Fréttir

true

Snæfell stjórnaði ferðinni gegn Skallagrími

Skallagrímur og Snæfell mættust í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í gær. Leikurinn fór fram í Borgarnesi og var fyrsti leikur Skallagríms undir stjórn nýs þjálfara, Ara Gunnarssonar. Leikurinn var jafnframt fyrsti leikur Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttir síðan hún fór úr axlarlið í lok nóvember. Hvað varðar gang leiksins þá hafði Snæfell undirtökin meira og minna…Lesa meira

true

Þrír bændafundir á Vesturlandi í dag

Forystufólk Bændasamtaka Íslands er þessa dagana á ferð um landið og fundar með bændum.. Samtals eru skipulagðir 18 almennir bændafundir víðs vegar um landið í þessari viku. Þar af eru þrír fundir í dag hér á Vesturlandi. Klukkan 12 í dag á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi fyrir Snæfellsnes en klukkan 20:30 í dag á…Lesa meira

true

Súputónleikar í TOSKA í hádegi bóndadags

Á morgun föstudaginn 19. janúar er bóndadagurinn. „Þá er við hæfi að bjóða Þorrann velkominn. Í tilefni af því verða súputónleikar kl 12.10 í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Þetta er tilvalið tækifæri til að brjóta upp hefðbundið föstudagshádegi og eiga ánægjulega stund með ungu fólki í heimi tónlistarinnar,“ segir í tilkynningu. Boðið verður upp á…Lesa meira

true

Kvikmyndahátíð í Borgarnesi

Kvikmyndahátíðin BFF, Borgarnes Film Freaks, verður haldin Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi dagana 19. – 21. janúar. Það eru þau Halldór Óli Gunnarsson og Michelle Bird sem standa fyrir hátíðinni. Frítt er inn á myndirnar sem sýndar verða. Gestum gefst þar tækifæri til að sjá áhugaverðar alþjóðlegar kvikmyndir, heimildamyndir og stuttmyndir. Sýningardagskrá hefst kl. 18:00…Lesa meira

true

Búið er að semja um sölu á Laugum í Sælingsdal

Búið er að semja um sölu á mannvirkjum að Laugum í Sælingsdal í Dalasýslu, þó ekki hafi enn verið undirritaðir samningar. Að sögn Sveins Pálssonar sveitarstjóra var samið um að selja húseignir á Laugum og eignarhlut Dalabyggðar í jörðinni Laugum og jörðinni Sælingsdalstungu auk alls þess sem fylgir þeim eignum, að undanskildum kaldavatnsréttindum í Sælingsdalstungu,…Lesa meira

true

Ellilífeyrisþegar fá afslátt af fasteignasköttum

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum afslátt af fasteignaskatti til handa elli- og örorkulífeyrisþegum. Er afslátturinn tekjutengdur. Samþykkt var að afsláttur skyldi vera 100% fyrir einstaklinga með 3.548 þús. krónur og hjón með 5.624 þús. krónur í tekjur á ári. Einstaklingar með allt að 3.833 þús. krónur og hjón með allt að 6.427 þús.…Lesa meira

true

Langar að teikna myndir fyrir Disney teiknimyndaframleiðandann

Gróa Dagmar Gunnarsdóttir er ung og efnileg listakona á Akranesi. Hún fæddist 2001 og flutti á Akranes þegar hún var fjögurra ára gömul og hefur búið þar síðan. Hún hóf nám á náttúrufræðibraut við Fjölbrautaskóla Vesturlands síðastliðið haust, vinnur í Lindex samhliða námi og stefnir í listaháskóla í Bandaríkjunum þegar hún hefur lokið stúdentsprófi. Gróa…Lesa meira

true

Söng með Kór Akraneskirkju í 57 ár

Stór tímamót urðu í lífi Elsu Ingvarsdóttur síðastliðið haust þegar hún hætti að syngja með Kór Akraneskirkju eftir að hafa sungið með kórnum sleitulaust í 57 ár. Blaðamaður Skessuhorns hitti Elsu á heimili hennar við Hjarðarholt í liðinni viku og ræddi við hana um kórastarfið og hvað taki við hjá henni. „Þegar ég byrjaði í…Lesa meira

true

Toppslagur í Borgarnesi á morgun

Skallagrímur tekur á móti Breiðabliki í toppslag 1. deildar karla í körfuknattleik á morgun. Skallagrímur trónir á toppi deildarinnar með 24 stig en Blikar eru tveimur stigum á eftir í öðru sæti. Með sigri á morgun geta Borgnesingar náð fjögurra stiga forskoti á Breiðablik í baráttunni um fyrsta sætið sem veitir öruggt sæti í Domino‘s…Lesa meira