Fréttir

true

Gísli Hallbjörnsson heiðraður á sjómannadaginn

Í morgun var sjómannadagsmessa í Akraneskirkju þar sem séra Þráinn Haraldsson þjónaði. Gísli Hallbjörnsson vélstjóri var sæmdur heiðursmerki fyrir störf sín á sjó. Að messu lokinni var lagður blómsveigur að styttu sjómannsins á Akratorgi.  Lesa meira

true

Margrét Katrín tekin við sem kaupfélagsstjóri

Margrét Katrín Guðnadóttir, verslunarstjóri og dýralæknir, tók á föstudaginn við sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga. „Fráfarandi kaupfélagsstjóra, Guðsteini Einarssyni, þakkar kaupfélagið fyrir langt og gæfuríkt starf undanfarin 21 ár í þágu félagsins. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir samstarfið,“ segir í tilkynningu frá KB.Lesa meira

true

Jósefína sendir frá sér ljóðabók

Jósefína Meulengracht Dietrich, skáldlæða og mannfræðingur á Akranesi, skrifaði nýlega undir samning um útgáfu Jósefínubókar. Mun bókin innihalda úrval eitt hundrað ljóða sem Jósefína hefur ort í gegnum tíðina. Samningarnir voru undirritaðir við hátíðlega athöfn föstudaginn 17. maí síðastliðinn. „Jasmín húsfreyja og hefðarkisa í Kattholti var viðstödd ásamt þremur kettlingum og miklu fjölmenni. Það var…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Esjubraut hafnar á ný

Gatnaframkvæmdir við Esjubraut á Akranesi hófust að nýju mánudaginn 27. maí. Skipt verður um undirlag götunnar og yfirborð hennar endurnýjað frá nýju Kalmanstorgi að Esjutorgi, sem stendur á gatnamótunum við Þjóðbraut. Nýr göngu- og hjólastígur verður gerður norðan við Esjubraut og þá munu Veitur endurnýja allar lagnir samhliða gatnaframkvæmdum. Verkinu verður skipt í tvo hluta.…Lesa meira

true

„Úr gamaldags frystihúsi í hátæknifiskvinnslu“

„Starf framleiðslustjórans er ofboðslega skemmtilegt og enginn dagur alveg eins. Síðustu ár hafa mikið farið í að spá og spekúlera. Okkur fannst við komin á endastöð í gamla húsinu og ákváðum að byggja nýja fiskvinnslu. Það átti sér nokkurn aðdraganda, við vorum í um tvö ár að pæla í vélum og teikna áður en við…Lesa meira

true

Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um helgina

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlega um þessa helgi og verður ýmsilegt í boði fyrir alla fjölskylduna á Akranesi, í Grundarfirði og í Snæfellsbæ. Samkvæmd heimildum Skessuhorns verður ekki skipulögð dagskrá í Stykkishólmi að þessu sinni. Á Akranesi hefst dagskráin á sunnudaginn klukkan 10 með minningarstund við minnismerki um týnda sjómenn, áður en haldið verður í sjómannadagsmessu…Lesa meira

true

Veiga væntanleg á Akranes í kvöld

Veiga Grétarsdóttir, kajakræðari og transkona frá Ísafirði, rær nú hringinn rangsælis í kringum Ísland á kajak og safnar í leiðinni áheitum fyrir Píeta samtökin. Ásamt því að vera fyrsta íslenska konan til að róa hringinn í kringum landið á kajak er hún mögulega fyrsta transkonan í heiminum til að reyna slíkt afrek. Píata samtökin sinna…Lesa meira

true

Sjómenn fræða leikskólabörnin

Sjómenn í Grundarfirði mættu á Leikskólann Sólvelli í morgun og komu þá með kar fullt af hafsins gæðum. Þetta er árlegur viðburður á leikskólanum og vekur alltaf jafn mikla lukku. Veðrið lék við Grundfirðinga þennan dag og gaf góð fyrirheit fyrir komandi sjómannadagshelgi.Lesa meira

true

Næturlokanir í göngunum í næstu viku

Hvalfjarðargöng verða lokuð í næstu viku, aðfararnætur 4., 5. og 6. júní frá miðnætti og til klukkan 07:00 að morgni vegna þrifa og viðhaldsvinnu. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að umferð verði vísað um Hvalfjörð þessar nætur.Lesa meira