Fréttir

true

Ætlar að bjóða upp á hádegisverðarhlaðborð á Akranesi

Ingimar Oddsson í Dularfullu búðinni við Skólabraut á Akranesi hyggst hefja veitingasölu í hádeginu alla virka daga frá og með 1. febrúar næstkomandi. „Hugmyndin er að bjóða upp á hlaðborð með íslenskum gamaldags heimilismat fyrir bæði vinnandi stéttir og ferðamenn. Ég er þá að hugsa um mat eins og plokkfisk, ýsu í raspi, kjötsúpu, kótelettur…Lesa meira

true

Ilmolíur skaðlegar gæludýrum

Ilmolíur á heimilum geta verið skaðlegar gæludýrum, einkum köttum, segir í frétt frá dýravelferðarsviði Matvælastofnunar. „Mikilvægt er að gæludýraeigendur takmarki notkun á skaðlegum ilmolíum og aðgang gæludýra að þeim. Vinsælt er að nota alls kyns ilmolíur á heimilum. Þar finnast þær ýmist í opnum flöskum, rakatækjum, ilmkertum eða er úðað út í andrúmsloftið. Matvælastofnun varar…Lesa meira

true

Áskorun: Til öryggis á Kjalarnesi

Vegurinn um Kjalarnes er einn af þremur fjölfjörnustu vegum á Íslandi, en um hann aka að meðaltali 7.000 bifreiðar á dag, en allt að 14.000 bílum á sumrin, ef mið er tekið af umferð sumarið 2017. Bjarnheiður Hallsdóttir, íbúi á Akranesi og daglegur vegfarandi um Kjalarnes, opnaði í hádeginu í gær síðu á Facebook þar…Lesa meira

true

Fetað í fótspor foreldranna

Skagamaðurinn Tryggvi Hrafn Haraldsson, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Halmstads BK, skoraði fjórða mark Íslands þegar liðið vann stórsigur á Indónesíu, 0-6 í vináttuleik í Indónesíu í dag. Var þetta fyrsta mark Tryggva fyrir A landsliðið. Mark Tryggva er ekki síst merkilegt fyrir þær sakir að foreldrar hans, þau Haraldur Ingólfsson og Jónína Víglundsdóttir, hafa bæði skorað…Lesa meira

true

Búið að rífa sílóin

Búið er að rífa fjögur efnissíló Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Hófst niðurrif þeirra með vélum í gærmorgun. Þá höfðu þegar verið gerðar tvær tilraunir til að sprengja sílóin niður, en án árangurs. Var því brugðið á það ráð að rífa sílóin með vélum. Beltagrafa með gripskóflu var notuð til verksins. Gekk vinnan greiðlega fyrir sig og…Lesa meira

true

Telur Teigsskógarleið stangast á við lög

Nokkrar athugasemdir bárust vegna aðalskipulagsbreytinga í Reykhólahreppi Frestur til að skila inn athugasemdum vegna vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingum Reykhólahrepps vegna Vestfjarðavegar rann út föstudaginn 5. janúar. Alls bárust hreppnum átta athugasemdir og sex umsagnir. Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd Reykhólahrepps tók þær til umfjöllunar á fundi sínum mánudaginn 8. janúar.  Tvær veglínur eru til skoðunar hjá sveitarfélaginu;…Lesa meira

true

Hvasst um tíma síðdegis – lítið eitt dregið úr óveðursspá

Nú er hálka og hálkublettir á flestöllum vegum á Vesturlandi. Víða inni í byggð, þar sem ekki er saltað til hálkueyðingar, er bent á að glærahálka er víða. Í nýjustu veðurspám er lítið eitt dregið úr mestu veðurhæð suðvestanlands eins og spár höfðu gert ráð fyrir síðustu daga. Engu að síður er spáð stormi með…Lesa meira

true

Færði Umf. Íslendingi góða gjöf

Ungmennafélaginu Íslendingi í Borgarfirði barst nýverið góð gjöf. Ásdís B Geirdal á Hvanneyri kom þá færandi hendi og gaf félaginu 150 þúsund krónur. Peningurinn kemur til vegna sölu bóka á bókaloftinu sem Ásdís hefur staðið fyrir. „Færum við Ásdísi kærar þakkir fyrir dýrmæta gjöf sem nýtist alfarið í barna- og unglingastarf félagsins. Við hvetjum alla…Lesa meira

true

Keppa í Útsvari á föstudaginn

Lið Akraness mætir Dalvíkurbyggð í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RUV, næstkomandi föstudagskvöld, 12. janúar. Akurnesingar komust áfram í aðra umferð eftir að hafa lagt lið Snæfellsbæjar með 74 stigum gegn 31 snemma í haust, en Dalvíkingar sigrðuðu lið Skeiða- og Gnúpverjahrepps 57-50 í fyrri umferð keppninnar. Á meðfygljandi mynd er lið Akurnesinga, en það skipa…Lesa meira