Fréttir

true

Bæjarstjóri skrifar áramótapistil

“Árið 2017 var ár verulegra framkvæmda á vegum Stykkishólmsbæjar. Þegar litið er yfir verkefni síðasta árs og stöðuna sem er framundan hjá Stykkishólmsbæ er af ýmsu að taka hvað varðar uppbyggingu og bætt búsetuskilyrði í bænum,” skrifar Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í ítarlegum pistli sem hann birtir m.a. í Skessuhorni. “Það má halda því fram að…Lesa meira

true

Brunavakt í íþróttahúsinu við Vesturgötu

Frá því á laugardagsmorgun hefur verið brunavakt í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Ástæðan er sú að brunavarnakerfi hússins reyndist við skoðun vera óvirkt. „Ég kom hingað á laugardagsmorgun til að vinna að umsögn vegna þorrablótsins sem stendur til að halda hér um helgina. Þá sé ég að kerfið er ekki virkt og set strax…Lesa meira

true

Tímabundið starf slökkviliðsstjóra auglýst

Sveitarfélagið Borgarbyggð kynnir í frétt á vef sínum auglýsingu um tímabundna stöðu slökkviliðsstjóra til sex mánuði lausa til umsóknar. Um er að ræða afleysingastarf sem felst í stjórnun, útköllum og öðrum almennum störfum fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar. Slökkviliðsstjóri stjórnar og ber daglega ábyrgð á slökkviliðinu og aðstoðarslökkviliðsstjóri í forföllum hans. Hann ber ábyrgð á að starfsemin…Lesa meira

true

Davíð Oddsson er sjötugur í dag

Ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrum borgarstjóri, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og seðlabankastjóri, Davíð Oddsson er sjötíu ára í dag. Af því tilefni efnir Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, til veislu í Hádegismóum síðdegis í dag fyrir vini og velunnara þekktasta núlifandi áhrifamanns Íslendinga. Davíð var í viðtali við útvarpsstöðina K100 í morgun. Frá því er greint á vefmiðlinum mbl.is. Þar…Lesa meira

true

Guðrún fjallar um jurtalitun í Safnahúsinu

Á morgun, fimmtudaginn 18. janúar, flytur Guðrún Bjarnadóttir erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar  um jurtalitun. Guðrún er náttúrufræðingur og hefur á undanförnum árum sérhæft sig í jurtalitun og miðlun upplýsinga um hana. Hún kennir grasafræði við Landbúnaðarháskólann, en hennar aðalstarf er að reka jurtalitunarvinnustofuna Hespuhúsið þar sem hún jurtalitar íslenska ull og tekur á móti gestum…Lesa meira

true

Taka frá lóðir undir gagnaver

Á fundi stjórnar Faxaflóahafna síðastliðinn föstudag var tekin fyrir umsókn Melónu ehf. um skilyrta úthlutun lóðanna Tangavegur 9 og Tangavegur 11 á Grundartanga til byggingar og reksturs gagnavers. Gísla Gíslasyni hafnarstjóra var falið að gefa tímabundið vilyrði fyrir skilyrtri úthlutun lóðanna. Það eru franskir fjárfestar sem standa að baki fyrirtækinu Melónu ehf. Málið er á…Lesa meira

true

Skrifstofur Veitna á Akranesi rýmdar vegna myglusvepps

Til stendur að rýma húsnæði Veitna við Dalbraut á Akranesi vegna myglu sem þar fannst og flytja starfsemina í þar til gerða skrifstofugáma. Þetta staðfestir Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna í samtali við Skessuhorn. „Í haust vöknuðu grunsemdir um myglu í húsnæðinu við Dalbraut og voru starfsmenn Veitna á Akranesi umsvifalaust upplýstir um málið. Í…Lesa meira

true

Fundu mikið magn fíkniefna í bíl á norðurleið

Kvöldið fyrir gamlársdag stöðvaði Lögreglan á Vesturlandi við reglubundið eftirlit bifreið á leið norður Vesturlandsveg. Var ökumaður bifreiðarinnar, að sögn lögreglu, greinilega undir áhrifum fíkniefna og var því handtekinn og færður á lögreglustöð ásant farþega. Við leit í bifreiðinni, á ökumanni og farþega, fannst mikið magn af fíkniefnum. Alls fundust 98 e-töflur, ætlað amfetamín, nokkuð…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir Breiðabliki

ÍA mætti Breiðabliki í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikur liðanna fór fram í Kópavogi. Blikar höfðu undirtökin í allan leikinn og höfðu að lokum 14 stiga sigur, 99-85. Breiðablik byrjaði leikinn mun betur en Skagamenn voru nokkrar míntútur að finna taktinn. Blikar leiddu 20-4 um miðjan fyrsta leikhluta en þá tók ÍA…Lesa meira

true

Ari Gunnarsson tekur við Skallagrími

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Ara Gunnarsson um að taka við þjálfun meistaraflokks kvenna út keppnistímabilið. Frá þessu er greint á Facebook síðu félagsins nú í morgunsárið. Ari tekur við af Ricardo Gonzáles Dávila, sem sagt var upp störfum fyrir helgi. Fyrsti leikur Skallagríms undir stjórn Ara verður Vesturlandsslagurinn gegn Snæfelli sem fram fer í…Lesa meira