Fréttir

true

Skallagrímur sótti sigur í Stykkishólm

Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Eftir hnífjafnan síðari hálfleik og spennandi lokafjórðung voru það Borgnesingar sem fóru með sigur af hólmi, 95-100. Snæfell hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks. Hólmarar leiddu 15-10 eftir fimm mínútna leik og 24-19 seint í fyrsta leikhluta. En Skallagrímur kláraði leikhlutann…Lesa meira

true

Spáð er slæmu veðri um tíma í dag

Hálka, snjóþekja og skafrenningur er víða á vegum á Vesturlandi, samkvæmt samantekt starfsmanna Vegagerðarinnar frá því í morgun. Veður fer versnandi í dag. Hríðarbakki með hvössum norðvestanvindi fer yfir Vestfirði og verður hvað verst þar nærri hádegi með skafrenningi, snjókomu og litlu skyggni. Á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi verður einnig slæmt veður um stund. …Lesa meira

true

Kaupa Farfuglaheimilið í Borgarnesi

Hjónin Ingibjörg Valdimarsdóttir og Eggert Hjelm Herbertsson á Akranesi gengu fyrir árslok frá kaupum á Borgarnes HI Hostel í Borgarnesi, sem betur er þekkt sem Farfuglaheimilið við Borgarbraut 9-13. Seljandi er Farfuglar ses. sem átt hafa gististaðinn undanfarin tvö ár. Þau Eggert og Ingibjörg eru með kaupunum að meira en tvöfalda gistiþjónustu á þeirra vegum.…Lesa meira

true

Nýjar heimasíður leikskóla Borgarbyggðar

Búið er að opna nýjar heimasíður fyrir leikskóla Borgarbyggðar. Á þeim má nálgast almennar upplýsingar um daglegt skólastarf. Heimasíðurnar eru hluti af leikskólakerfi sem nefnist Karellen. Kerfið býður einnig uppá App fyrir foreldra en þar eiga þeir að geta séð viðveruskráningu barna sinna sem og matar- og svefnskráningu. Að auki eru bein samskipti á milli…Lesa meira

true

Allt að 52% munur á leikskólagjöldum

Nokkur munur er á leikskólagjöldum á milli stærstu sveitarfélaga í landinu. Samkvæmt niðurstöðum úttektar verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands hækkuðu leikskólagjöld í sjö af sextán fjölmennustu sveitarfélögum landsins um síðustu áramót. Leikskólagjöld lækkuðu í þremur sveitarfélögum og héldust óbreytt í sex þeirra. Lægsta almenna leiksólagjaldið fyrir átta klukkustundir á dag auk fæðis, er í Reykjavík eða 25.234…Lesa meira

true

Snjókoma og hvasst um tíma á morgun

Á morgun er því spáð að gangi í norðvestan hvassviðri eða storm með snjókomu og éljum víða um norðan- og vestanvert landið. Veðrið versnar fyrst á Vestfjörðum í fyrramálið en eftir það má búast við éljagangi samhliða hvössum vindi hér um vestanvert landið. Draga mun úr vindi og ofankomu annað kvöld. Lægð sem gekk yfir…Lesa meira

true

Skallagrímur lætur Ricardo fara

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur slitið samstarfi við Ricardo González Dávila, þjálfara meistaraflokks kvenna og yngri flokka hjá félaginu. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu félagsins í gær. Þar kemur einnig fram að unnið sé að ráðningu nýs þjálfara kvennaliðsins, en Skallagrímur er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni Domino‘s deildar kvenna. Sömuleiðis er…Lesa meira

true

Eldur kom upp í kjúklingabúi á Hvalfjarðarströnd

Um klukkan 14:30 í dag kom upp eldur í kjúklingabúi skammt neðan við Ferstikluskála á Hvalfjarðarströnd. Allur tiltækur mannskapur frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallaður á staðinn. Þar er eldi á vegum Reykjagarðs í húsum á tveimur samliggjandi lóðum sem kallast Krókar og Oddsmýri. Eldurinn kom upp í rými þar sem dagsgamlir kjúklingar voru…Lesa meira

true

Spáð er slæmu veðri um norðvestanvert landið

Á vegum á Vesturlandi er víða hálka eða snjóþekja en auk þess skafrenningur á flestum leiðum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er vakin athygli á að lægð fyrir norðan land er enn mjög djúp og hún kemur nú til baka. „Vestantil á Norðurlandi, einkum frá Ströndum og norður á Siglufjörð, fer veður því versnandi og með…Lesa meira

true

Akranes úr leik í Útsvari

Akurnesingar þurftu að játa sig sigraða fyrir Dalvíkurbyggð þegar lið sveitarfélaganna mættust í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, síðastliðið föstudagskvöld. Lið Akraness hefur því lokið þátttöku í keppninni að þessu sinni. Eftir jafna viðureign framan af tók lið Dalvíkurbyggðar að síga fram úr í valflokkaspurningunum um miðjan þátt. Í stóru spurningunum í lok þáttar var…Lesa meira