Fréttir

true

Álagning skatta nú komin í ljós

Nú geta einstaklingar nálgast niðurstöður álagningar sinnar á þjónustuvefnum www.skattur.is með rafrænum skilríkjum eða veflykli. Í tilkynningu frá Ríkisskattsjóra segir að seðlar verða bornir út í byrjun júní til þeirra sem ekki afþökkuðu álagningarseðil á pappír. Kærufrestur vegna skattlagningar rennur út 2. september 2019.Lesa meira

true

Mikið að gera í Gleym mér ei

Hin blíða veðrátta í vor og í upphafi sumars hefur heldur betur hleypt lífi í garðræktina hjá íbúum um vestanvert landið. Í gróðrarstöðinni Gleym mér ei við Sólbakka í Borgarnesi hefur vorið verið ansi líflegt að undanförnu, að sögn Sædísar Guðlaugsdóttur sem rekið hefur stöðina í 33 ár. Það sem af er sumri hefur óvenju…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagríms

Skallagrímur vann góðan 2-0 sigur á KH þegar liðin mættust í fimmtu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu í gær, uppstigningardag. Leikið var í Borgarnesi. Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn vel og komust yfir strax á 3. mínútu. Eftir markspyrnu frá marki heimanna var boltinn skallaður fyrir fætur Declan Redmond. Hann sendi hann í fyrstu snertingu á…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum

Skagamenn eru úr leik í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu eftir 2-1 tap gegn FH í Hafnarfirði í gærkvöldi. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og náðu að skapa sér nokkur ágætis færi fyrstu mínúturnar, en öll fóru þau forgörðum. Skagamenn komust betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn en náðu ekki að…Lesa meira

true

Matgæðingar frá Norðurlöndunum streyma á Embluverðlaunin

Embluverðlaunin, norrænu matarverðlaunin, verða veitt á morgun, laugardaginn 1. júní í Hörpu í Reykjavík. Þau eru samstarfsverkefni allra bændasamtaka á Norðurlöndunum og haldin á tveggja ára fresti. Markmið þeirra er að upphefja norræna matarmenningu og vekja athygli á fólkinu sem býr til matinn okkar og lifir og hrærist í matvælageiranum. Íslendingar tefla fram sjö fulltrúum…Lesa meira

true

Er að ljúka sinni fyrstu vertíð sem skipstjóri

Bárður Jóhönnuson er 23 ára sjómaður í Ólafsvík. Hann er nú að ljúka sinni fyrstu vertíð sem skipstjóri en hann rær á línubátnum Kristni SH.  Bárður segir í samtali við Skessuhorn að hann sé alinn upp í kringum sjávarútveg og það hafi aldrei annað komið til greina en að gerast sjómaður. Þá sé auk þess…Lesa meira

true

Miklar framkvæmdir við hafnir Snæfellsbæjar

Eftir sameiningu Ólafsvíkurkaupstaðar, Neshrepps utan Ennis, Breiðuvíkurhrepps og Staðarsveitar varð sveitarfélagið Snæfellsbær til í júní 1994. Ákveðið var að búa til nýtt starf hafnarstjóra, sem myndi verða yfirmaður hafnarmála í hinu nýja sveitarfélagi. Auglýst var eftir umsóknum, Björn Arnaldsson var ráðinn og hefur gegnt starfinu allar götur síðan. „Ég hef verið hafnarstjóri síðastliðin 25 ár,…Lesa meira

true

Flugsýning á laugardag – Aldarafmæi flugs á Íslandi

Hin árlega flugsýning á Reykjavíkurflugvelli verður haldin næstkomandi laugardag, 1. júní, frá klukkan 12-16. Að sögn Flugmálafélagsins verður sýningin með glæsilegasta móti þar sem nú er haldið upp á 100 ára afmæli flugs á Íslandi en fyrsta flugvélin sem hóf sig til lofts á Íslandi tók á loft frá Vatnsmýri árið 1919. Að sögn Matthíasar…Lesa meira

true

Lífsmottó að taka vel á móti hverri manneskju

Gunnar Svanlaugsson er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi. Eftir að hafa lokið kennaraprófi starfaði hann í átta ár við Héraðsskólann í Reykholti. „Þar starfaði ég með ótrúlega öflugu fólki, kennurum, almennum starfsmönnum sem og nemendum. Margir úr þessum hópi eru mínir tryggustu félagar í dag og segir það töluvert um þann anda sem ríkti í…Lesa meira

true

Hélt metnaðarfulla burtfararprófstónleika

Ásta Marý Stefánsdóttir frá Skipanesi í Hvalfjarðarsveit hélt burtfararprófstónleika frá Söngskóla Sigurðar Demetz í Neskirkju 17. maí síðastliðinn. Tónleikarnir voru lokaverkefni hennar fyrir útskrift frá skólanum. Spurð hvað tæki við næst í söngnum segir hún það enn óljóst. „Þetta er eins langt og ég get komist en næsta stig í söngnámi er í raun háskólanám.…Lesa meira