Fréttir

true

Bláfáninn blaktir að nýju við hún á Langasandi

Á mánudagsmorgun var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verkefnisins er að stuðla að verndun lífríkis haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er tákn um góða frammistöðu í…Lesa meira

true

Tíu ár frá því samstarf skólanna á Hvanneyri hófst

Í morgun var í Skjólbeltunum á Hvanneyri endurnýjaður samningur milli Leikskólans Andabæjar, Grunnskóla Borgarfjarðar og Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri um samstarf allra þessara skóla sín á milli. Nú eru tíu frá því samkomulag þetta var fyrst gert, en það hefur tekið jákvæðum breytingum síðan. „Það er fengur fyrir leik- og grunnskóla að hafa háskóla á…Lesa meira

true

Útskrift frá Stóriðjuskóla Norðuráls

Þrjátíu og tveir nemendur brautskráðust frá Stóriðjuskóla Norðuráls í maí, fjórtán úr grunnnámi og átján úr framhaldsnámi. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 og hafa 164 nemendur útskrifast frá honum á þessum tíma. „Tilgangur námsins er að auka kunnáttu og öryggi starfsfólks, efla starfsánægju, auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins. Einnig má líta á…Lesa meira

true

Íbúafundur um þörungavinnslu í kvöld

Boðað er til íbúafundar í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi kl. 18:00 í kvöld. Efni fundarins er niðurstaða ráðgjafanefndar vegna áhuga á rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi. Hugmyndir og áform um þörungavinnslu í Stykkishólmi hafa verið til umræðu og meðferðar hjá stjórnendum bæjarins um nokkurra ára skeið. „Um er að ræða hugmyndir að nýtingu auðlinda…Lesa meira

true

Lenging Norðurgarðs boðin út

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar hefur óskað eftir tilboðum í lengingu Norðurgarðs hafnarinnar í Ólafsvík. Til stendur að lengja hann um 80 metra. Verkið felur í sér útlögn grjóts og kjarna, samtals 36 þúsund rúmmetra og upptekt og endurröðun um tvö þúsund rúmmetra efnis. Útboðsgögn má nálgast á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar í Ólafsvík sem og hjá Vegagerðinni í Borgartúni…Lesa meira

true

ASÍ vill að fjármálaáætlun endurspegli loforð stjórnvalda

Ríkisstjórnin hefur boðað breytingar á samþykktri fjármálastefnu og fyrirliggjandi tillögu um fjármálaáætlun til næstu fimm ára sem nú er til meðferðar á Alþingi. Þetta eru viðbrögð við breyttum spám um þróun efnahagsmála en gert er ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs verði um 40 milljörðum króna lakari en núverandi fjármálaáætlun gerir ráð fyrir. Sú staða sem…Lesa meira

true

Búkalú er fullorðins fjölbragðasýning

Lífskúnstnerinn Margrét Erla Maack ætlar í sumar að halda í þeysireið um landið og bjóða upp á fullorðins fjölbragðasýninguna Búkalú. Meðal annars mun hún sýna á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi 6. júní og Frystiklefanum í Rifi 21. júní. „Sýningin er fyrsta sýning Búkalú-ferðalagsins og með í för verða munúðarfullur mannapi, kabarettkerlingar og fettibretta frá…Lesa meira

true

Um tíma óttast að skútu hefði hvolft

Björgunaraðilar við Faxaflóa voru kallaðir út til leitar að beiðni Landhelgisgæslunnar síðdegis í dag. Vísbending hafði borist um að skúta væri á hliðinni í Hvalfirði. Boð til björgunarsveita voru nokkru síður afturkölluð. Í ljós kom að það sem sjónarvottur hafði talið vera skútu, reyndist vera hvalur. Engin hætta var því á ferðum.Lesa meira

true

Margir taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ – hófst í dag

„Borgfirðingar taka alltaf þátt í Hreyfiviku UMFÍ. Við leggjum okkur líka fram um að bjóða öllum að vera með, bæði börnum og fullorðnum,“ segir Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar. Hreyfivika UMFÍ hófst í dag og geta landsmenn tekið þátt í alls konar hreyfitengdum viðburðum í sinni heimabyggð. Í tilkynningu frá UMFÍ segir að samtökin vonist…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Síðastliðinn laugardag voru brautskráðir 74 nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar við athöfnina. Ylfa Örk Davíðsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útkskriftarnema, þar sem hún rifjaði upp nokkur eftirminnilieg augnablik skólagöngunnar. Helga Braga Jónsdóttir, fyrrverandi nemandi flutti ávarp og Bergdís Fanney Einarsdóttir, Ólöf Gunnarsdóttir og Edgar Gylfi Skaale Hjaltason…Lesa meira