
Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Eftir hnífjafnan síðari hálfleik og spennandi lokafjórðung voru það Borgnesingar sem fóru með sigur af hólmi, 95-100. Snæfell hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks. Hólmarar leiddu 15-10 eftir fimm mínútna leik og 24-19 seint í fyrsta leikhluta. En Skallagrímur kláraði leikhlutann…Lesa meira








