Fréttir

true

Fjölmenni á sviðaveislu Söngbræðra

Karlakórinn Söngbræður hélt sína árlegu stórveislu í félagsheimilinu Þinghamri á laugardagskvöldið. Löng hefð er fyrir þessari skemmtun sem nýtur alltaf mikilla vinsælda enda húsfyllir hverju sinni, sama hversu stórt félagsheimilið er. Vel á fjórða hundrað manns mætti að þessu sinni og skemmtu gestir sér vel yfir mat, drykk og söng. Matseðilinn var hefðbundinn; saltað hrossakjet…Lesa meira

true

Hefja eftirlit með bændum út frá áhættu og frammistöðu

Dýraheilbrigðissvið Matvælastofnunar hefur tekið í notkun nýtt áhættu- og frammistöðuflokkunarkerfi til að ákvarða tíðni eftirlits með frumframleiðslu og öðru dýrahaldi hér á landi. Eftirlit með starfsemi á þessu sviði er frá byrjun þessa árs skipulagt út frá tíðni sem byggist á áhættuflokkuninni en að þremur árum liðnum mun frammistöðuflokkunin taka gildi. „Á undanförnum árum hefur…Lesa meira

true

Fjörutíu vestlenskir ferðaþjónar á Mannamóti

Mannamót markaðsstofa landshlutanna verður fimmtudaginn 18. janúar næstkomandi í flugskýli flugfélagsins Ernis við Reykjavíkurflugvöll. Mannamóti er ætlað að vera vettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni til að kynna starfsemi sína fyrir ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu. Mannamóti er einnig ætlað að efla tengsl innan ferðaþjónustunnar og gestum gefst tækifæri á að kynnast því sem er að gerast í…Lesa meira

true

Þegar bændabrúnkan sló í gegn

Eins og glöggir lesendur Skessuhorns muna prýddi eina forsíðu Skessuhorns síðla í fyrrasumar mynd af Helga Fannari Þorbjarnarsyni sem þá var ásamt öðru heimilisfólki í baggaaheyskap á Harrastöðum í Miðdölum. „Það var mikið hlegið að því að myndin af mér léttklæddum á fjórhjólinu skildi enda á forsíðu. Ég fékk ansi mikla athygli hér í sveitinni…Lesa meira

true

Góðir vinir gerðu lærdóminn skemmtilegan

Skömmu fyrir jól voru 62 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hilmar Örn Jónsson brautskráðist af náttúrufræðibraut með einkunnina 9,33 sem jafnframt var hæsta einkunn á stúdentsprófi við skólann og hlaut hann viðurkenningar fyrir. „Mér fannst stærðfræði alltaf rosalega skemmtileg og vildi læra meira,“ svaraði Hilmar aðspurður hvers vegna hann hafi valið náttúrufræðibraut. Lykilinn…Lesa meira

true

Magnaðir nýárstónleikar Kórs Akraneskirkju

Kór Akraneskirkju blés til nýárstónleika í Bíóhöllinni á Akranesi síðastliðinn laugardag. Uppselt var á tónleikana, fullt út úr dyrum og mjög ánægjulegt að sjá hversu vel var mætt. Mér finnst alltaf mjög gaman að fara á tónleika í Bíóhöllinni því það myndar svo skemmtilega stemningu að ganga inn í sínu fínasta pússi og fara svo…Lesa meira

true

Mikilvægt er að flokka útigangshross eftir fóðurþörf

Dýraheilbrigðissvið Matvælastofnunar vill benda á að fóðurþörf hrossa er afar breytileg og ræðst meðal annars af virkni, framleiðslu, vexti og holdafari. Því er mikilvægt að flokka hross yfir gjafatímann. Mjólkandi hryssur og trippi sem eru að vaxa og þroskast þurfa mest að bíta og brenna. Þessi hross má gjarnan fóðra saman enda þurfa þau alla…Lesa meira

true

ÍA semur við Viktor Helga

Viktor Helgi Benediktsson hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA til þriggja ára og mun því leika með liði Skagamanna út sumarið 2020. Viktor er fæddur árið 1998, uppalinn hjá FH en spilaði með HK í 1. deildinni síðasta sumar, undir stjórn Jóhannesar Karls Guðjónssonar, núverandi þjálfara ÍA. Lék hann 19 leiki með Kópavogsliðinu í fyrra og…Lesa meira

true

Færði kvennadeildinni fallega gjöf

Skömmu fyrir jól fékk kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi góða gjöf. Þá kom ung móðir, Myrra Ösp Gísladóttir á Akranesi, færandi hendi á deildina. Hafði hún í fórum sínum ellefu buxur sem hún færði deildinni að gjöf fyrir ungabörnin sem þar eiga eftir að koma í heiminn. „Hún Myrra hefur fætt tvö af fjórum börnum…Lesa meira

true

Bikarævintýri Vesturlandsliða á enda

Snæfell og Skallagrímur töpuðu leikjum sínum Undanúrslit Maltbikars kvenna í körfuknattleik voru leikin í Laugardalshöllinni í Reykjavík í gær. Í fyrri leiknum mættust Skallagrímur og Njarðvík og í þeim síðari áttust við Snæfell og Keflavík. Báðir leikirnir voru æsispennandi og hefði sigurinn getað endað hvorum megin sem var. En lukkan var ekki með Vesturlandsliðunum í…Lesa meira