Fréttir

true

Sigrún og Bjarni valin mikilvægust

Lokahóf meistaraflokka Körfuknattleiksdeildar Skallagríms var haldið í Vindási í Borgarnesi föstudaginn 24. maí. Þar voru veitt verðlaun þeim leikmönnum sem þykja hafa skarað fram úr á liðnu tímabili. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Bjarni Guðmann Jónsson voru valin mikilvægustu leikmennirnir. Varnarmenn ársins voru valin þau Maja Michalska og Björgvin Hafþór Ríkharðsson. Þá þóttu þau Ragnar Magni…Lesa meira

true

Vel sóttur kynningarfundur um þangvinnslu

Fjölmennur kynningarfundur um þangvinnslu var haldinn í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í gærkveldi. Þar var kynnt skýrsla ráðgjafanefndar um rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi. Ráðgjafanefndin leggur til að hafnar verði viðræður við kanadíska fyrirtækið Acadian Seaplants Ltd., hafi bæjaryfirvöld hug á að þangvinnsla hefjist í Stykkishólmi. Íslenska kalkþörungafélagið ehf. hafði einnig lýst yfir áhuga…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Sjómannadagurinn er ætíð fyrsta sunnudag í júní og er því framundan með tilheyrandi hátíðarhöldum. Af því tilefni fylgir með Skessuhorni í dag 32 síðna sérblað tileinkað sjómönnum. Rætt er við núverandi og fyrrverandi sjómenn víðs vegar um Vesturland og ýmsa fleiri sem tengjast fiskveiðum og -vinnslu. Sjómönnum og fjölskyldum þeirra óskar Skessuhorn innilega til hamingju…Lesa meira

true

Vantar aukaleikara á sveitaball í Fannahlíð

Þessa dagana er unnið að tökum á nýrri gamanmynd í fullri lengd sem tekin er upp í Hvalfirði og Svínadal. Myndin gerist öll í sveitinni. Í henni segir frá seinheppinni borgarsnót sem fer með lífssigldri sveitapíu út á land til að læra að lifa eftir þeim lífsreglum sem þar gilda. Eins og margir vita voru…Lesa meira

true

Dúx FSN segir gott skipulag lykilinn að velgengni í námi

Laugardaginn 25. maí útskrifaðist Samra Begic af Félag- og hugvísindabraut Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Samra var dúx skólans með 9,2 í meðaleinkunn á stúdentsprófi. Aðspurð segir hún lykilinn að velgengni í námi fyrst og fremst vera gott skipulag. „Ég er frekar skipulögð og var alltaf dugleg að læra. Ég reyndi alltaf að klára að læra áður en…Lesa meira

true

Kannabisræktun gerð upptæk

Um liðna helgi framkvæmdi lögreglan á Vestfjörðum húsleit á heimili í Reykhólasveit. Grunur hafði vaknað um að þar væru fíkniefni. Sá grunur reyndist á rökum reistur. Þar fundust kannabisefni og áhöld til meðhöndlunar þeirra. Á Facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að fíkniefnaleitarhundurinn Tindur hafi tekið þátt í leitinni.Lesa meira

true

Skipverjarnir látnir taka poka sinn

Óhugnanlegt myndband sem sýnt var á DV.is á mánudaginn fór eins og eldur í sinu um netheima. Á því sést þegar skipverjar á báti gera það að leik sínum að skera sporð af lifandi hákarli sem komið hafði í veiðarfæri þeirra og sleppa honum síðan lifandi í sjóinn. Þar mun bíða hans hægur dauðdagi. Slíkur…Lesa meira

true

Atli Teitur dúxaði við FVA

Atli Teitur Brynjarsson útskrifaðist síðastliðinn laugardag af náttúrufræðibraut frá FVA og var hann dúx skólans á vorönn með 9,3 í meðaleinkunn. Atli Teitur segir náttúrufræðibraut hafa orðið fyrir valinu því honum þykir skemmtilegast í raungreinum. Aðspurður segist hann ekki geta sagt að eitthvað eitt sé lykillinn að því að ná þessum árangri í náminu, en…Lesa meira

true

Endurgera motorcrossbrautina í Ólafsvík

Motorcrossklúbbur Snæfellsbæjar hefur ekki haft mikla starfsemi undanfarin ár en á því er að verða breyting. Til stendur að haldin verði keppni í motorcrossi á braut félagins í sumar. Forsagan að því framtaki er sú að á Ólafsvíkurvöku 2017 stóðu félagar úr klúbbnum þeir Janus Jónsson, Albert Fannar Jónsson og Konráð Haraldsson, fyrir skemmtikeppni sem…Lesa meira

true

Nýr lyftari á fiskmarkaðinum

Útibú Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi fékk afhentan spánýjan lyftara í dag. Sá er af gerðinni Linde H25, díselknúinn með 2,5 tonna lyftigetu. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem fiskmarkaður sem starfræktur er í þessu húsi getur státað af nýjum lyftara, beint úr kassanum. Böðvar Ingvason, umsjónarmaður útibús Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi, var að vonum…Lesa meira