilsugæslustöðinni í Borgarnesi. Hann segir sjálfur að slit í hnjáliðum sé líklegur fylgifiskur…Lesa meira

true

Unnið að opnun veitingastaðarins Skers í Ólafsvík

Nú eru í gangi framkvæmdir fyrir opnun nýs veitingastaðar í Ólafsvík í gamla húsnæði Sparisjóðs Ólafsvíkur. Veitingastaðurinn mun fá nafnið Sker. Skessuhorn hafði samband við Arnar Laxdal sem er einn af eigendum veitingastaðarins ásamt fjölskyldu sinni. „Þessa dagana erum við að hreinsa út og svo tekur uppbyggingin við, en við stefnum á að opna í…Lesa meira